Læknablaðið - 01.02.1976, Síða 62
38
LÆKNABLAÐiÐ
leitaði upplýsinga hjá, sig hafa orðið vara
við berklaveiki í nautgripum, en aðeins
í örfáum gripum og mjög góðkynja.81 48
Ályktar nefndin út frá svörum þessara
dýralækna, að „sama sem engin“ berkla-
veiki sé í nautgripum í landinu, nema þá
einna helsit á Norðurlandi".®8
Næsta ár, eða árið 1920, segir hinn norð-
lenski dýralæknir í ritgerð um rannsóknir
sínar, að 18% af nautgripum, sem berkla-
prófaðir voru, hafi reynst ,,sýktir“, en 4%
við kjötskoðun. Hann tekur þá fram eftir-
farandi: ,,Ég hefi sem sé ekki skoðað nógu
marga nautgripi, til þess að hægt sé að
kveða upp neinn óyggjandi dóm um það,
hve margir nautgripir séu sýktir á öllu
landinu“, og síðar: „en menn mega ekki
falla í stafi fyrir hinni háu hundraðstölu,
sem út kemur við tuberkulínrannsóknirn-
ar, þar eð allur hávaði nautgripanna hefur
aðeins berkla á mjög lágu stigi — nokkra
hnúta í einstaka sogkirtli“.82
í smáriti, er þessi dýralæknir ritaði um
alidýrasjúkdóma nokkrum árum áður lét.
hann þess getið, að hann hefði aldrei séð
júgurberkla hér á landi.83
í ársbyrjun árið 1946 fór berklayfir-
læknir bréflega fram á það við dýralækna
landsins s.vo og Rannsóknarstofu háskól-
ans við Barónsstíg að gefa upplýsingar
um tíðni berklasmitunar nautgripa hér á
landi svo sem þeim væri hún kunn. Frá
forstöðumanni Rannsóknarstofunnar bár-
ust þær upplýsingar, „að snemma á árinu
1933 hefði frá dýralækni borist innyfli úr
hænu frá Hafnarfirði, sem reyndust berkla-
sýkt og við ræktun fannst typ. avianus“
Ennfremur ,,að fram til 1. jan. 1946 hefðu
verið ræktaðir 827 stofnar af berklasýkl-
um. Enginn þeirra hefði verið typus
bovinus. Árið 1938 voru valdir úr 20
dysgoniskir stofnar, sem helst þóttu geta
komið til mála að stæðu nærri typus
bovinus. Þeim var dælt í kanínur, en hög-
uðu sér allir eins og typ. humanus. Hér
hefur því aldrei fundist typ. bovinus svo
vitað sé“.71
Guðmundur Gíslason læknir, sem um
áratuga skeið vann að sauðfjárveikivörn-
um, svarar svo: ,, . . . Fuglaberklar (avian
tuberculosis) er sú eina berklategund, sem
ég veit um að staðfest hafi verið í hús-
dýrum hér á landi með fullri vissu. Haust-
ið 1940 voru sendar hingað suður 12 kind-
ur af Melrakkasléttu til rannsóknar. Stór
hluti af sauðfénu á nokkrum bæjum þar
nyrðra hafði sýnt jákvæða útkomu við
húðprófanir með Johnini, sem er efni not-
að við húðpróf gert vegna garnaveiki í
sauðfé, án þess að vart hefði orðið við
nokkra garnaveikissýkingu í fénu. Þessar
12 kindur höfðu sýnt greinilegasta og
mesta útkomu við prófin. Þeim var eðlilega
slátrað og þrátt fyrir nákvæmar líffæra-
athuganir á öllum kindunum fundust engin
einkenni um garnaveiki í neinni þeirra.
Enda hefur ekki komið fram garnaveiki
enn á neinum þessara bæja, svo að vitað
sé. í öllum kindunum fundust hins vegar
sams konar afmarkaðar skemmdir í hengis-
eitlum, matbaunar- til rúsínu-stórir hnútar
meira og minna nekrotiskir og sums staðar
líkt og mjólk. Úr einum tókst að rækta
fuglaberkla“.
Guðmundur heldur áfram og segir:
„Virðast húðprófanir á sauðfé með avían-
tuberculini gefa líkan árangur og með
Johnini í leitinni að garnaveiki . . . “ Hann
telur, að frá 1942-45 hafi um 14 þús. fjár
verið prófað með avian tuberculini, en
„grunur um berklasmitun ekki komið fram
nema í örfáum tilfellum11.12 37 Telur hann
iíklegt, að þar hafi verið um smitun af
typus avianus að ræða.
Þá getur dýralæknir á Austfjörðum þess,
að hann hafi á árunum 1934-35 rannsakað
í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur, þar sem
hann starfaði þá, um 800 kýr með berkla-
prófi og fundið 3 jákvæðar. Aldrei orðið
var kliniskra einkenna hjá nautgripum og
aldrei séð júgurberkla.4
Þannig hefur typus avianus fundist í
sýktri hænu og einnig valdið smitun í sauð-
fé hér á landi, enda ekki óeðlilegt, þar
sem hænsni voru oft alin í fjárhúsum og
fjósum. Er því tilgátan um avian-smitun
meðal nautgripa sennileg, þó að ekki hafi
hún fengist staðfest hér með ræktun eða
dýratilraunum ennþá, þó að þekkt sé hún
erlendis.7 Má því telja líklegt, að naut-
griparannsóknir hins norðlenska læknis,
sem fyrr getur, hafi verið réttar, en naut-
gripirnir allir verið smitaðir af hænsnum
(typus avianus), eða jafnvel mannaberkl-
um (typ. human).87 87 Berklaveiki í hænsn-
um hefur síðar fundist bæði á Suðurlandi