Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.1976, Page 79

Læknablaðið - 01.02.1976, Page 79
LÆKNABLAÐIÐ 43 meta svörunina. Aðeins æft starfslið ætti að annast framkvæmd prófsins. Þar sem komið hefur í ljós á síðari ár- um, að bæði læknar og hjúkrunarkonur, sem nýverið hafa lokið prófi, kunna eigi full skil á framkvæmd berklaprófsins, verður að teljast nauðsynlegt að bæði læknadeild háskólans og hjúkrunarskólinn sjái svo um, að fullkomin fræðsla fáist fyrir þessa nemendur um framkvæmd og þýðingu þessa mikilsverða prófs (sjá inn- legg milli bls. 32 og 33). Um 2. lið: Á síðari árum hefur það færst mjög í vöxt, einkum í þróunarlöndum Afríku og Asíu, þar sem skortur er á sjúkrarými, að lyfjameðferð berklasjúkl- inga væri svo til eingöngu látin fara fram utan sjúkrahúsa, á göngudeildum. Eigi skal ráðið til þessa hér á landi að svo stöddu, enda hafa nýir, smitandi sjúklingar eigi verið svo margir undanfarin ár, að slíkt teljist nauðsynlegt. Sjúkling með smitandi lungnaberkla skal þegar í stað einangra á sjúkrahúsi og hefja sérhæfða lyfjameðferð þar hið fyrsta. Mikið er undir því komið, að lyfjameð- ferðin sé rétt valin í byrjun og henni hald- ið stöðugt áfram, unz hún ber árangur. Eins og nú er háttað notkun berklalyfja, er talið árangursrikast að nota strax í byrjun þrjár mismunandi tegundir berkla- lyfja svo berklasýklarnir nái eigi að að- laða sig lyfjunum og verða ónæmir gegn þeim. Nauðsynlegt er að halda lyfjunum fast að sjúklingunum, einkum fyrst í stað, en meðferð tekur nú venjulegast 18-24 mánuði. Ný lyf kunna ef til vill að stytta þennan tíma. Komi auka- eða eiturverk- anir í ljós má reyna að sniðganga þau lyf, er því valda og velja önnur í þeirra stað. Eftir þriggja til fjögurra mánaða með- ferð eru langflestir sjúklinganna lausir við smit, og sjúkrahúsvist tæpast nauð- synleg úr því. Áherslu verður þó að leggja á stöðugt áframhald meðferðar og fylgjast vel með því að lyfin séu tekin samkvæmt fyrirmælum. Sé vafi á slíku, má með þvagrannsóknum hjá sjúklingnum sann- færast um lyfjanotkunina. Þar sem vanda skal til berklavarna og meðferðar sjúkdómsins, verður að teljast nauðsynlegt að hafa sjúklingana einangr- aða, meðan þeir eru smitandi, vegna smit- hættunnar og ennfremur að þeir séu í sjúkrahúsi, meðan fylgst er með fyrstu viðbrögðum þeirra við lyf jameðferðinni. Sé henni vel fylgt eftir, einkum framan af meðferðartímanum, ber flestum stofnunum saman um, að 95-98% sjúklinga nái full- um bata. Annars er nú unnið svo mjög að rann- sókn nýrra berklalyfja, að gera má ráð fyrir að ný lyf, áhrifameiri og með minni eiturverkanir komi fram, áður en langt um líður. Um 3. lið: Nauðsynlegt er, að heilsu- gæelustöðvar fylgist vel með hinum berkla- veika fyrstu árin, rannsaki og láti rækta úr sputum, framkvæmi blóðrannsóknir og taki sjúklinginn af berklaskrá, þegar hann telst eigi lengur virkur eða hefur lokið meðferð. Röntgenmyndun er nauðsynleg öðru hvoru, einkum fyrst í stað. Aðal- atriðið er, að öllum heilsugæslustöðvum sé ljóst, að þeim ber að fylgjast með heilsu- fari sjúklingsins og séu ábyrgar fyrir réttri skráningu hans um hver áramót. Um 4. lið: í kaflanum um bólusetningu gegn berklaveiki hér að framan er getið nokkurra starfshópa eða annarra hópa fólks, sem talið er að séu i meiri berkla- smithættu en almennt gerist. Þar sem nú er reiknað með að BCG bólusetning veiti um 80% hinna bólusettu vörn gegn sjúkdómnum og að þessara varna gæiti að minnsta kosti í 10 ár eftir bólusetninguna,151 þykir rétt að halda áfram að bólusetja einstaklinga fyrr- greindra hópa, sem telja má að fremur öðrum geti orðið fyrir berklasmitun. Er því nauðsynlegt, að stjórn berklavarnanna hér sjái um, að alltaf sé á boðstólum BCG bóluefni af bestu tegund ásamt tuberkúlíni, sem heilsugæslustöðvar geta notfært sér, þegar þess er þörf. Ennfremur að annast, að allir þeir, sem þannig eru berklabólu- settir, verði skráðir sérstaklega i heima- héraði sínu og einnig í aðalberklabólu- setningarskrá rikisins á Berklavarnastöð- inni í Reykjavík. Um 5. lið: Gera verður ráð fyrir því, að berklaprófum á börnum í aldursflokkun- um 6-13 ára verði haldið áfram í sem flestum læknisumdæmum minnst árlega. Með því að takmarka mjög notkun BCG
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.