Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.06.1976, Side 26

Læknablaðið - 01.06.1976, Side 26
98 LÆKNABLAÐIÐ um niðurstöður vefjarannsókna né þá með- ferð, sem af rannsókninni hlauzt. Til glöggvunar þeim, sem þurfa að vinna úr niðurstöðum frumuskoðananna, skal nú farið nokkrum orðum um flokkun sýnanna, og er hér stuðzt við grein, sem Guðmundur Jóhannesson, yfirlæknir Leitarstöðvar B, reit í III. tbl. Læknanemans í nóvember 1967. Sú flokkun er í nokkru frábrugðin hinni upphaflegu flokkun Papanicolaou’s, sem skiptir frumusýnum niður í 5 aðal- flokka eftir því hversu langt gengnar frumubreytingarnar voru, — þ. e. I-V. Neg. fl. II: eðlilegt frumusýni. Active: í þessum flokki er yfirleitt um að ræða atypi í yfirborðsfrumum, sem oft stafar af sýkingu og sem gjarnan hverfa við meðferð. II. R: hér er um að ræða yfirborðs-atypi og ráðlagt að endurtaka sýni eftir 3-6 mánuði og meðhöndla infection, sé hún fyrir hendi. Fl. III: sterkur grunur um illkynja breyt- ingar. Fl. IV: illkynja frumur. Framkvæmd skoðana var á þann veg, að hin ýmsu krabbameinsfélög á Austfjörð- um höfðu veg og vanda af því að boða konur til skoðunar á hinum ýmsu stöðum, auk útvegunar starfsfólks til aðstoðar við skoðunina sjálfa. Læknir frá Leitarstöð B, ásamt hjúkrunarkonu, ferðaðist um á milli staðanna, og voru sýni send til leitarstöðv- arinnar svo fljótt sem unnt var eftir að þau höfðu verið tekin. Yfirleitt var aðstaða til skoðunar góð þó ekki hafi það verið einhlítt. Ekki voru skoðunarbekkir til taks á öllum stöðum og þurfti þá að flytja þá á milli. Ánægjulegast var, hve mikil og almenn þátttaka var, en fyrir kom, að allar boðaðar konur í ákveðn- um hreppum mættu til skoðunar. Tafla I sýnir fjölda skoðaðra kvenna á hverjum stað, en þær voru árið 1970 1677 og árið 1972 1623, eða alls 3300 konur. Eftirtektarvert er, að hér er um sama fjölda að ræða bæði árin, með nokkrum frávikum Tafla I Fjöldi skoðaðra kvenna á hverjum stað. 1970 1972 Egilsstaðir . .. 380 289 Seyðisfjörður . .. 128 126 Fáskrúðsfjörður . .. 148 160 Eskifjörður . .. 223 227 Neskaupstaður . .. 264 295 Kópasker 73 64 Raufarhöfn 69 46 Þórshöfn 74 76 Vopnafjörður 97 82 Djúpivogur 72 79 Höfn í Hornafirði . . . . .. 149 179 1677 1623 Alls 3300 Tafla II Niðurstaða gyn.-skoðunar árið 1972 Ery- thro- plakia Cystocele Rectocele Pro- lapsus uteri Tumor uteri Tumor ovarii Polypus cerv. Tricho- moni- asis Egilsstaðir 24 26 2 5 3 3 6 34 Seyðisfjörður . . .. 19 14 1 2 2 2 0 11 Fáskrúðsfjörður ... 13 12 1 1 4 3 0 17 Eskifjörður 31 14 3 2 8 0 3 23 Neskaupstaður . .. 16 15 6 1 2 0 3 24 Kópasker 7 4 0 0 1 0 0 7 Raufarhöfn 6 6 1 0 1 0 0 0 Þórshöfn 5 6 0 0 1 0 0 8 Vopnafjörður . . .. 9 4 1 0 0 1 4 14 Höfn 33 2 0 3 6 4 6 34 163 103 15 14 28 13 22 172

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.