Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.1976, Page 43

Læknablaðið - 01.02.1976, Page 43
DEATHS PER 1,000 P0PULATI0N LÆKNABLAÐIÐ 23 Fig. 11. er læknar gefa, hefur þannig fjölgað, eru þau, einkum síðasta áratuginn, einnig mun áreiðanlegri en til að byrja með. Með lögum frá árinu 1950137 með gildis- töku í byrjun næsta árs var ákveðið, að rita skyldi dánarvottorð fyrir hvern þann, er dæi hér á landi. Samkvæmt þessu hafa frá ársbyrjun 1951 verið gefin út dánar- vottorð um öll mannslát hér á landi, nema þar sem lík hafa eigi fundist. í mannfjöldaskýrslum Hagstofu íslands hafa dánarorsakir verið greindar á eftir- farandi hátt: Fi'á 1911-40 samkvæmt íslenskri skrá frá árinu 191 l,s frá 1941-50 samkvæmt alþjóð- legri dánarmeinaskrá frá 1938, frá 1951- 57 samkvæmt alþjóðaskrá Alþjóða heil- brigðismálastofnunarinnar frá 194822 142 147 og frá 1958-70 samkvæmt breytingu sömu alþjóðaskrár (WHO) frá 19 5 5.23 Má full- yrða, að dánarmeinaskrárnar hafi frá fyrstu tíð í öllum aðalatriðum verið gerðar í samræmi við reglur um dánarskrár ann- arra þjóða. Hins vegar rýrir það nokkuð gildi dánarvottorðanna sjálfra, að þau eru eigi að öllu gefin út af læknum fyrr en eftir 1950, þó að lítið vanti á, að svo sé, einkum síðustu áratugina fyrir 1950. Betri og öruggari sjúkdómsgreiningar, fjölgun starfandi lækna og sjúkrahúsa með líkskurði margra látinna bæta hér mikið um. Tölur þær um berkladauðann, er birtar verða hér, eru unnar úr mannfjöldaskýrsl- um Hagstofu fslands (1911-70). Munu dán- arskýrslur berklaveikra oftast hafa verið athugaðar sérstaklega af lækni, áður en Hagstofan gekk endanlega frá þeim. Árin 1911-32 fór yfirlæknir Vífilsstaðahælis oft- ast yfir skýrslurnar og berklayfirlæknir eftir 1932. Á mynd 11 sést heildarmanndauðinn á íslandi frá 1911-70. Á þremur fyrstu ára- tugunum eru allmiklar sveiflur milli ára, sem jafnast og hverfa upp úr 1940. Eru það farsóttirnar, sem láta hér til sín taka. Þannig hefur kikhósti og lungnabólgufar- aldur áhrif til hækkunar á heildarmann- dauðann, bæði árin 1914 og 1915, inflúensa (spánska veikin) á árinu 1918, inflúensa, barnaveiki og taugaveiki á árinu 1921, mislingar, inflúensa og mænusótt á árinu 1924 og kikhósti á árinu 1927. Árið 1935 gengur kikhósti aftur (123 dauðsföll) og mænusótt og á árunum 1937 og 1941 má enn sjá á línuritinu greinileg farsótta- merki (inflúensufaraldur), er gengur bæði þessi ár. Eftir þetta jafnast línuritið og liggur tvo síðustu áratugina yfirleitt milli 6,6-7,9 dáinna miðað við hvert þúsund íbúa. Á Mnuritinu má greinilega sjá, að mann- dauðinn er hæstur á árum fyrri heims- styrjaldarinnar (16,2 árið 1914 og 16,1 árið 1918), en hafði árið 1950 lækkað um helming og var þá 7,9. Á mynd 12 og töflu 4 sést heildarberkla- dauðinn frá 1911-70. Hann smáhækkar frá 1911, uns hann með nokkurra ára sveifl- um nær hámarki árið 1925, og er það ár
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.