Læknablaðið - 01.02.1976, Blaðsíða 49
LÆKNABLAÐIÐ
29
breyting á. 14 sjúklingar eru skráðir með
þennan sjúkdóm, enda er hann strax sett-
ur í samband við breska setuliðið, sem
eins og kunnugt er settist að hér á landi
í maímánuði það ár, og voru nokkrir
sjúklinganna, sem skráðir voru, beint
komnir þaðan.
Mynd 14 og tafla 6 sýna berkladauðann
samkvæmt kynjum og aldri, og eru 4
fimm ára tímabilin: 1926-30, 1941-45, 1951-
55 og 1966-70 sýnd þar sérstaklega, miðað
við 100 þús. íbúa.
Þessi fjögur fimm ára tímabil gefa mjög
ljósa mynd af gangi sjúkdómsins í landinu
á þessu tímabili. Línuritið fyrir fimm ára
tímabilið frá 1926-30 sýnir það tímabii,
þegar berkladauðinn var hæstur. Ung-
barnadauði af völdum berklaveiki er geysi-
legur, rúmlega 400 miðað við 100 þús. íbúa.
Á aldursskeiðinu 15-29 ára deyja yfir 300
miðað við 100 þús. íbúa og miklu fleiri
konur en karlar. Á aldursskeiðinu 60-69
deyja enn hátt á annað hundrað manns
úr berklaveiki miðað við 100 þús. íbúa. Á
fimm ára bilinu 1941-45: Ungbarnadauð-
inn af völdum berkla hefur lækkað niður
undir 100 miðað við sama mælikvarða.
Hæstur er berkladauðinn hjá konum á
aldursskeiðinu 20-29 ára 220, og ennþá hár
hjá körlum yfir sextugs aldur eða 86
Fimm ára tímabilið frá 1951-55 sýnir ger-
breytta mynd. Ungbarnaberkladauðinn er
TABLE 6 cont.
1966-70
Female Male Total
— — —
— — —
— — —
— — —
— — —
— — —
— 2 1
2 2 2
7 — 4
— 6 3
6 27 16
1 2 2
kominn niður fyrir 10, konur eru ennþá
fleiri en karlar og flestar á aldursskeiðinu
30-39 ára og deyja þá 24 miðað við
100 þús. úr berklum, karlar eru hæstir
á aldursskeiðinu 50-59 ára og miklu hærri
en konur, enda erfiða þeir oft í vosbúð.
Síðasta fimm ára tímabilið sýnir, að berkla-
dauði til 30 ára aldurs er nú enginn, 7
konur miðað við 100 þús. íbúa látast á
aldursskeiðinu 50-59 ára, en 27 karlar um
sjötugs aldur. Berkladauðinn hefur því á
síðustu áratugum eigi aðeins lækkað til
muna, heldur færst frá hinum ungu yfir
til hinna eldri, og ber því sérstaklega að
hafa á þeim gát.
Þess ber að geta, að eftir að hin sér-
hæfða lyfjameðferð gegn sjúkdómnum
hefst upp úr 1950, breytist eðlilega mjög
hlutfallið milli skráðra sjúklinga og dá-
inna úr berklaveiki. Eftir það er ekki
hægt að telja fjölda dauðsfalla af völdum
sjúkdómsins neinn mælikvarða á útbreiðslu
hans né heldur á fjölda berklasjúklinga í
landinu. Sjúklingafjöldinn, svo og smitun-
artíðnin samkvæmt berklaprófum, verða
eftir þetta öruggastir mælikvarðar á tíðni
og útbreiðslu sjúkdómsins í landinu.
En fram til þess tíma að lyfjameðferðin
hefst fyrir alvöru (1952) virðist skrán-
ingartölum hinna berklaveiku og berkla-
dauðsföllunum yfirleitt bera vel saman (sjá
einkum myndir 10 og 14 og töflur 3 og 6).
3. Berklasmitun í Iandinu samkvæmt
berklaprófum.
Útbreiðsla berklaveikinnar á íslandi
verður eigi rakin langt aftur í tímann, ef
styðjast á við berklapróf eingöngu, enda
ekki tekið að nota það fyrr en á fyrsta
tugi 20. aldar (cutanpróf v. Pirquets 1907,
intracutanpróf Mantoux 1908). Skal hér
stuttlega reynt að gera grein fyrir helztu
rannsóknum á þessu sviði, sem gerðar hafa
verið hér á landi og getið er í heimildum:
Árin 1911 og 1916 var gert Pirquetspróf
á börnum barnaskóla Reykjavíkur. Voru
þau á aldrinum 7-14 ára, 322 að tölu og
talið að 30,5% þeirra væru jákvæð.31
Árið 1913 var gert berklapróf (Pirquet)
á 111 skólabörnum í Hafnarfirði, aldur
10-14 ára og 53 eða 47,7% talin jákvæð.91'1
Ennfremur um sama leyti á 14 börnum