Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Blaðsíða 46
föstudagur 12. janúar 200746 Heilsa & menntun DV
29 vítamín og steinefni · 18 aminósýrur · Blaðgræna · Omega
GLA fitusýrur · SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans
Lífrænt Fjölvítamín
Eingöngu lífræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu í líkamanum.
V
o
t tað
100% lífræ
nt
Til að fá jafnmikið af nokkrum völdum næringarefnum og í dagskammti
af Lifestream Spirulína þarf að borða:
· 7 gulrætur (betakarotín)
· 1 skál af fersku spínati (járn)
· 1 skál af híðishrísgrjónum (kalíum)
· 1 glas af mjólk (kalk)
· 125 gr. nautakjöt (prótín + B12 vítamín)
· 30gr. hveitigrassafa (blaðgræna)
· 1 hylki Kvöldvorósarolía (GLA fitusýrur)
Súrefnistæmir umbúðirnar til að vernda næringarefnin.
Lifestream þörungarnir eru ómengaðir vegna þess að þeir eru ræktaðir í
ferskvatni eftir ströngum gæðastaðli. ISO9001 · ISO14001
Aukið úthald,
þrek og betri líðan
Styrkir fljótt líkamann gegn kvefi og flensu
WHO Alþjóðlega Heilbrigðisstofnunin telur hágæða Spirulina ákjósanlegan
næringarauka fyrir börn og fullorðna. Mörg hundruð rannsóknir hafa verið gerðar á
Spirulina og fjöldi þeirra hefur birst í virtum vísindaritum. Lifestream Spirulina eflir
einbeitingu, gefur orku, dregur úr pirringi, sleni og sætindaþörf.
Gott fyrir alla sem eru í vinnu, námi og vilja halda línunum í lagi.
Greinilegur munur eftir
nokkra daga inntöku
Hress og hraust
í ræktina og vinnu með
Spirulina!
Lifestream Spirulina gefur mér mjög mikla orku en ég finn ótrúlega
.nniðaþketgé
rageþnumnnik
im
Þó svo að ég borði mjög hollt fæði er það Spirulina sem gerir mér kleift að hafa orku í allt sem þarf að gera en ég er í skóla, vinnu, líkamsrækt og æfi fótbolti. Hef miklu meiri úthald og er hressari á morgnana.
Daði R. Kristleifsson, 18 ára
www.celsus.isGóð heilsa
Eldri borgarar eiga kost á ýmiss konar líkamsrækt sem er sérsniðin fyrir lúin bein og hefur að aðalmark-
miði að þjálfa og undirbúa líkam-
ann fyrir ellina. Sundleikfimi fyr-
ir eldri borgara er eitt af því sem er
í boði í sundlaugum borgarinnar
og hefur Brynjólfur Björnsson haft
umsjón með henni síðustu fimm ár
og haft gaman af. Hann kennir leik-
fimi í flestum laugum borgarinnar,
flesta daga vikunnar, og aðspurður
um sérstöðu leikfimi í vatni segir
hann að það sé gott að vinna með
vatnið, það veiti mótstöðu og hjálpi
til við að mýkja vöðva og liði og fólk
finni mikinn mun á gigtinni og lið-
leika líkamans.
Vatnsleikfimin er óhemjuvin-
sæl og oft er plássið til að athafna
sig lítið en allir eiga að geta kom-
ist að sem vilja. Námskeiðin eru
yfirleitt haldin á morgnana og eru
þátttakendur því flestir komnir á
eftirlaunaaldurinn þótt örfáir yngri
slæðist með. Brynjólfur er upptek-
inn maður og býður einnig upp á
vatnsleikfimi á kvöldin fyrir hinn
almenna borgara í Breiðholtslaug-
inni og skriðsundkennslu fyrir full-
orðna í Árbæjarlauginni. Jafnframt
stendur hann fyrir kennslu í leik-
fimi ofanvatns fyrir eldri borgara
í íþróttahúsi Víkings í boði ÍTR og
þangað mæta oft yfir 80 manns.
Líkamsrækt
fyrir eldri borgara
Hallgerður Gunnarsdótt-ir lögfræðingur er ein þeirra kvenna sem ekki fóru hefðbundna leið í
sinni skólagöngu. Hún lauk lands-
prófi á unglingsaldri en eignaðist
fyrsta barn sitt ung að árum þannig
að frekara nám varð að sitja á hakan-
um. Hún hóf nám við öldungadeild
Menntaskólans við Hamrahlíð um
leið og deildin tók til starfa en flutti
til Stykkishólms þegar hún hafði lok-
ið helmingi námsins og lauk því ut-
anskóla. Þá var hún komin með stórt
heimili og þriðja barnið fæddist
meðan á náminu stóð, en hún lauk
engu að síður stúdentsprófi á fimm
árum. Í öldungadeildinni vaknaði
áhugi Hallgerðar á lögfræði þegar
hún tók lögfræðiáfanga.
Prófessorarnir hlógu
„Mér fannst þetta mjög áhugavert
efni sem höfðaði sterkt til mín og ég
ákvað sama vor og ég lauk stúdents-
prófi að stefna á lögfræðinám. Fjöl-
skyldan var hins vegar orðin stór og
enn bættust tvö börn við. Mig lang-
aði nú samt að athuga hvort ég gæti
tekið námið utanskóla eins og ég
hafði gert í öldungadeildinni og fór á
opinn dag í háskólanum til að ræða
um þetta við prófessora í lagadeild-
inni. Þeir litu bara hver á annan og
hlógu að mér, svo ég saltaði það,“
segir Hallgerður og hlær.
Hún hélt þó fast í drauminn og
þegar hún var 47 ára hóf hún nám-
ið. Hún kveðst ekki hafa getað sleppt
tækifærinu til frekara náms þegar
það gafst vegna vetursetu fjölskyld-
unnar í Reykjavík eftir að eiginmað-
ur hennar Sturla Böðvarsson settist á
þing. „Þetta er fimm ára nám en ég
gaf mér lengri tíma,“ segir Hallgerður
sem útskrifaðist fyrir fjórum árum.
„Flestir í deildinni voru tuttugu og
fimm árum yngri en ég, en þar voru
líka einstaklingar sem voru nær mér
í aldri þótt enginn hafi verið jafnga-
mall mér.“
Lögfræðinámið stóð fullkomlega
undir væntingum Hallgerðar en hún
segir vissulega hafa verið átak að fara
í nám eftir langt hlé. „Það er ákveðin
þjálfun að stunda nám en mér fannst
námið verða mér léttara eftir sem á
leið. Nám er ekkert annað en vinna
og fólk öðlast færni með æfingunni.
Lögfræðin er áhugaverð af því hún
nær yfir flest svið mannlífsins og
tengist lífshlaupinu frá vöggu til graf-
ar. Það er mikilvægt þegar farið er í
nám að velja það sem vekur mest-
an áhuga viðkomandi og leggja svo
af stað með bjartsýnina að leiðar-
ljósi. Það er engin ástæða til annars
en að láta á það reyna hvort frekara
nám er ekki raunhæfur möguleiki og
ástæðulaust að sjá eftir því síðar að
hafa ekki látið draumana rætast.“
Mistök að læra ekki strax á
tölvu
Hallgerður leiddi ekki svo mikið
hugann að því hvort hún fengi vinnu
við sitt fag eftir námið en trúði því
innst inni að það gengi eftir.
„Það voru einhverjir sem töldu að
ég væri of gömul til að fá vinnu en
mér fannst ég hlyti að hafa reynslu
sem myndi nýtast í starfi.“ Enda fékk
Hallgerður vinnu sem lögfræðingur
og er mjög ánægð í sínu starfi.
Það sem helst háði Hallgerði í
náminu var lítil tölvukunnátta. „Ég
lærði ekki á tölvu fyrr en ég neyddist
til þess og eftir á að hyggja voru það
mestu mistök mín að tileinka mér
ekki tölvutæknina strax. Þessi tækni
var í örri þróun á meðan ég var í skól-
anum og möguleikar til gagnaöflun-
ar jukust með hverju ári. Ég upplifði
sjálfa mig hálflesblinda að hafa ekki
tölvufærni þótt fingrasetning á rit-
vél væri mér töm. En ég kunni ekki
að nýta mér netið og afla mér upp-
lýsinga. Það kom mér á óvart hvað
tölvunotkunin reyndist mér auðveld
þegar á reyndi.“
Mannréttindi allra að hafa
tækifæri til náms
Hallgerður er heilluð af allri þeirri
tækni sem nú er í boði og gleðst mjög
vegna fjölmargra tækifæra fólks, ekki
síst þess yngra.
„Framboð á námi hefur breyst
mjög mikið síðustu ár og ný tæki-
færi hafa opnast. Heimurinn liggur
bókstaflega fyrir fótum unga fólksins
og ánægjulegt að fylgjast með hvað
möguleikarnir eru margir. Breyt-
ingin sem orðið hefur er jákvæð og
ekki síst það sem hefur gerst á lands-
byggðinni. Það er mjög mikilvægt að
unglingar geti sótt framhaldsnám í
sinni heimabyggð og með tilkomu
nýrra framhaldsskóla víða um land
hafa fleiri unglingar sótt skóla en
áður. Það eru sjálfsögð mannréttindi
að allir þegnar samfélagsins eigi þess
kost að mennta sig. Þá hefur tilkoma
fjarnáms, bæði í framhaldsskólum og
háskólum, opnað mikla möguleika
fyrir þá sem búa utan höfuðborgar-
svæðisins og eiga þess ekki kost að
stunda nám með öðrum hætti. Það
hefði breytt miklu fyrir mig.“
Ekki hægt án stuðnings
fjölskyldunnar
Hallgerður segist ekki vera á leið
í frekara nám, en hún myndi örugg-
lega hugleiða það ef hún væri nokkr-
um árum yngri og ætti ekki svo stóra
fjölskyldu sem hún vill hafa nærri
sér. Framhaldsnám í lögfræði er al-
gengara en áður var og nýútskrifaðir
lögfræðingar stefna nú flestir að sér-
hæfingu í faginu.
Það eru þrír lögfræðingar í fjöl-
skyldu Hallgerðar því eldri sonur
hennar og kona hans eru líka lögfræð-
ingar. Hún viðurkennir að umræðan í
fjölskyldunni sé oft um dóma og lög-
fræðileg álitaefni en þó hafi það verið
meira meðan hún var í námi.
„Það var skemmtilegt að útskrif-
ast og ég held að öllum í fjölskyld-
unni hafi verið frekar létt,“ segir Hall-
gerður og brosir.
„Það þurfti auðvitað að endur-
skipuleggja heimilishaldið meðan á
náminu stóð, en ég vil taka það fram
að þetta er ekki hægt nema með góð-
um stuðningi fjölskyldunnar.“
Eiginmaður Hallgerðar Sturla
Böðvarsson, börnin fimm og móðir
hennar samglöddust henni mjög þeg-
ar prófið var í höfn og voru að vonum
stolt. Hallgerður segist ekki geta nóg-
samlega þakkað þeim stuðninginn.
„Ég hefði hvorki lokið stúdentsprófi
né háskólaprófi án stuðnings fjöl-
skyldunnar, það var lykilatriði,“ seg-
ir hún. „Þess vegna vil ég hvetja þær
konur sem hyggja á nám eftir langt
hlé að virkja fjölskylduna til stuðn-
ings, annars verður þetta of erfitt.“
Allt hægt
Hallgerður Gunnarsdóttir, eiginkona sam-
gönguráðherra:
Fór í nám á miðjum aldri
Lauk stúdentsprófi frá öldungadeild
Menntaskólans í Hamrahlíð og síðar
lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands.
Flest viljum við eiga hamingjuríkt ævikvöld og til
þess að ná því takmarki er gott að viðhalda lið-
leika líkamans og þjálfa hann.
Heilsa&menntun