Læknablaðið - 01.06.1976, Side 56
116
LÆKNABLAÐIÐ
læknir við sjúkrahúsið í Klakksvík. Ný-
lega kom sérfræðingur í háls-, nef- og
eyrnalækningum, og á geðveikraspítalan-
um er sérfræðingur í geð- og taugasjúk
dómum. Sem stendur er enginn fastráðinn
augnlæknir í Færeyjum, en danskir augn-
læknar koma nokkrum sinnum á ári tii
Færeyja. Húðsjúkdómasérfræðingur er
enginn, en landlæknir Færeyinga, Hans D.
Joensen, er nú í sérnámi í þeirri grein.
Hvað snertir hjartasjúkdóma er hægt
að veita alla algenga þjónustu, t. d. að
setja upp gangráð til bráðabirgða, en
ígræðslu til frambúðar verður að fram-
kvæma í Danmörku. Lungnaskurðlækning-
ar og heilaskurðlækningar verður einnig
að framkvæma í Danmörku, og þangað
eru önnur sértilfelli send. f ráði er að
fá til starfa sérfræðing í lungnasjúkdóm-
um sem jafnframt sinni berklatilfellum.
Auk sjúkrahússins í Þórshöfn eru
sjúkrahús í Klakksvík á Norðurey og á
Tvöroyri á Suðurey.
BREYTINGAR FRAMUNDAN
Ný löggjöf um læknaskipan er í burðar-
liðnum og þar er m. a. gert ráð fyrir að
ráðnir verði sjö nýir „kommune“-læknar,
er starfi saman tveir og tveir. Byggja á
heilsugæslustöðvar, þar sem aðsetur verð-
ur fyrir ljósmæður og líklega einnig hjúkr-
unarkonur. Þá er verið að skipuleggja
heimahjúkrun, sem mun tengjast starf-
semi heilsugæzlustöðvanna. Byggð hafa
verið hjúkrunarheimili fyrir aldraða, en
þær framkvæmdir hafa verið nokkuð um-
deildar, vegna hins mikla kostnaðar. í
Færeyjum, eins og svo víða annars staðar,
er ekki lengur pláss fyrir gamla fólkið á
heimilunum.
Spurt var um sjúkdóma sem herjuðu
fremur á Færeyinga en aðrar nágranna-
þjóðir, og sagði Oli, að fýlasótt (Psitta
eosis) hefði verið algeng í Færeyjum áður
fyrr, en nú heyrir þessi sjúkdómur til
undantekninga. Á síðustu tveim árum varð
umtalsverð aukning kynsjúkdóma, bæði
lekandi og sárasótt, en í flestum tilfellum
mátti rekja sýkinguna til Grænlands. Oli
taldi að læknar hefðu nú náð valdi á
þessum sjúkdómum.
AUKIN SAMSKIPTI ÆSKILEG
í lokin var spjallað um möguleika á
auknum samskiptum íslenzkra og fær-
eyskra lækna. Á árunum 1953-1963 störf-
uðu nokkrir íslenzkir læknar í Færeyjunu
en á síðustu árum hefur dregið úr þess-
um samskiptum.
í vor var haldið norrænt röntgenlækna-
þing í Danmörku og sótti það af hálfu
íslenzkra lækna Ásmundur Brekkan, sem
bauð þá Ola Michelsen að sitja aðalfund
LÍ. Færeyskir læknar hafa sótt norræn
læknaþing í Reykjavík.
Það myndi efla samskiptin ef t. d. fær-
eyskir læknar sæktu héraðslæknanám-
skeiðin, sem haldin eru hér á haustin og
íslenzkir læknar sæktu hliðstæð námskeið
hjá Færeyingum á vorin. íslenzkir svæf-
ingalæknar voru í sumar í afleysingum 1
Færeyjum og gagnkvæmar afleysingar
gætu aukið mjög kynni og samskipti. Þá
taldi Oli gagnlegt fyrir færeyska lækna
að fylgjast náið með uppbyggingu heilsu-
gæzlustöðva hérlendis, þar sem þeir eiga
við svipuð vandamál að stríða og eru að
leggja út á svipaðar brautir og við.
S. J.