Læknablaðið - 01.04.1979, Side 26
72
LÆKNABLAÐIÐ
þ.e. hvort þannig fáist nokkurn tíma þekk-
ing á raunveruleika fyrirbæranna. Einnig
er oft vafamál hvort sértekningin sé fram-
kvæmanleg í raun, einkum þegar um er
að ræða fyrirbæri sem skilgreind eru með
tilvísun til gilda og verðmæta.
Eitt dæmi vildi ég nefna sem sýnir okk-
ur á ótvíræðan hátt hversu mikil fásinna
það er að telja alla gildisdóma vera um
smekksatriði. Setningin: „Hér er fagurt
þegar vel veiðist", sem virðist gott dæmi
um afstæði staðhæfinga um fegurð, þarf
alls ekki að vera afstæð í þeim skilningi
að hún tjái einungis hverfult hugarástand
veiðimannsins. Það er ekki eðlismunur
heldur stigsmunur á því að geta ekki num-
ið fegurð staða vegna þess að ekki veiðist,
og þess að geta ekki mælt fjarlægð milli
staða vegna stórhríðar. Veiðileysi og stór-
hríð hindra hvor á sinn hátt að komist sé
að ákveðnum staðreyndum, en í báðum
tilfellum vita menn að við ákveðnar að-
stæður má komast að þeim.
Með þessu er ég ekki að segja að fegurð
og fjarlægð séu staðreyndir í nákvæmlega
sama skilningi, né að aðferðir við að
kanna þær séu sambærilegar (þó má beita
ýmis konar mælingartækni í fagurfræði).
Ég er einungis að vara við því að útskúfa
staðhæfingum um verðmæti og gildi úr
vísindum með þeim rökum að þær séu al-
gerlega afstæðar. Sú skoðun er röng. Gild-
isdóma má að öllum jafnaði hrekja eða
rökstyðja eins og aðra dóma um stað-
reyndir.
8. UM MIKILVÆGI VERÐMÆTADÓMA
f VÍSINDUM, OG UM GREINARMUN
HLUTLEYSIS OG HLUTLÆGIS
Útskúfun verðmætadóma úr vísindum
villir mönnum sýn á vísindin sjálf, eðli
staðhæfinga þeirra og kenninga. Menn
missa sjónar á þeirri mikilvægu staðreynd
að vísindamenn hljóta sífellt að leggja mat
á aðferðir sínar og viðmiðanir og bera
fram gildisdóma um fræði sín, rannsóknir
og niðurstöður. Slíkir matsdómar um gildi
vísindanna sjálfra eru óhjákvæmilega
jafnframt dómar um viðfangsefni vísind-
anna og fela í sér mat á hlutunum í ljósi
þeirrar þekkingar sem fengin er á þeim.
Þetta á bersýnilega við öll hagnýt vísindi
(og hvaða vísindi hafa ekki hugsanlega
eitthvert hagnýtt gildi?). í slíkum vísind-
um er sífelld víxlverkun milli markmiða
og leiða, þ.e. á milli þess árangurs sem
talið er æskilegt að ná og leiðanna eða
tækjanna sem við höfum til að ná mark-
miðum okkar. Hér er í rauninni ókleift
að greina fyllilega á milli gildisdóma og
annarra staðreyndadóma vegna þess að
dómurinn um markmið (um það sem
„á að vera“) er óraunhæfur ef hann
hvílir ekki á þekkingu á því sem er,
þ.e. á því sem okkur er unnt að gera — en
um leið er þekking okkar á því sem er
fengin undir sjónarhorni þess sem við
stefnum að. Þetta er fyllilega augljóst á
sviði hagnýtra vísinda: Þekking okkar á
því hvernig unnt er að búa til góðan bjór
er háð hugmyndum okkar um það hvernig
góður bjór á að vera — og hugmyndir okk-
ar um góðan bjór eru háðar reynslu okkar
af ýmsum bjórtegundum.
Ég hygg að sama eigi einnig við í svo-
kölluðum hreinum vísindum. Þar ríkja
ákveðnar matshugmyndir um það hvers
konar þekkingar við viljum afla, hug-
myndir sem eru ómissandi viðmiðanir um
vinnubröeð, tilgátusmíð, sönnunaraðferðir
o.s.frv. Vilji maður t.d. afla þekkingar á
almennum lögmálum um vensl tiltekinna
fyrirbæra, þá ráðast vinnubrögðin af þess-
ari fyrirfram hugmynd og síðan leita
menn að því sem er reglubundið í hreyf-
ingum eða hátterni viðkomandi fyrirbæra
og reyna að flokka þá eiginleika sem þeim
eru sameiginlegir. En um leið horfa menn
framhjá sérkennum hvers einstaks raun-
verulegs fyrirbæris. Þekkingin sem afla
verður er ekki þekking á einstökum raun-
verulegum fyrirbærum, heldur þekking á
sérteknum venslum og eiginleikum fyrir-
bæra af þessari eða hinni tegundinni.
Breytileg sérkenni hinna raunverulegu
fyrirbæra verða útundan, séreðli þeirra
hvers um sig sleymist.
Af þessu má sjá að ákveðnar gildishug-
myndir í vísindum geta skipt öllu um við-
gang þeirra og þróun. Það er ekki unnt að
færa sönnur á að menn eigi að leita al-
mennra lögmála, fremur en að reyna að
kynnast sérkennum raunverulegra fyrir-
bæra — en slík ákvörðun er tekin, eða á
sér öllu fremur stað, með hliðsjón af
tvenns konar staðreyndum: staðreyndum