Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.1976, Page 64

Læknablaðið - 01.02.1976, Page 64
40 LÆKNABLAÐIÐ við berklapróf að hafa þessar afbrigðilegu svaranir annarra mycobacteria mjög í huga. UM ÚTRÝMINGU BERKLAVEIKINNAR ÚR LANDINU Á aldarfjórðungsafmæli Sambands ís- lenzkra berklasjúklinga árið 1963 fórust þáverandi landlækni, sem fór einnig með starf berklayfirlæknis, þannig orð í ávarpi því, er hann flutti af þessu tilefni: „Á um það bil 30 árum hefur berkladauðinn lækkað um 99 af hundraði og er það meiri, en þó einkum hraðari árangur, en annars staðar þekkist. Skráðum berklasjúklingum hefur fækkað mjög, en þó ekki að sama skapi. Aðeins lítill hluti sjúkrarúma berkla- hælanna er nú notaður fyrir berklasjúkl- inga, og á öðrum sjúkrastofnunum dveljast þeir örsjaldan. Nýsmitun meðal barna og unglinga er orðin fátíð, miðað við það sem áður gerðist, enda fækkar smitandi berklasjúklingum ár frá ári. En þrátt fyrir allan þennan góða árangur tel ég mér enn sem fyrr skylt að bera fram varnaðar- orð. Smitunar- og sýkingarhætta er enn fyrir hendi. Hún þarf ekki að minnka að sama skapi sem smitunaruppsprettum fækkar, því að jöfnum höndum eykst þá fjöldi þeirra, sem næmir eru fyrir veik- inni. Hver uppspretta getur því valdið margföldum usla á við það, sem áður var. Andvaraleysi í berklavörnum þjóðarinnar gæti því haft hinar alvarlegustu afleiðing- ar. Höfum ávallt hugfast, að berklaveik- inni hefur ekki verið að fullu útrýmt, meðan einstaklingar eru til í landinu, sem smitast hafa af berklaveiki.“88 í dag, 12 árum síðar, eru orð þessi í fullu gildi. I Evrópu, einkum norðan- og vestan- verðri, svo og í Norður-Ameríku hefur meira eða minna skipulögð barátta gegn berklaveiki verið háð hartnær í eina öld og borið mikinn árangur einkum á siðustu áratugum. Má þannig telja, að í dag sé út- breiðsla og tíðni sjúkdómsins hvergi minni en í þessum löndum. I öðru lagi koma svo lönd í suður- og austurhluta Evrópu svo og Austurlönd nær og önnur arabaríki ásamt ýmsum öðrum löndum heims. Á mynd 20 má sjá dánar- tölur af völdum berklaveiki (allar tegund- ir) í Evrópulöndum miðað við 100 þús. íbúa árið 1970.140 Þó að berkladauðinn sé eigi lengur beinn mælikvarði á útbreiðslu sjúkdómsins, heldur miklu fremur á með- ferð hans, má af myndinni ráða, að út- breiðsla veikinnar í Suður- og Austur- Evrópulöndum hlýtur að vera allveruleg og sums staðar mikil. í þriðja lagi er þó ástandið tvímæla- laust langverst hjá þróunarþjóðum Asíu og Afríku, þar sem sjúkdómurinn hefur náð geysilegri útbreiðslu á vissum land- svæðum og jafnvel í heilum löndum. Má þannig í stórum dráttum greina þrjú mismunandi útbreiðslustig sjúkdómsins í heiminum. Á árinu 1964 taldi sérfræðinefnd Al- þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar um berkla- veiki, að sjúkdómurinn væri mikilsverðasti smitsjúkdómur veraldar.149 Árið 1974 áætl- ar sama nefnd, að um 15-20 milljónir manna séu með smitandi berklaveiki í heiminum og að á sumum svæðum þróun- arlandanna sé árleg tíðni sjúkdómsins þ. e. nýir sjúklingar 200-350 miðað við 100 þús. íbúa. Á slíkum stöðum má gera ráð fyrir, að heildarfjöldi smitandi sjúklinga sé tvö- falt hærri, þ. e. um 400-700 miðað við 100 þús. íbúa.150 Eftirtektarvert er, að meðal þeirra þjóða, sem bezt eru á vegi staddar í þessu efni, þ. e. Norður- og Vestur-Evrópa svo og U.S.A. og Kanada, telja ýmsir ábyrgir að- ilar, að sjúkdómnum hafi verið útrýmt og láta hafa slíkt eftir sér í áhrifamiklum fjölmiðlum. Hér á landi hefur þessa því miður einnig orðið vart. Er hér um mik- inn misskilning að ræða. Það mun taka marga áratugi og jafnvel mannsaldra að útrýma berklaveikinni. Þó að þjóðir kom- ist á það stig, að sjúkdómurinn teljist eigi lengur heilsufarslegt vandamál, eins og t. d. er nú að verða hér á landi, getur verið enn langt í útrýmingu hans. Með þeim tíðu og miklu flugsamgöng- um, sem nú eru um allan heim, má telja víst, að sjúkdómurinn berist land úr landi. Hvert eitt land og þá sérstaklega þau, sem lengst hafa náð í að losa sig við hann, verða að vera við því búin að taka á móti nýrri smitun frá nýjum sjúklingum, sem dvalist hafa erlendis, smitast þar og sýkst. Út- rýming smitandi sjúkdóma sem berklaveiki tekst því aldrei til fulls fyrr en allar þjóð-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.