Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Page 32
föstudagur 12. janúar 200732 Sport DV
í LandsbankadeiLd
karLa árið 2010
12 Lið
Ársþing KSÍ verður haldið 10.
febrúar og fyrir þinginu liggja
róttækar breytingar á móta-
fyrirkomulagi á Íslandsmót-
inu. Stjórn KSÍ samþykkti á
fundi sínum í desember tillögu
sem mun hafa í för með sér
fjölgun í efstu deildum karla
og kvenna og í 2. deild karla.
Á fundi stjórnar KSÍ 27. desem-
ber var samþykkt að leggja fram
tillögur á ársþingi KSÍ um fjölgun
liða í Landsbankadeildum karla og
kvenna og í 2. deild karla.
Eins og fyrirkomulagið er í dag
eru tíu lið í Landsbankadeild karla
og 2. deild karla en ef tillagan verð-
ur samþykkt mun þeim fjölga í
tólf árið 2008. Í Landsbankadeild
kvenna eru átta lið en þau verða
níu ef tillagan gengur í gegn.
Ef tillagan verður samþykkt mun
flutningur liða á milli deilda í lok
sumars verða þessi:
Lið nr. 10 í Landsbankadeild flyst
í 1. deild.
Lið nr. 1, 2 og 3 í 1. deild flytjast í
Landsbankadeild.
Lið nr. 12 í 1. deild flyst í 2. deild.
Lið nr. 1, 2 og 3 í 2. deild flytjast í
1. deild.
Lið nr. 10 í 2. deild flyst í 3. deild.
Lið nr. 1, 2, 3, 4 og 5 í 3. deild flytj-
ast í 2. deild (Aukaleik þarf til að
ákvarða lið nr. 5).
Of langt að bíða til 2010
KSÍ kom með tillögu í sept-
ember á síðasta ári þess efnis að
fjölga umferðum í Landsbanka-
deild karla árið 2010 úr tveimur
í þrjár. Sú tillaga fól í sér að knatt-
spyrnuhúsin yrðu nýtt í einhverj-
um tilfellum. Sú tillaga var rædd
á formannafundi í nóvember og
Geir Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri KSÍ, sagði að þessi nýja tillaga
hefði fengið betri hljómgrunn.
„Tillagan var lögð fyrir á for-
mannafundi og eftir viðræður við
félögin var ljóst að mönnum fannst
í fyrsta lagi of langt að bíða til ársins
2010. Þau töldu rétt að fjölga liðum
strax, það var góð samstaða um það
og ég held að stjórnin hafi einfald-
lega brugðist við þeim skoðunum.
Eins og staðan er í dag, þá er
þriðja umferðin innandyra ekki
á borðinu. Menn báru fram ýms-
ar ástæður fyrir því, til dæmis eru
knattspyrnuhús ekki í öllum lands-
hlutum og fleira,“ sagði Geir.
Tillagan ekki fullmótuð til
framtíðar
Breytingin á kvennadeildinni,
að fjölga liðum úr átta níu, mun
taka gildi strax í sumar ef hún verð-
ur samþykkt en ekki hefur verið
ákveðið hvort fjöldi liða verður sá
sami næstu ár.
Ástæðan fyrir þessari tillögu
tengist kærumáli ÍR og Þórs/KA,
þar sem niðurstöðum dómstóla
bar ekki saman, og ákvað KSÍ því að
bregða á það ráð að fjölga liðum og
að ÍR tæki aukasætið í deildinni.
„Stjórnin mun ákveða á næst-
unni hvernig tillagan verður mótuð
til framtíðar. Þessi tillaga verð-
ur mótuð um miðjan mánuðinn,“
sagði Geir en ársþing KSÍ verður
haldið 10. febrúar.
Tillaga um ný lög KSÍ
Öll félög hafa rétt til að leggja
fram tillögur á ársþingi KSÍ. Tillög-
urnar verða að berast til laga- og
leikreglnanefndar sem fer yfir þær
og sér til þess að þær séu tæknilega
í lagi.
Geir sagði að þegar væru komn-
ar fram nokkrar tillögur sem tekn-
ar verða fyrir á þinginu. „Það verð-
ur lögð fram tillaga um ný lög KSÍ
sem unnið hefur verið að undan-
farin tvö ár, að kröfu Alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins og Knatt-
spyrnusambands Evrópu. Öll
aðildarfélög eru skuldbundin til að
uppfæra lög sín.
Jafnframt þarf að vinna í öllum
reglugerðum Knattspyrnusam-
bandsins, meðal annars í samn-
inga- og félagaskiptamálum leik-
manna, sem er alltaf stórmál,“
sagði Geir.
Atkvæðaréttur félaga skiptist
þannig að lið sem leika í Lands-
bankadeild á komandi ári hafa
fjögur atkvæði, lið í 1. deild hafa
þrjú atkvæði, lið í 2. deild hafa tvö
atkvæði og lið í 3. deild hafa eitt at-
kvæði. dagur@dv.is
Liðum fjölgar tillaga er um að fjölga
liðum í Landsbankadeild karla í tólf.
Eitt lið fellur árið 2008 fram tryggði sér
sæti í efstu deild karla í fyrra en eitt lið fellur
úr þeirri deild ef tillagan nær fram að ganga.
íþróttamoLar
Beckham aftur á Old Trafford?
samkvæmt óstaðfestum
heimildum hefur nike
tekið frá milljónir
búninga á lager og
prentað Beckham aftan á
þá. Þetta ýtir undir þær
sögusagnir að Beckham
snúi aftur „heim“ á Old
trafford og endurnýi
kynni sín við sir alex ferguson.
Beckham hefur ekki enn gefið real
Madrid svar um framtíð sína en hann
kom til þeirra frá Manchester united
og kostaði 25 milljónir punda.
samningur Beckhams rennur út í
sumar og hefur hann verið orðaður
við fjölmörg lið. nú virðist sem hann
ætli sér að enda ferilinn þar sem hann
byrjaði.
Þýska landsliðið í
Nike?
nike-samsteypan
hefur boðið þýska
landsliðinu í
knattspyrnu háar
fjárhæðir fyrir að klæðast nike-
treyjum í framtíðinni. Þýska landsliðið
hefur ávallt klæðst adidas en nike
ætlar að svara harðnandi samkeppni
með því að stela landsliðinu frá
adidas. Kemur þetta í kjölfarið á boði
adidas í búninga Barcelona.
1,7 milljarðar króna fyrir þrjú ár
sádiarabíska félagið al
Ittihad vill fá brasilíska
sóknarmanninn
ronaldo hjá real
Madrid til liðsins.
sádarnir fengu nú
nýverið Luis figo,
fyrrverandi samherja
ronaldos, til liðsins og vilja fá aðra
ofurstjörnu. nægir peningar eru til hjá
liðinu og ekki eru mörg evrópsk lið
tilbúin að borga jafnháa upphæð og
al Ittihad fyrir mann sem er kominn
yfir þrítugt. talið er að sádarnir muni
kaupa ronaldo á rúmlega 700
milljónir króna og að hann geti fengið
allt að 1,7 milljarða í laun fyrir þrjú ár.
Smith orðinn stjóri Rangers
skoska knattspyrnu-
sambandið ætlar í
mál við Walter
smith og glasgow
rangers en rangers
réð smith sem knattspyrnustjóra á
miðvikudaginn. smith er sagður hafa
rofið samning og að rangers hafi ekki
haft neinn rétt á að tala við hann á
meðan hann var með samning við
sambandið. smith skrifaði undir
þriggja ára samning, en aðstoðarmað-
ur hans verður gamla rangers-hetjan
ally McCoist.
Newcastle fær leikmann Chelsea
glenn roeder fram-
kvæmdastjóri newcastle
vill fá Lassana diarra
leikmann Chelsea að láni
til liðsins út tímabilið.
diarra hefur aðeins leikið
11 leiki með Chelsea
síðan hann kom til liðsins
frá Le Havre árið 2005.
Hann átti að vera í byrjunarliðinu
gegn Maccelsfield í enska bikarnum
en mætti of seint á liðsfund og frank
Lampard var látinn spila.