Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.1976, Page 59

Læknablaðið - 01.02.1976, Page 59
LÆKNABLAÐIÐ 35 dánarorsök 20 þeirra. Auk þess létust 2 úr lífhimnuþólgu af berklauppruna. Þá fundust bsrklar ,,í lungum eða kirtlum (eitlum) í 16 líkum, með vott um undan- farandi brjósthimnubólgu (fibrösa adher- ensa). Þar að auki voru 8 lík með afmörk- uð og innköpsluð infiltröt eða hnúta ost- myndaða, kalkmyndaða eða örbrígsl“.140 Má þannig telja víst, að 46 af hinum 111 krufðu hafi haft berklaveiki, eða 41,4%. Auk þess fundust menjar brjósthimnubólgu (af berklauppruna?) í 26 líkum. Hafa því vafasöm berklaeinkenni fundist í 72 lík- um af 111, eða 64,9%. Eigi er getið um aldur hinna krufðu, en líklegt má telja, að hér hafi yfirleitt verið um eldra fólk að ræða. Þá gerði N. Dungal 1031 líkskurð á ár- unum 1932-1944. Líkin komu frá eftir- greindum stofnunum: Landspítalanum, Geðveikrahælinu að Kleppi, Vífilsstaða- hæli og lögregluyfirvöldum (réttarlæknis- rannsóknir). Höfundur getur þess, að 243 lík, eða 23,7% af heildartölu hinna krufðu, hafi verið frá Vífilsstaðahæli. Á sama tima var berkladauðinn ekki nema 8,9% alls manndauðans. Er því ljóst, að eigi verða dregnar ályktanir beint frá heildartölu krufninganna um tíðni berkla- smitunar í landinu og hvenær menn smitist af berklaveiki. Hitt er nær lagi að dæma berklasmitunina aðeins eftir þeim krufn- ingum, sem eftir verða, er allar krufningar þeirra, er létust af völdum berklaveiki, hafa verið felldar burt. Það gerir Dungal, cg sést árangur þessara athugana af með- fylgjandi töflu hans: Table 8 Tuberculous lesions in persons not dying of Tuberculosis. (From N. Dungal’s article: Occurence and manifestations of tubercu- losis in Iceland). Age Thc. % Tbc. No Tbc. % 0-10 1 2,1 47 97,9 11-20 10 26,3 28 73,7 21-30 43 44,8 53 55,2 31-40 44 36,4 77 63,6 41-50 53 39,1 81 60,9 51-60 55 40,4 81 59,6 61-70 54 40,6 79 59,4 71-90 28 34,1 54 65,9 Út frá henni ályktar höfundur, að berkla- smitun sé fátíð í börnum, en aukist skyndi- lega eftir kynþroskaaldurinn og berkla- dauðinn sé langmestur á aldursskeiðinu 20- 30 ára. Um 20 ára aldur telur hann, að um 40% þjóðarinnar sé smituð, en að gera megi ráð fyrir, að 40-60% af fullorðnum smitist alls ekki. Sönnun þess, að talsvert af fólki nái háum aldri án þess að verða fyrir berklasmitun sé, að þau einkenni berklaveikinnar, sem einkum og tíðum fylgja fljótlega í far frumsmitunar, komi einnig fyrir hjá gömlu fólki. Dungal tekur sérstaklega fram, að við framkvæmd krufninganna hafi hann að- eins talið til berklaveiki þær vefjabreyting- ar, sem tvímælalaust báru séreinkenni þess sjúkdóms, svo sem greinilega berklahnúta og ost- eða kalkmyndanir o. s. frv. í öllum vafatilfellum skáru smásjárathuganif úr Samvextir eftir brjósthimnubólgu vorú því aðeins taldir berklakyns, að slíkar breyt- ingar fyndust í tilsvarandi lunga eða eitl- um.70 Séu hin 26 lík, sem Sæmundur Bjarn- héðinsson telur með menjar (samvexti) eft,- ir brjósthimnubólgu, ekki færð undir örugg berklaeinkenni, þar sem rannsókn hans var aðeins makroskopisk, virðist athugunum þessara höfunda bera allvel saman. BÓLUSETNING GEGN BERKLA- VEIKI (BCG) Á árunum 1947-48 var gerð áætlun um að taka hér upp kerfisbundna berklabólu- setningu. Hafði þetta reyndar verið í at- hugun frá því fyrir síðari heimsstyrjöld, en óframkvæmanlegt meðan samgöngu- bann v^ir við meginland Evrópu, þar sem bóluefnjð var eingöngu framleitt á Norður- löndum og í Frakklandi. Hófst bólusetn- ingin þegar árið 1945, er samgöngur opn- uðust á ný, en til að byrja með voru að- eins fáir tugir manna bólusettir. Hér ríkti eins og víðar á Norðurlöndum um þetta leyti mikill áhugi á berklabólusetning- unni,100 81 45 82 en frá Danmörku, Noregi og Svíþjóð voru i sambandi við UNICEF, WHO og heilbrigðisstjórnir ýmissa Evrópu- landa gerðir út hjálparleiðangrar lækna og hjúkrunarfólks til berklabólusetninga um flest öll lönd Evrópu, þar sem milljónir manna, einkum barna og unglinga, voru
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.