Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Page 42

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Page 42
föstudagur 12. janúar 200742 Heilsa & menntun DV Heilsa&menntun M æðginin Ása Helga Ragn- arsdóttir, leik- kona og grunn- skólakennari, og Trausti Haf- steinsson blaðamaður voru skóla- systkini í Kennaraháskólanum. Ekki nóg með það heldur varð bekkjarsystir Ásu, Rún Kormáks- dóttir, síðar eiginkona Trausta og á með honum tvær dætur. Þetta er því sprenglærð kennarafjölskylda þar sem eiginmaður Ásu, Karl Gunn- arsson líffræðingur, kennir reglu- lega í Háskóla Íslands. Ása varð á undan syni sínum í Kennaraháskólann en hún hafði kennt leiklist í nokkur ár og fannst það svo öflug kennsluaðferð að hún fékk brennandi áhuga á kennsl- unni. „Ég dreif mig því í Kennarahá- skólann á gamals aldri, var í bekk með tvítugum nemendum og féll inn í bekkinn eins og flís við rass,“ segir hún hlæjandi. „Það voru reyndar nokkrir nem- endur þarna í eldri kantinum en ég var, held ég, aldursforsetinn. Ég út- skrifaðist svo 1996 sem grunnskóla- kennari og hef kennt í Háteigsskóla síðan.“ Elti mömmu fyrir rest Háteigsskóli er móðurskóli í þró- unarstarfi þar sem leiklist er notuð í kennslunni svo Ása er sannarlega á heimavelli. „Við kennum leiklist í öllum árgöngum en leiklistarkennslan hefur ómælt gildi í kennslunni,“ segir Ása. „Krakkarnir þjálfast í hópvinnu, samskiptatækni, tján- ingu og því að koma fram. Þau læra að taka ákvörðun sjálf og standa með henni svo þetta gagnast þeim mjög vel. Þá kenni ég líka dönsku og svo er ég að kenna á nokkrum námskeiðum í Kennaraháskólan- um. Ég reyndi að tæla hann með mér þegar ég byrjaði,“ segir Ása. „En hann var meira heillaður af frönsk- unni í Háskólanum og fór svo út til Grikklands.“ Trausti horfir sposkur á móður sína og segist hafa komið inn á loka- árinu hennar. Hann segist hafa látið til leiðast fyrir rest. „Ég elti mömmu því ég er svo mikill mömmustrák- ur. Ég fór í Kvennaskólann eins og mamma og endaði svo í Kennara- háskólanum eins og hún.“ Strákar í vörn Mæðginin tóku bæði virkan þátt í félagslífi skólans og Trausti var með í að stofna frægt félag innan skólans sem heitir Skólastjórafé- lagið Skarphéðinn. „Kynjahlutfallið var svo óhag- stætt okkur strákunum að við áttum í vök að verjast,“ segir hann hlæj- andi. „Við vorum innan við 10% og þurftum að sjálfsögðu að standa þétt saman. Félagið var auðvitað stofnað í gríni og gamansamur ríg- ur varð milli kynjanna vegna til- vistar félagsins. Satt að segja urðu ekki margir drengjanna skólastjór- ar að námi loknu og minnihluti þeirra grunar mig að sé við kennslu í dag.“ Það beinir umræðunni að þeirri staðreynd að grunnskólarnir eru nánast eingöngu mannaðir kvenk- ennurum og það finnst þeim mæð- ginum slæmt. „Krakkar í grunn- skóla sjá oft ekki karlkennara fyrr en í fyrsta lagi á unglingastigi, svo karlfyrirmyndirnar vantar algjör- lega,“ segir Trausti. Hann viðurkennir að hann fáist ekki við kennslu lengur, nú sé hann blaðamaður, en árin eftir kennslu hafi hann starfað við eigið fyrirtæki og sem fararstjóri erlendis. „Ég kenndi í tvö ár eftir útskrift, fyrst sjö ára nemendum í Vestur- bæjarskóla sem er minn gamli skóli og svo á unglingastigi í Hagaskóla þar sem ég var líka sjálfur sem unglingur. Mér líkaði kennslan vel og á örugglega eftir að kenna aft- ur. Ég kenndi líka einu sinni sem forfallakennari fyrir mömmu og það var mjög skemmtilegt. Krakk- arnir vissu greinilega eitt og annað um mig, reyndar var grunsamlegt hversu vel þau þekktu allar gömlu prakkarasögurnar frá æsku minni.“ Skólasystir mömmu ástfangin af syninum Ása hlær og segir skemmtilegt hvernig hlutirnir hafi skarast. „Ég verð að segja þér frá því þegar Rún sá Trausta í fyrsta skipti,“ segir hún. „Við stóðum nokkrar bekkjarsyst- ur á ganginum þegar Trausti kom labbandi og Rún fékk stjörnur í aug- un. „Rosalega er hann sætur,“ sagði hún, en ég brá ekki svip, samþykkti bara fúslega. Hún hafði ekki hug- mynd um að hann væri sonur minn, en þau urðu ástfangin og eru nú gift og eiga tvær dætur.“ Sú eldri Tanja Líf er að leika í Þjóðleikhúsinu í Sitji guðs englar og Matthildur sem er bara tveggja ára er þegar farin að sýna leiklistar- takta, að sögn föðurins. „Sjálfur lék ég töluvert á mínum skólaárum en var aldrei mikið baksviðs í leikhús- inu sem barn.“ „En ég þekkti Rún fyrst,“ áréttar Ása hlæjandi. „Og hún valdi eigin- lega tengdamömmu sína fyrst.“ Alltaf hægt að bæta við sig Ása og Trausti eru mjög náin og þar sem kennarar eru margir í fjöl- skyldunni eru skólamál oft ofarlega á baugi í fjölskylduboðum. Aðspurð hvort þau séu rosalega upplýst og góð í Trivial segir Ása að Trausti hafi gefið út ýmis spurningaspil. „Það er alltaf notað á mig þegar ég vinn,“ segir Trausti og eiginlega finnst blaðamanni það ekkert skrýt- ið. Hvorugt þeirra mæðgina er hætt í námi og Ása hefur þegar lokið meistaranámi í Bretlandi. „Ég hvet konur eindregið til að drífa sig í skóla og það er nú ekki leiðinlegra ef börnin þeirra eru í sama námi. Það er aldrei of seint og nú læt ég mig dreyma um doktorinn,“ segir hún og Trausti efast ekki eitt andartak um að hún færi létt með það ef hún tæki þá ákvörðun. Sprenglærð kennarafjölskylda: Mæðginin Ása Helga og Trausti Voru saman í Kennaraháskólanum og tóku bæði virkan þátt í félagslífinu. Þau eru rígmontin hvort af öðru og fannst ofsalega gaman að vera saman í skóla. Mæðgin saman á skólabekk „Krakkar í grunnskóla sjá oft ekki karlkenn- ara fyrr en í fyrsta lagi á unglingastigi, svo karlfyrirmyndirnar vantar algjörlega.“ DETOX Hreinsar líkama og húð Lagar magann Hreinsar út aukaefni og þungmálma Fæst í Heilsubúðum og Lyfjaval

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.