Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Síða 6
Rannveig Rist, forstjóri álversins í Straumsvík, ætlar að reyna að semja við Rafiðnaðarsambandið og ASÍ vegna uppsagnar þriggja manna á síðasta ári. Ástæðan er sú að samþykkt var á fundi starfsmanna Alcan að fá ASÍ til þess að kanna forsendur fyrir því að grípa til lagalegra að­ gerða vegna uppsagn­ anna. Þá eru einnig kosningar í nánd um stækkun álvers­ ins í Hafnarfirði. „Stefnunni var frestað vegna við­ ræðna við forstjóra Alcan,“ segir Guðmundur Gunnarsson, formað­ ur Rafiðnaðarsambands Íslands. Sambandið hélt fund ásamt ASÍ í vikunni þar sem tekin var ákvörð­ un um að fresta afgreiðslu stefnu vegna meintra ólögmætra uppsagna þriggja starfsmanna álversins. Ástæðan er skyndilegur sátta­ vilji Alcan. Enginn sáttavilji Rétt fyrir jól ritar Guð­ mundur á heimasíðu RSÍ að hugsanlega sé Alcan að reyna að koma sér hjá því að standa við samnings­ ákvæði um flýtt starfslok en þau réttindi öðlast starfs­ menn eftir þrjátíu ára starfsaldur hjá fyrir­ tækinu. Alls hefur níu einstaklingum verið sagt upp hjá fyr­ irtækinu sem eiga það allir sameig­ inlegt að hafa mikla starfsreynslu að baki. Guðmundur segir að RSÍ hafi margoft reynt að semja um frið við Alcan en fyrirtækið hafi ávallt slegið á útrétta sáttarhönd starfsmanna. Kosningar í nánd „Ég get ekkert sagt um það,“ seg­ ir Guðmundur aðspurður hvort hinn skyndilegi sáttavilji sé tengdur kom­ andi kosningum um stækkun álvers­ ins í Hafnarfirði. Álverið hefur kappkostað að bæta ímynd sína undanfarið og hef­ ur til að mynda boðið Hafn­ firðingum á tónleika, gef­ ið geisladiska á hvert heimili og boðið þeim á handboltaleik. Uppá­ tækin hafa mælst mis­ vel fyrir hjá andstæð­ ingum stækkunar. Þá er von á niðurstöðum úr skoðanakönn­ un um afstöðu til stækkunar sem álverið lét Gallup Capacent gera fyrir sig og verða þær birtar á næstu dögum. Vilja uppreisn æru „Við viljum bara uppreisn æru, það eru ekki peningarnir sem skipta öllu,“ segir Hans Hafsteinsson, einn þriggja starfsmanna sem voru reknir, að­ spurður um fundinn. Hann segir að það sé eðlilegt að fyrirtækið reyni að koma sér hjá málssókn og þá sérstak­ lega rétt fyrir jafnmikilvægar kosning­ ar og stækkun álversins er fyrir Alcan. Hann segir málið búið að vera andstyggilegt og vill að æra hans, sem hann vill meina að hafi verið svert, verði hreinsuð. Hrannar Pétursson, upp­ lýsingafulltrúi Alcan, segist ekki nógu kunnugur samn­ ingaferli Rannveigar Rist og verkalýðsforkólfanna til þess að svara spurningum sem það varða. Samningaviðræður eru hafnar á milli forstjóra Alcan Rannveigar Rist og forsvars- manna Rafiðnaðarsambands Íslands og ASÍ. Alcan hefur hingað til ekki viljað rétta fram sáttarhönd að sögn Guðmundar Gunnarssonar, formanns RSÍ. Alcan vill semja frið Litháinn Povilas Akelaítis var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavík­ ur á föstudaginn fyrir að smygla tveimur og hálfu kílói af amfeta­ míni til landsins. Fíkniefnin faldi hann í drifskafti BMW­bifreið­ ar. Þau fundust þegar fíkniefna­ hundar runnu á lyktina. Povilas var að koma frá Þýskalandi en hann neitaði að gefa upp sam­ verkamenn sína. Dæmdur fyrir dóp Lús hefur skotið upp kollinum á Hornafirði. Mikið hefur verið um lús í skólum sveitarfélagsins í vetur og nú í byrjun árs hefur faraldur blossað upp. Skólahjúkr­ unarfræðingur í grunnskóla á Hornafirði segir að mikilvægt sé að foreldrar og aðrir séu mjög vel vakandi fyrir þessum vágesti og nauðsynlegt sé að kemba hár allra á heimilinu því lúsin þurfi ekki endilega að vera bundin við skólana. Núna í vikunni stefna grunnskólar Hornafjarðar á sam­ eiginlegt átak í öllum skólun­ um og vonandi næst þá að ljúka þessu máli. Lúsafaraldur á Hornafirði föstudagur 12. janúar 20076 Fréttir DV Umhverfisráðuneytið hefur ákveðið verð og kvóta á hreindýra­ veiðileyfum fyrir árið 2007. Leyft verður að veiða 1.137 dýr að þessu sinni, 577 kýr og 560 tarfa. Þetta eru 228 fleiri skepnur en leyft var að veiða í fyrra. Dýrast verður að skjóta tarf á svæðum eitt og tvö, í Vopnafjarðarhreppi, Fljótsdals­ hreppi, Jökuldal og Skriðdal. Þar kostar veiðileyfið 110 þúsund krónur. Kýr á sömu svæðum kost­ ar 60 þúsund krónur. Hækkun á leyfum milli ára er óveruleg. Hreindýrstarfur á 110 þúsund Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Herbjörn Sigmarsson í átján mánaða fangelsi og Selmu Björk Gunnarsdóttur í níu mán­ aða fangelsi fyrir fíkniefnabrot og hylmingu. Þau höfðu und­ ir höndum tæpt kíló af amfeta­ míni, þrjú af hassi og rúm fimmtíu grömm af kókaíni. Auk þess voru þau með lítil­ ræði af marijúana og e­töflum. Dómur Selmu er skilorðsbund­ inn til þriggja ára og gæsluvarð­ hald í júlí dregst frá dómi Her­ bjarnar. Fíkniefnapar dæmt ValuR gREttisson blaðamaður skrifar: valur@dv.is InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is „Við viljum bara uppreisn æru, það eru ekki peningarnir sem skipta öllu. Eðlilega reynir fyrirtækið að koma sér hjá málssókn rétt fyrir jafnmikilvægar kosningar og stækkun álversins er fyrir Alcan.“ Álverið í straumsvík standa í ímyndarbaráttu fyrir kosningar um stækkun álversins. Rannveig Rist forstjóri alcan vildi skyndilega semja við þrjá starfsmenn sem sagt var upp á síðasta ári. guðmundur gunnars- son formaður rafiðnaðar- sambandsins segir að fyrirhugaðri stefnu hafi verið frestað vegna sáttaumleitana. Stjórnmálamenn standa við orð sín Það er eins fráleitt og hugsast get­ ur að borgarstjórarnir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, sem segist enn vera sami gamli góði Villi, og Björn Ingi Hrafnsson, sem kannski er áfram sá sem hann var, hafi hækkað gjöld á hinu og þessu sem borgin selur eða veitir okkur almúganum. Það er ekki þolandi að hlusta á þær raddir sem finna að því þó að verð þjónustunnar sé ekki það sama og það var og þeir sem eru að gera veður út af þessu ættu bara að hætta því. Borgarstjórarnir lofuðu víst báð­ ir að hækka ekki neitt áður en þeir voru kosnir og auðvitað hafa þeir staðið við það, þannig eru jú stjórn­ málamenn. Þeir standa við það sem þeir segja. Sjáiði bara Sturlu Böðvars­ son. Hann lofaði Héðinsfjarðargöng­ um og þau verða boruð þótt þörfin sé nánast engin, enda hvers vegna að vera að velta þörfinni fyrir sér. Þetta snýst ekkert um það, allt snýst um orð stjórnmálamanna og núna um orð Sturlu. Þau eru einu sinni jú það traust sem við þekkjum. Þá trú okkar má ekki skemma. Það vita borgar­ stjórarnir báðir. Þeir lofuðu að hækka ekki þetta og ekki hitt og við það hafa þeir staðið. Vissulega hafa orðið breytingar á því sem stjórn­ málamenn kalla gjald­ skrár. Yngri borgarstjór­ inn er sagður hafa eytt öllum vafa lýðsins, sem vissulega þarf að borga meira fyrir mestallt. Það er hreinn og klár útúrsnúningur að kalla breytingarn­ ar hækkanir. Björn Ingi á að hafa, og það fullkomlega réttilega, bent á að breytingar á gjaldskrám væru aðlög­ un að breyttu verðlagi, ekki hækkun. Aðlögun er allt annað en verðhækk­ anir og fyrir velviljann eiga borgar­ stjórarnir skilið hrós og það mikið. Það er allt annað að búa í borg sem hækkar ekki verð, heldur færir það bara að breyttu verðlagi. Kannski er hægt með einstöku tuði að kom­ ast að því að munurinn sé í raun ekki mikill og í raun skipti jafnvel engu máli fyrir borgarann hvort breyting­ in heiti verðhækkun eða aðlögun að breyttu verðlagi. Borgarstjórarn­ ir hafa komist að því að grunngildin verða að halda, gildin sem við nánast byggjum líf okkar og festu á, það er að áfram verði hægt að treysta orðum stjórnmálamanna. Þau verða áfram að vera sú festa og það öryggi sem við höfum vanist. Þess vegna er ekk­ ert hækkað, eins og lofað var, heldur gerðar breytingar. Takk fyrir það borgarstjórar. dagfari
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.