Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Qupperneq 40
Heilsa & menntun DV
Heilsa&menntun
Guðrún Árnadóttir, sálfræðingur
og sérfræðingur í hugrænni atferlis-
meðferð, hefur undanfarið ár haldin
námskeið fyrir þá sem finna fyrir dep-
urð, streitu og kvíða. Námskeiðið heit-
ir Betri færni – Betri líðan - Námskeið
í hugrænni atferlismeðferð, og hefur
skilað góðum árangri. Á námskeiðinu
er fólki kennt að vera meðvitað um
áhrif hugsunar á líðan sína og hegðun
því að sögn Guðrúnar skiptir hugsun-
in og hvernig við bregðumst við henni
miklu um það hvernig okkur líður.
„Áherslan á námskeiðinu er að
kenna fólki að hugsa á raunsæjan
hátt og að bera ábyrgð á eigin líð-
an,“ segir Guðrún. „Við lærum af fyrri
reynslu hvernig við eigum að hugsa
við ákveðnar aðstæður, en oft hjálpa
þessar hugsanir lítið og þá er mikil-
vægt að endurmeta þær og fá nýja
sýn. Á námskeiðinu fær fólk í hendur
ýmis verkfæri sem það getur þjálfað
sig í að nota til að stjórna betur eigin
líðan. Þetta er ekki meðferð sem seg-
ir fólki að hugsa bara jákvætt, því þeg-
ar okkur líður illa getur það oft verið
erfitt.“
Áhrifarík aðferð og
fyrirbyggjandi
Guðrún segir rannsóknir sýna að
hugræn atferlismeðferð gagnist vel
við margvíslegum vanda, svo sem
kvíðaröskun, depurð, þunglyndi,
fælni, áfengis- og fíkniefnavanda, lé-
legri sjálfsmynd, átröskun, krónískum
verkjum og fleira.
„Námskeiðið byggir á fræðslu
og heimaverkefnum þar sem unn-
ið er með kvíða, streitu, depurð og
þunglyndi, áhrif hugsunar, hugsana-
skekkjur og fleira því tengt, áhyggj-
ur og vandamálalausnir og hvernig
við breytum eigin hegðun og sjálfs-
mynd. Þá kenni ég fólki sjálfsstyrk-
ingu og hvernig það setur sér mark-
mið og fleira.
Þeim sem ná að nýta sér aðferðina
fer að líða mun betur, þeir falla síður
aftur í sama farið og aðferðin er auk
þess fyrirbyggjandi.”
Víða hægt að fá hjálp
Námskeið Guðrúnar stendur yfir í
sex vikur og mætt er einu sinni í viku
í tvær og hálfa klukkustund í senn.
Hún segir að fleiri standi fyrir nám-
skeiðum í hugrænni atferlismeð-
ferð, til dæmis séu geðsvið Landspít-
ala-háskólasjúkrahúss og nokkrar
heilsugæslur með tilraunaverkefni í
gangi þar sem boðið er upp á nám-
skeið við kvíða og þunglyndi. Þá seg-
ir hún Reykjalund hafa unnið gott
starf á þessu sviði.
Guðrún segir fólk á öllum aldri og
af öllum stigum þjóðfélagsins sækja
námskeið hennar.
„Á heildina litið er þetta þó fólk
sem vill láta sér líða betur, en einnig
fólk sem er að glíma við mikinn kvíða,
þunglyndi og streitu. Enn sem komið
er eru konur duglegri að sækja nám-
skeiðin en þátttaka karla hefur auk-
ist smám saman, sem mér finnst afar
gleðilegt.“
Eigin fordómar oft verstir
Guðrún segir nokkuð algengt að
fólk veigri sér við að biðja um hjálp
ef því líður illa, þó að því finnist eðli-
legt að leita sér hjálpar ef um líkamleg
mein er að ræða.
„Það hefur samt sem betur fer
dregið úr þekkingarleysi og jafnvel
fordómum á þessu sviði og fólk er
alltaf að verða meðvitaðra um mik-
ilvægi þess að því líði vel á sálinni.
Sumu fólki þykir auðveldara að leita
sér hjálpar við líkamlegum kvillum
en þeim sálrænu. En það eru einn-
ig aðrar ástæður fyrir því að fólk bið-
ur ekki um aðstoð. Það telur vand-
ann tímabundinn, sem hann reyndar
stundum er, eða það álítur hann vera
vegna eigin veikleika eða persónu-
leika sem ekkert sé hægt að gera við.
Sumir finna fyrir mikilli skömm og
sektarkennd yfir því að geta ekki ráð-
ið sjálfir við sín vandamál og svo geta
eigin fordómar og fordómar annarra
hindrað fólk í að leita sér hjálpar.“
Því fyrr sem hjálpar er leitað því
betra
Guðrún segir að kvíði og streita
innan ákveðinna marka séu eðlileg og
hjálpi okkur að takast á við daglegt líf
og þau verkefni sem því fylgja.
„Ef ástandið er hins vegar langvar-
andi og ekki er tekist á við spennuna
getur það komið niður á andlegri og
líkamlegri líðan okkar og hegðun
til lengri tíma. Við sinnum þá síður
grunnþörfum okkar eins og matar-
æði, svefni, hvíld og hreyfingu eða fé-
lagslegri þörf.
Það þarf auðvitað að meta hverju
sinni til hvaða ráða skal grípa,“ segir
Guðrún. „Oft nægir að tala við góð-
an vin eða ættingja þegar vandinn er
ekki mikill. En þetta er eins og með
annað, ef fólki líður illa og finnur að
það þarf aðstoð er oftast best að gera
það sem fyrst, annars vex vandinn og
þá getur tekið lengri tíma að vinna úr
honum.“
Fólk brennur fyrr upp í hraða
nútímans
Fólk sem upplifir kulnun í starfi
og finnst það hafa brunnið út leitar
í auknum mæli til Guðrúnar.
„Mér finnst þetta vera að auk-
ast, ekki síst hjá yngra fólki,“ segir
hún. „Það eru gerðar miklar kröfur
til ungs fólks í dag, samkeppnin er
hörð og áreitin mörg og svo gerir fólk
sjálft óraunhæfar kröfur til sjálfs sín
og gefur sér ekki tíma til að staldra
við og skoða stöðuna. Góðu frétt-
irnar eru hins vegar þær að hægt er
að ná góðum árangri í að bæta líð-
an sína og fólk sem hefur sótt nám-
skeið sem þessi lærir að takast á við
lífið á nýjan og jákvæðari hátt.
Staða hvers og eins er metin
í byrjun og lok námskeiðsins og
matið sýnir að á meðan á nám-
skeiðinu stendur tekur fólk mis-
miklum framförum. Sumir ná strax
mjög góðum árangri meðan aðrir
eru ögn lengur að tileinka sér að-
ferðirnar. Það hefur komið í ljós
að árangur námskeiðsins skilar sér
einnig til lengri tíma. Þeir sem fá
mest út úr svona námskeiði eru að
sjálfsögu þeir sem best ná að nýta
sér þær aðferðir sem eru kenndar.
Umsagnir þátttakenda í lok-
in lýsa vel viðhorfi þeirra til nám-
skeiðsins, flestir finna fyrir meiri
jákvæðni og umburðarlyndi í eig-
in garð og annarra og að þeir hafi
lært að þeir geti gert ýmislegt til
að leysa vandamálin. Á endanum
liggur það auðvitað hjá hverjum og
einum hvað hann fær út úr nám-
skeiðinu. Því duglegra sem fólk er
að nota verkfærin, þeim mun betri
er árangurinn.“
Guðrún er með námskeið í gangi
núna, en næsta námskeið hefst í
byrjun mars. Hún byrjar að skrá þátt-
takendur á það námskeið mánudag-
inn 19. febrúar. Þá má hvort heldur
sem er senda netpóst á ga@oson.is
eða hringja í síma 699 0244.
Guðrún Árnadóttir
Er sálfræðingur og sérfræðingur í
hugrænni atferlismeðferð og
heldur námskeið fyrir fólk sem
þjáist af kvíða, streitu og depurð.
DV Mynd Stefán
Sjálfsagt að laga
brotin bein
– en ekki endilega brotnar sálir
„Það þarf auðvitað
að meta hverju sinni
til hvaða ráða skal
grípa … Oft nægir að
tala við góðan vin eða
ættingja þegar vand-
inn er ekki mikill.“
Einföld og markviss ráð um hvernig
hægt er að
hreinsa óæskileg
efni úr líkamanum:
Brennslan verður
hraðari, húðin
fallegri, líkam-
legir kvillar hverfa
og andleg vellíðan
eykst.
Endurmótum líkamann og bætum
líkamsstöðuna með áhrifaríkum
teygjuæfi ngum.
Frábær bók
með myndum
og skýringum
sem hægt er
að nota sér
bæði heima, á
vinnustað og í
ræktinni.
Látum okkur líða vel