Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.1976, Page 60

Læknablaðið - 01.02.1976, Page 60
36 LÆKNABLAÐIÐ bólusettir. Nefndist fyrirtæki þetta Inter- nat. Tub. Campaign eða Joint Enterprise.4- Ýtti þetta undir frekari framkvæmd slíkrar bólusetningar hér á landi. Var ákveðið að bólusetja einkum aldursflokk- ana frá 12-29 ára, þar sem smitun var talin algengust á þessu aldursskeiði.101 í samráði við alla þá aðila, er að berkla- vörnum störfuðu hér, var hafist handa um bólusetninguna á árunum 1947-48 og mest bólusett á árinu 1949 (um 3000 manns). Einmitt um þetta leyti hafði sá, er þetta ritar, gott tækifæri til að kynnast fram- kvæimd berklabólusetningarinnar vegna starfs hans við berklarannsóknastofnun Sameinuðu þjóðanna (WHO, Tuberculosis Research Office) í Kaupmannahöfn á því ári. Varð vera hans þar meðal annars til þess, að fyrirhugað var að hefja samstarf milli þcssarar stofnunar og íslenzkra heil- brigðisyfirvalda um framkvæmd víðtækra berklarannsókna hérlendis, einkum tuberk- ulinprófa meðal BCG bólusetrtra og ekki bólusettra barna og unglinga og gera sam- anburð á berklasýkingartíðni þessara hópa. Vegna þessarar ráðagerðar var efnt til stofnunar allsherjarspjaldskrár allra lands- manna og henni komið á fót við Hagstofu íslands. Greiddu þessir aðilar sameigin- lega 17% stofnkostnaðar spjaldskrárinn- ar 01 32 103 En löngu áður en spjaldskránni var lckið var hins vegar horfið frá þessum samrannsóknum bæði vegna hins ört lækk- andi berkladauða og berklasmitunar hér á landinu og einnig af breyttum aðstæð- um berklarannsóknastofnunarinnar í Kaup- mannahöfn. Við nánari kynni af framkvæmd berkla- bólusetningarinnar í Evrópulöndum um bessar mundir vaknaði ennfremur hjá berklavfirlækni mikill efi á því, hvort al- menn berklabólusetning hér á landi væri jafnréttlacitanleg cg í öðrum Evrópulönd- um, bar sem styrjöldin hafði geysað. Til þess cfa láeu eftirtaldar ástæður: 1) Öruggt var talið, að bólusetningin ylli aðeins takmörkuðu (relativ) ónæmi um nokkurra eða al.lt að þriggja ára skeið og væri því á þeim tíma tæpast hætta á primær eða post-primær berklaveiki hjá nýsmituðu fólki. 2) Við bólusetninguna varð hinn bólusetti jákvæður við berkla- próf og var talið að það ástand héldist lengur en nægilegt mótefni til að varna sýkingu. 3) Það er staðreynd, að berkla- bólusetningin hefur öðru hvoru í för með rér fylgikvilla, sem baka hinum bólusettu óþægindi að minnsta kosti um nokkurt skeið (ígerð, eitlabólga o. f 1.), en örsjald- an mun hún þó hafa orsakað alvarlegan sjúkdóm. 4) Með bólusetningunni eyði- leggst gildi berklaprófsins til sjúkdóms- greiningar, þar sem hinn neikvæði, sem er berklabólusettur, verður jákvæður eða með vafasama svörun eftir bólusetninguna, og helst það ástand lengur en vissa um ónæmi sem áður greinir. Er hér var komið málum var ástandið hér á landi orðið talsvert frábrugðið því, sem var í Mið-Evrópulöndunum um þetta leyti. Berklasmitun hér á landi samkvæmt berklaprófi á börnum á barnaskólaaldri hafði á síðustu 15 árum lækkað mjög mikið cg ört og nýskráðum berklasjúkling- um fækkað stórlega. Svo virtist sem berkla- rannsóknirnar hér og aðrir þættir berkla- varna hefðu borið mikinn árangur. Með árlegum bsrklaprófum á skólabörnum til 13 ára aldurs og með heildarrannsóknum í mjög smituðum héruðum hafði nær því alltaf verið hægt að rekja sig að smitunar- unpsprettum cg koma sjúklingum í við- eigandi meðferð. Þessar staðreyndir ollu því, að sá, er þetta ritar, lagði til við samstarfsmenn sína mikla takmörkun á notkun berkla- bólusetningar hér á landi. Seint á árinu 1949 og eftir að hann hafði á ný á næsta ári starfað um nokkurra vikna skeið á berklarannsóknarstöð WHO í Höfn tók hann þá ákvörðun að hætta hinni altnennu berklabólusetningu,114 en berklabólusetja aðeins ákveðna hópa fólks, er væru sér- staklega í smitunai-hættu. Frá árinu 1950 voru þessir hópar sem hér greinir: 1. Fólk, sem er ósmitað berklaveiki, en dvelst eða býr í næsta umhverfi við sjúklinga með smitandi berklaveiki. 2. Lækna- og hjúkrunarnemar og starfs- fclk, er stundar sjúklinga eða annast b crklarannsóknir. 3. Stúdentar og annað námsfólk, sem ger- ir ráð fyrir að stunda nám við erlend-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.