Læknablaðið - 01.02.1976, Blaðsíða 64
40
LÆKNABLAÐIÐ
við berklapróf að hafa þessar afbrigðilegu
svaranir annarra mycobacteria mjög í huga.
UM ÚTRÝMINGU BERKLAVEIKINNAR
ÚR LANDINU
Á aldarfjórðungsafmæli Sambands ís-
lenzkra berklasjúklinga árið 1963 fórust
þáverandi landlækni, sem fór einnig með
starf berklayfirlæknis, þannig orð í ávarpi
því, er hann flutti af þessu tilefni: „Á
um það bil 30 árum hefur berkladauðinn
lækkað um 99 af hundraði og er það meiri,
en þó einkum hraðari árangur, en annars
staðar þekkist. Skráðum berklasjúklingum
hefur fækkað mjög, en þó ekki að sama
skapi. Aðeins lítill hluti sjúkrarúma berkla-
hælanna er nú notaður fyrir berklasjúkl-
inga, og á öðrum sjúkrastofnunum dveljast
þeir örsjaldan. Nýsmitun meðal barna og
unglinga er orðin fátíð, miðað við það
sem áður gerðist, enda fækkar smitandi
berklasjúklingum ár frá ári. En þrátt fyrir
allan þennan góða árangur tel ég mér enn
sem fyrr skylt að bera fram varnaðar-
orð. Smitunar- og sýkingarhætta er enn
fyrir hendi. Hún þarf ekki að minnka að
sama skapi sem smitunaruppsprettum
fækkar, því að jöfnum höndum eykst þá
fjöldi þeirra, sem næmir eru fyrir veik-
inni. Hver uppspretta getur því valdið
margföldum usla á við það, sem áður var.
Andvaraleysi í berklavörnum þjóðarinnar
gæti því haft hinar alvarlegustu afleiðing-
ar. Höfum ávallt hugfast, að berklaveik-
inni hefur ekki verið að fullu útrýmt,
meðan einstaklingar eru til í landinu, sem
smitast hafa af berklaveiki.“88
í dag, 12 árum síðar, eru orð þessi í fullu
gildi.
I Evrópu, einkum norðan- og vestan-
verðri, svo og í Norður-Ameríku hefur
meira eða minna skipulögð barátta gegn
berklaveiki verið háð hartnær í eina öld
og borið mikinn árangur einkum á siðustu
áratugum. Má þannig telja, að í dag sé út-
breiðsla og tíðni sjúkdómsins hvergi minni
en í þessum löndum.
I öðru lagi koma svo lönd í suður- og
austurhluta Evrópu svo og Austurlönd nær
og önnur arabaríki ásamt ýmsum öðrum
löndum heims. Á mynd 20 má sjá dánar-
tölur af völdum berklaveiki (allar tegund-
ir) í Evrópulöndum miðað við 100 þús.
íbúa árið 1970.140 Þó að berkladauðinn sé
eigi lengur beinn mælikvarði á útbreiðslu
sjúkdómsins, heldur miklu fremur á með-
ferð hans, má af myndinni ráða, að út-
breiðsla veikinnar í Suður- og Austur-
Evrópulöndum hlýtur að vera allveruleg
og sums staðar mikil.
í þriðja lagi er þó ástandið tvímæla-
laust langverst hjá þróunarþjóðum Asíu
og Afríku, þar sem sjúkdómurinn hefur
náð geysilegri útbreiðslu á vissum land-
svæðum og jafnvel í heilum löndum.
Má þannig í stórum dráttum greina þrjú
mismunandi útbreiðslustig sjúkdómsins í
heiminum.
Á árinu 1964 taldi sérfræðinefnd Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar um berkla-
veiki, að sjúkdómurinn væri mikilsverðasti
smitsjúkdómur veraldar.149 Árið 1974 áætl-
ar sama nefnd, að um 15-20 milljónir
manna séu með smitandi berklaveiki í
heiminum og að á sumum svæðum þróun-
arlandanna sé árleg tíðni sjúkdómsins þ. e.
nýir sjúklingar 200-350 miðað við 100 þús.
íbúa. Á slíkum stöðum má gera ráð fyrir,
að heildarfjöldi smitandi sjúklinga sé tvö-
falt hærri, þ. e. um 400-700 miðað við 100
þús. íbúa.150
Eftirtektarvert er, að meðal þeirra þjóða,
sem bezt eru á vegi staddar í þessu efni,
þ. e. Norður- og Vestur-Evrópa svo og
U.S.A. og Kanada, telja ýmsir ábyrgir að-
ilar, að sjúkdómnum hafi verið útrýmt
og láta hafa slíkt eftir sér í áhrifamiklum
fjölmiðlum. Hér á landi hefur þessa því
miður einnig orðið vart. Er hér um mik-
inn misskilning að ræða. Það mun taka
marga áratugi og jafnvel mannsaldra að
útrýma berklaveikinni. Þó að þjóðir kom-
ist á það stig, að sjúkdómurinn teljist eigi
lengur heilsufarslegt vandamál, eins og
t. d. er nú að verða hér á landi, getur verið
enn langt í útrýmingu hans.
Með þeim tíðu og miklu flugsamgöng-
um, sem nú eru um allan heim, má telja
víst, að sjúkdómurinn berist land úr landi.
Hvert eitt land og þá sérstaklega þau, sem
lengst hafa náð í að losa sig við hann, verða
að vera við því búin að taka á móti nýrri
smitun frá nýjum sjúklingum, sem dvalist
hafa erlendis, smitast þar og sýkst. Út-
rýming smitandi sjúkdóma sem berklaveiki
tekst því aldrei til fulls fyrr en allar þjóð-