Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Side 38
föstudagur 12. janúar 200738 Heilsa & menntun DV Heilsa&menntun Páll Ásgeir Ásgeirsson, blaða-maður og álitsgjafi á Stöð 2 með meiru, er í fantaformi, enda hleypur hann fimm kílómetra fjórum til fimm sinnum í viku. Hann veigrar sér þó við að tala fyrir hönd hlaupara yfirleitt þó að hann hafi árum saman notað skokk og hlaup sér til heilsubótar. Páll Ásgeir byrjaði að skokka fyr- ir alvöru árið 1991, þegar hann var 35 ára, en þá hafði hann ekki hreyft sig að ráði frá því hann eltist við roll- urnar í sveitinni í gamla daga. Hann er meira en fús til að ráð- leggja fólki hvernig það kemur sér í gang því hann álítur skokkið allra meina bót. „Það er mikilvægt í fyrstu að fara út og skokka eins hægt og maður getur,“ segir Páll Ásgeir. „Ef fólk er ekki í mjög góðu formi þá labbar það hratt og skokkar inni á milli. Algengustu mistökin sem fólk gerir er að byrja of hratt. Þetta snýst í raun og veru um að fara nógu hægt svo fólk nái því að geta skokk- að samfellt tvo til þrjá kílómetra. Það er alveg út í hött að setja sér töluleg mörk, miklu betra að fara út og skokka eða ganga rösklega í 20 til 30 mínútur og ef það kemur í ljós að þetta er hreyfing sem fólki fellur og hefur gaman af þá kemur afgangur- inn af sjálfu sér.“ Jafnt fyrir líkamann og sálina Páll Ásgeir fer hringinn sinn fjór- um til fimm sinnum í viku og hleyp- ur þá fimm og hálfan kílómetra. Hann fer oftast sömu leiðina og læt- ur engin veður stöðva sig. „Þetta getur verið erfitt á vet- urna ef það er hált, hálkan er óvinur hlauparanna. Ef maður hins vegar velur sér leiðir þar sem er mikil um- ferð þá er skafið og sandað snemma dags. Ég hleyp oft einn en stundum er konan mín með mér og nei, ég er aldrei með neitt í eyrunum,“ svar- ar hann aðspurður. „Á sama hátt og bílstjórum er bannað að tala í síma á keyrslu finnst mér að hlaupurum og hjólreiðamönnum ætti að vera bannað að hafa eitthvað í eyrun- um. Það er stórhættulegt og ég hef oft lent í því á mínum bíl að einhver hleypur eða hjólar í veg fyrir mig sem er alveg í eigin heimi.“ Páll Ásgeir notar hlaupin ekki bara til að þjálfa líkamann heldur líka hugann og nokkrir hlutir eru á bannlista. „Það er bannað að líta á klukkuna,“ segir hann. „Það sem er eftirsóknarvert við skokkið er ástandið sem maður kemst í. Mað- ur kúplar sig frá öllu daglegu amstri og nærir sig jafnt andlega og líkam- lega. Ávinningurinn er að mér líð- ur á allan hátt vel. Rannsóknir sýna að þeim sem eru í góðu formi geng- ur betur í vinnu og einkalífi. Öll lík- amsstarfsemi er í góðu lagi, fólk er betur fókuserað og þar af leiðandi betri starfskraftur, á betra með að einbeita sér og skipuleggja tím- ann. Það fylgir því ákveðin ögun að hlaupa, sem skilar sér bókstaflega í öllu sem maður gerir.“ Ódýrt sport Páll Ásgeir leggur áherslu á að hlaupið sé sett inn í daglega rút- ínu og aldrei látið mæta afgangi. Þá bendir hann á að stofnkostnaður sé ekki hár, eða um það bil 17 til 20 þúsund krónur. „Lykilatriði er að eiga góða hlaupaskó. Nú standa yfir útsöl- ur og hægt er að fá góða skó á 12 til 14 þúsund krónur. Það má alls ekki nískast með skóna. Svo er alveg hægt að hlaupa í gömlum íþrótta- buxum og þunnum vindjakka, en íþróttagalli kostar ekki nema 6 til 7 þúsund. Hanskar eru nauðsynleg- ir og húfa, því 70% af öllu hitatapi fer út um höfuð og háls. Þá er nauð- synlegt að vera með endurskins- merki. Þessi búnaður dugir í mörg ár, það er hægt að hlaupa 1.000 til 1.400 kílómetra á skónum og gall- inn kemst alltaf aftur í tísku.“ Tilgangslaust nema að hætta að reykja Páll Ásgeir segir að þeir sem eru slæmir í hnjám eigi að sjálfsögðu ekki að hlaupa en langar gönguferðir skili sömu þjálfun og hlaup. Kostirnir við þessa líkamsþjálfun sé svo ekki síst að útiveran stæli fólk, því það sé hollt að láta náttúruna atast í sér. „Líkamlega skilar þetta sama árangri og að fara á líkamsrækt- arstöð, en bónusinn er útiveran. Möguleikarnir eru endalausir, það má velja á milli þess að fara í fjöru eða í skógarferð upp í Heiðmörk og svo eru fjallgöngur frábær líkams- rækt sem ég stunda jafnframt hlaup- inu. Reykvíkingar eiga fjall við bæjar- dyrnar sem heitir Esja og þjónustan við göngumenn þar er orðin svo góð að mér liggur við að segja að það sé aumingjaskapur að nýta sér ekki þá þjónustu. Þægilegur stígur liggur alla leið upp á topp en það er ekk- ert nauðsynlegt að fara alla leið, fólk fer bara eins hátt og það treystir sér til. Það tekur ekki nema um það bil eina og hálfa klukkustund að komast á toppinn. Mig langar líka að benda á að fyrir þá sem eru að telja hitaein- ingar er kuldi hollur. Maður brennir fullt af hitaeiningum við það eitt að vera úti í kuldanum. Svo er það rús- ínan í pylsuendanum.“ Hann horfir sorgmæddur á blaðamann teyga að sér tóbaksreyk af ömurlegri nautn. „Allar hugmyndir um heilsurækt og bætt líferni eru tilgangslausar fyrir þá sem reykja. Þeir eru dauð- ans matur hvort sem er. Ef fólk vill stíga eitt skref í átt að bættri heilsu verður það að hætta að reykja. Reyk- ingamenn tuskast í gegnum þetta nokkrum sinnum en gefast alltaf upp,“ segir Páll Ásgeir sem sjálfur reykti í mörg ár en er löngu hættur. „Það var ekki auðvelt. Ég trúi því að það sé jafnerfitt að hætta að reykja og að venja sig af heróíni. En það er samt eina leiðin. Og hann hristir góðlátlega höfuðið yfir varnarræðu reykingamannsins. „Sjálfsblekking,“ segir hann og skokkar hress af stað út í vetrarkuldann. Skokkið og útiveran Páll Ásgeir Ásgeirsson Hleypur að minnsta kosti fimm sinnum í viku og gengur á fjöll þess á milli. – allra meina bót fulleldað, tilbúið á 5 mín. Heilsubuff ÁN MSG „Ef fólk er ekki í mjög góðu formi þá labbar það hratt og skokkar inni á milli. Algengustu mistök- in sem fólk gerir er að byrja of hratt.“ Við veljum hvernig við bregðumst við aðstæðum. Það er ein kenning- anna bak við sjö þrepa þjálfun Rope Yoga sem hefur farið sigurför um heiminn. Upphafsmaður Rope Yoga Guðni Gunnarsson er fluttur heim eftir áratuga búsetu í Los Angeles og hefur nú ásamt konu sinni Guðlaugu Pétursdóttur opnað fyrsta Rope Yoga-setrið á Íslandi. Það er til húsa í Listhúsinu í Laugardal, að Engja- teigi 17-19, og innan tíðar verður þar einnig opnaður veitingastaður, sem býður eingöngu upp á hollustu- fæði. Meðal þess sem reglubundnar æfingar í Rope Yoga gera er að efla brennslu og flæði, þróa grunnstyrk kviðvöðva og auka súrefnisupptöku. Rope Yoga-kerfið tekur beint á gagn- kvæmum tengslum líkama og hugar, enda segir Guðni sjálfur: „Heilsa er einungis ástand hugar og líkama og hefur ekkert með hnignun og sjúk- dóma að gera.“ annakristine@dv.is Kerfi vellíðunar og þjálfunar DV mynd Stefán

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.