Læknablaðið - 01.02.1976, Side 57
LÆKNABLAÐIÐ
33
.0 10 20 30 40 50 60 70 60 90 100
AGE IN YEARS
l'riitulcnci• of tubcrculout in/ection in riirul urciia aur•
vcycd, 1940-44.
Fig. 16.
allar í Hornafjarðarlæknishéraði, en til
kauptúna og kaupstaða öll önnur héruð og
héraðshlutar, er rannsóknirnar tóku til,
þ. e. Keflavík, Ólafsfjörður, Dalvík, Bol-
ungarvik, Hafnarfjörður, Vík í Mýrdal,
Húsavík, Eskifjörður, Akranes og Höfn í
Hornafirði (mynd 16 og mynd 17).
Nær berklapróf sveitafólks til 1773
manna, en í kauptúnum og kaupstöðum til
8923, eða alls til 10696 manns.101
A línuritunum kemur fram mikill mis-
munur á berklasmituninni. Á aldursskeið-
inu 10-19 ára eru 33,1% karla og 31,8%
kvenna í kauptúnum og kaupstöðum smit-
aðir, en 19,7% karla og 17,7% kvenna í
sveitum, á aldursskeiðinu 20-29 ára, 74,3%
karla og 68,1% kvenna í kauptúnum og
kaupstöðum, en 46,1% karla og 35,1%
kvenna i sveitum. Á aldursskeiðinu 40-49
ára er smitunin 94,2% hjá körlum í kaup-
túnum og kaupstöðum cg 85,7% hjá kon-
um, en í sveitum 71,8% hjá körlum og
59,1% hjá kcnum og fer smitun í sveitum
vart hærra en þetta.
Er þessi mismunur á smitun fólks í
sveitum annars vegar og kauptúnum og
kaupstöðum hins vegar því mjög mikill
og á aldrinum 10-60 ára svo mikill, að
hann er tölfræðilega marktækur.
Athyglisvert er einnig, að konur eru
AGE IN YEARS
Prcviitciirc n/ liibcrciilniia in/cctinii in villuuca iinil
Iiiiviih u/ thc II incilicul ilintricla aurvcycil, 19411—44.
Fig. 17.
yfirleitt síðar smitaðar en karlar. Er þessi
mismunur eigi mikill í kauptúnum og
kaupstöðum, en mjög áberandi í sveitum.
Munurinn kemur fyrst verulega í ljós í
sveitum eftir 15 ára aldur, en í kaupstöð-
um um 18-20 ára aldur. Verður hann
naumast skýrður á annan hátt eðlilegri en
þann, að vegna starfa sinna utanhúss og
ferðalaga verða karlmenn í meiri hættu
fyrir smitun en konur, sem dveljast meira
innanhúss og fást við heimilisstörf. Er þessi
mismunur því eðlilega meira áberandi í
sveitum en kaupstöðum. Að þessa smitun-
armismunar gætir fyrst eftir 15 ára aldur,
kemur af því, að fram til þess aldurs hfa
stúlkur og drengir yfirleitt við svipuð skil-
yrði. IJftir að skólaaldri sleppir koma
fram áhrif þau, er atvinnulífið hefur á
smitunina.
Til þess að vekja ennfremur athygli á
hinum mikla mismun, sem verið gat á
berklasmitun hinna ýmsu sveitahéraða
landsins á þessum árum, skal hér að lok-
um tilfærður sérstaklega árangur berkla-
prófsins í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði ár-
ið 1940 og Hofshreppi í Austur-Skaftafells-
sýslu (Öræfasveit) árið 1944, (sjá mynd
18 og mynd 19) Hinn mikli mismunur
berklasmitunar þessara tveggja hrepps-
félaga er mjög áberandi. Annar hreppur-