Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Side 10
föstudagur 12. janúar 200710 Fréttir DV
KormáKur Bragason
blaðamaður skrifar: kormakur@dv.is
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
silvía nótt æfir sig fyrir Eurovision-keppnina:
Nóttin á níu krónur
Geisladiskurinn með Silvíu Nótt,
Ógesslega töff, er kominn á útsölu
hjá BT. Samkvæmt auglýsingunni
nemur verðlækkunin 99,9% og kost-
ar hljómdiskurinn nú 9 krónur. Svo
mikið var að gera á útsölunni að ekki
var unnt að ná tali af sölumönnum
til að vita hvort diskurinn væri upp-
seldur. Þaðan af síður var hægt að fá
viðbrögð drottningarinnar við verð-
lækkuninni, því á símsvara henn-
ar segist hún vera orðin svo „ógess-
lega fræg skiluru, að ég þarf að fá mér
fokking leyninúmer, skiluru“. Silvía
Nótt bendir þeim sem þurfa að ná
tali af henni á að það sé ekki hægt þar
sem hún sé orðin svo fræg og bend-
ir á heimasíðu sína, silvianight.com.
Sú síða er hins vegar ekki lengur virk.
Silvía Nótt telur sig greinilega ekki í
útrýmingarhættu þrátt fyrir útrým-
ingarsölu BT og svo virðist sem hún
stefni á þátttöku í Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva á nýjan leik.
Það staðfestir hún eiginlega á sím-
svara sínum þar sem hún segir: „Ég
er að æfa mig í evrópsku fyrir júróvís-
jón.“ Á bak við rödd Silvíu Nætur má
heyra lagið Diva í flutningi Dönu frá
Ísrael. annakristine@dv.is
Samkvæmt núgildandi reglum
númer 3 og 13 um bann við opin-
berri birtingu efnis, meðal annars á
netinu, hefði átt að vísa Silvíu Nótt úr
keppni í fyrra. Í reglu 23 áskilur Sjón-
varpið sér þó rétt til að breyta reglun-
um og túlka þær að vild sinni. Hvergi
er þó tekið fram að sú regla gildi um-
fram aðrar. Í mörgum þátttökulönd-
um gilda engar slíkar reglur um upp-
runaland höfundar.
„Þetta er alveg klárt samkvæmt
reglunum, höfundarnir voru út-
lendir ásamt einum Íslendingi. Það
er verið að gera klárt svið og lýsingu
á Seljavegi 2 þar sem keppnin mun
fara fram. Æfingar hefjast í vikunni
en þetta er allt að verða klárt,“ segir
Rafn Rafnsson hjá Base Camp sem
hefur umsjón með keppninni.
Eiríkur Hauksson aftur með
Meðal söngvara sem DV hefur
heimildir fyrir að syngi lög í keppn-
inni eru Davíð Smári, Heiða, Bríet
Sunna, öll fræg úr Idol, Heiða í
Unun, Lísa í Ísafold, Matti í Pöp-
unum og síðast en ekki síst Eiríkur
Hauksson sem fyrstur keppti fyrir
Ísland ásamt Pálma Gunnarssyni
og Helgu Möller með Gleðibanka
Magnúsar Eiríkssonar árið 1986.
afkastamesti textahöfundur
Eurovision
Átta laga forkeppni fer fram
dagana 20. janúar, 27. janúar og 3.
febrúar og velja landsmenn með
símakosningu þau lög sem komast
í níu laga úrslitakeppni 17. febrú-
ar. Samkvæmt reglum keppninn-
ar áttu flytjendur að vera klárir 20.
desember en eitthvað hefur gengið
erfiðlega að fá flytjendur. Upptök-
ur á undirleik og söng hafa staðið
yfir linnulaust í stúdíó Sýrlandi og
á fleiri stöðum undanfarna daga.
Athygli vekur hve margir eiga fleiri
en eitt lag og texta. Fiðluleikarinn
Roland Hartwell, sem átti tvö lög í
fyrra, á þrjú lög í ár. Torfi Ólafsson
á einnig þrjú lög. Trausti Bjarna-
son á tvö lög líkt og Sveinn Rún-
ar Sigurðsson, en ótvíræður texta-
kóngur er Kristján Hreinsson með
átta texta. Lagahöfundar mega eiga
þrjú lög að hámarki en engar regl-
ur eru um hversu marga texta höf-
undar mega eiga enda mun textum
oft hafa verið skipt út eftir að lög-
in komust áfram og þau breytt um
nafn.
kormakur@dv.is
Tuttugu og fjögur lög hafa nú verið valin til að taka þátt í undankeppni Söngvakeppni
Sjónvarpsins fyrir Eurovision 2007. RÚV hefur sett skarpari reglur um söngvakeppn-
ina. Eiríkur Hauksson aftur með. Kristján Hreinsson með átta texta í keppninni.
Páll Óskar fær ekki að
vera með í Eurovision
Eiríkur Hauksson rokkarinn mætir
aftur í Eurovision af fullum krafti.
Kristján Hreinsson skerjafjarðarskáld-
ið er vafalaust Evrópumethafi í textagerð
fyrir Eurovision. Átta textar í ár.
Uppákoman með lag Silvíu Nóttar í fyrra hefur orðið til að skerpt
hefur verið á reglum keppninnar. Innlegg Páls Óskars í keppnina
var fellt út vegna reglu 2 um að höfundar megi ekki vera af öðru
þjóðerni nema þeir hafi íslenskt ríkisfang eða hafi búið á íslandi
1. október 2006 og fram yfir Eurovision 2007.
Ekið á gamla
konu
Samkvæmt lögreglunni á Sel-
fossi var ekið á konu á sjötugs-
aldri sem var að fara yfir götu
við verslunina Nóatún á Sel-
fossi. Konan slasaðist á fótum og
mjöðm og var flutt á Heilbrigðis-
stofnun Suðurlands til aðhlynn-
ingar. Telur lögreglan að snjó-
koma og skafrenningur hafi gert
það að verkum að óhappið átti
sér stað.
Björgunarsveitir
í viðbragðsstöðu
Höfuðborgarlögreglan tjáði
DV að í gær, fimmtudag, hefðu
verið skráðir tæplega þrjátíu
árekstrar frá hádegi til klukk-
an fimm um eftirmiðdaginn en
engin teljandi slys urðu á mönn-
um. Ofankoma og hálka eru
talin hafa valdið óhöppunum
og voru björgunarsveitir í við-
bragðsstöðu í gærkvöld vegna
slæmrar færðar og skafrennings.
Páll Óskar framlag hans
komst ekki í söngva-
keppnina vegna þess að
tveir af höfundunum
voru útlendingar
dV Mynd Hari.
Eyjamenn lausir
við þjófa
Samkvæmt dagbókarfærslum
lögreglunnar í Vestmannaeyjum
voru einungis skráð þrjú innbrot
allt árið 2006. Eitt innbrot var í
heimahús, annað á snyrtistofu
og var snyrtivörum úr útstill-
ingarglugga stolið og það þriðja
var innbrot í rútu í Herjólfsdal
á meðan á Þjóðhátíð stóð. Er
því ljóst að Eyjamenn geta verið
rólegir þrátt fyrir innbrotaöldu á
höfuðborgarsvæðinu.
Golf fyrir
gamlingja
Bæjarráð Árborgar samþykkti
að vísa tillögu um að festa kaup
á mínígolfvelli til starfshóps um
uppbygginu íþróttamannvirkja.
Það voru eldri borgarar í Árborg
sem komu með beiðnina og svo
virðist sem aldraðir hafi nokkurn
áhuga á þessari vinsælu íþrótt.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokks vildi
vísa erindinu til íþrótta- og tóm-
stundanefndar og að hentugri
staðsetning yrði fundin fyrir
golfvöllinn. Því var hafnað af
meirihluta bæjarráðs.
Ógesslega töff?
silvía nótt æfir sig nú í evrópsku fyrir
næstu júróvísjón.