Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Page 54
föstudagur 12. janúar 200754 Sport DV
Aldrei kastað bolta til mín
Það vita flestir íþróttaáhuga-menn hverjir handboltafeðg-arnir Geir Hallsteinsson og sonur hans Logi eru.
Geir er sonur Hallsteins Hinriks-
sonar sem stofnaði FH á sínum tíma
og hóf handboltastarfsemina þar eft-
ir að hafa verið í námi í Danmörku.
Geir Hallsteinsson þarf vart að kynna,
hann er goðsögn í lifanda lífi og það
lifnar yfir mörgum þegar þeir tala um
leiki sem þeir fóru á í gamla daga með
íslenska landsliðinu en Geir var þar
aðalstjarnan. Geir lék allan sinn fer-
il í FH fyrir utan tvö ár þar sem hann
var með Göppingen í þýsku Bundes-
ligunni. Logi Geirsson lék hér á landi
einnig með FH en söðlaði um árið
2004 og samdi við þýska stórliðið
Lemgo. Þar varð hann Evrópumeist-
ari síðastliðið vor einmitt eftir sigur
á Göppingen. Geir fór út til að horfa
á, hitti alla gömlu félagana sem voru
með honum í liði og viðurkennir að
hann hafi ekki verið alveg viss með
hvorum hann hélt, þó að hann hafi
stutt Loga. „Ég studdi guttann, en það
voru blendnar tilfinningar.“
Geir talaði við þjálfara Göpping-
en þegar Logi vildi fara út, en eins og
Þjóðverja er von og vísa var búið að
fylla kvótann af leikmönnum og úr
varð að Logi samdi við Lemgo. „Þeir
hafa væntanlega séð eftir því að hafa
ekki samið við Loga þegar hann af-
greiddi þá í úrslitaleikjunum, 16 mörk
í tveimur leikjum.“ Og ekki er laust við
að gamli maðurinn brosi.
Handbolti er „show“
Geir vakti mikla athygli hvar sem
hann spilaði, uppselt var á flesta leiki
FH og hjá íslenska landsliðinu. Í ein-
um leik á móti KR ákváðu Geir og
Gunnar Einarsson, núverandi bæjar-
stjóri í Garðabæ, að gera einum varn-
armanni KR grikk. Sá varnarmaður var
tuddi að mati Geirs og hann lýsir atvik-
inu svona. „Við vorum með yfirburða-
lið með landsliðsmann á bekknum
og unnum deildina yfirleitt með tölu-
verðum yfirburðum. Ég hef alltaf litið
á handbolta sem ákveðið „show“ að
menn taki eithvað fyrir fólkið sem það
man eftir. Við ákváðum að ég myndi
koma að punktalínu, gefa á Gunnar,
stoppa og þykjast reima skóna mína.
Fara niður á fjóra fætur og Gunnar, sem
lék þá sem hægri skytta, myndi lyfta sér
upp af bakinu á mér. Hann gerði það
og fór næstum tvo metra upp í loft-
ið og þrumaði boltanum í netið. Það
eru til myndir af þessu og ég man að
Ómar Ragnarsson sem þá var íþrótta-
fréttamaður sýndi þetta mark oft. Það
versta var að hann steig svo fast á bak-
ið á mér að ég tognaði svo rosalega að
ég gat varla gengið í mánuð.“
Logi hlær að þessu og segir að það
sé aldrei að vita nema landsliðið geri
eitthvað þessu líkt á HM, en það væri
vont ef það myndi ekki ganga upp. „Ég
held að Alfreð sendi þig með fyrstu vél
heim ef þú gerir eitthvað svona,“ svar-
ar Geir.
Fjölhæf skytta
Logi verður að öllum líkindum í
landsliðshópi þeirra Alfreðs Gísla-
sonar landsliðsþjálfara og Guðmund-
ar Guðmundssonar aðstoðarmanns
hans. Hann segir að það sé allt ann-
að að spila með landsliðinu en félags-
liði. „Það er allt annar undirbúningur .
Allt rólegra, menn að fara yfir leikkerfi,
að stilla saman strengi og peppa sam-
an hópinn. Það er mjög erfitt að lýsa
þessu, það er meiri ábyrgð á manni og
þetta er bara einhvern veginn miklu
skemmtilegra.“
Og Geir líst vel á landsliðsþjálfar-
ann. „Mér líst mjög vel á Alfreð, hann
virðist sjá það það við Loga sem Guð-
mundur forveri hans sá ekki. Hann
var alltaf að pota honum út í horn en
Alfreð virðist ætla að nota hann meira
sem skyttu, hann er það fjölhæf skytta
að hann getur nánast verið alls staðar.“
Lífið sem atvinnumaður í handbolta
er ekki alltaf dans á rósum, meiðsli
hafa sett strik í reikninginn hjá Loga
og hefur hann meðal annars misst af
nokkrum stórmótum.
„Ég bakbrotnaði og var frá í 8 mán-
uði en ég er alveg laus við meiðsli í dag
og held að ég hafi aldrei verið betri.“
Mikil stemming fyrir HM
Stemmingin fyrir HM sem hefst
19. janúar er að stigmagnast bæði hér
heima og í Þýskalandi. „Það hefur ekki
verið talað um annað í næstum þrjá
mánuði úti í Þýskalandi, það er upp-
selt á alla leiki í riðlunum og fólk er að
reyna að kaupa miða á eBay! Ég get
nánast lofað því að það er allt tilbú-
ið, Þjóðverjarnir eru bara að bíða eft-
ir leikmönnum. Þetta mun ganga eins
og vel smurð vél og ég held að það sé
varla til sú þjóð sem geti gert þetta eins
og Þjóðverjar munu gera þetta.“
Ólafur er lykillinn
Mikið hefur mætt á fyrirliðan-
um Ólafi Stefánssyni og er Geir ekki í
vafa um að leikur liðsins standi og falli
með leik Ólafs en hann hefur glímt
við meiðsli í öxl. „Ef Ólafur heldur út
keppnina þá getum við náð langt, þetta
byggist mikið á honum. Ekki bara út af
mörkunum sem hann skorar heldur
er hann svo ofboðslega góður spilari.“
En Logi er á því að Alexander Petter-
son geti auðveldlega leyst stöðuna fari
svo að Ólafur geti ekki spilað.
„Alexander er rosalega öflugur
núna, hann getur spilað skyttuna ekk-
ert síður en Óli. Hann er góður í vörn
og er dúndurgóður í sókn og berst all-
an leikinn, það kemur rosalega mikið
út úr honum, þannig að við þurfum
ekki að hafa neinar áhyggjur af þessu.
En eins og pabbi kom inn á þá snýst
þetta mikið um Óla, hann er okkar fyr-
irliði og okkar leiðtogi.“
„Þetta byggist svo rosalega mikið
á vörn og markvörslu. Hreiðar (Guð-
mundsson) lofar ótrúlega góðu og
markvarslan var fín í mótinu úti í Dan-
mörku, þetta snýst um að toppa á rétt-
um tíma,“ bætir Geir við. Íslenska liðið
leikur um helgina tvo leiki við tékk-
neska landsliðið í Laugardalshöll.
„Þetta er lokaprófraunin fyrir HM
en það getur margt gerst á sjö dögum.
Auðvitað vilja allir sýna sig og sanna
um helgina en undirbúningurinn er
tiltölulega nýbyrjaður, en markviss
og góður. Við ætlum okkur auðvitað
að leggja Tékka að velli en hins veg-
ar er mikilvægt að Alfreð sjái hvaða
leikmenn passi saman, hvaða staða
kemur upp þegar við lendum tveim-
ur mörkum undir, hverjir eiga að vera
inni á og svo framvegis. Þetta er meiri
tilraunastarfsemi, betra er að Alfreð sé
með allt á hreinu á HM en að vinna
Tékka um helgina. Þegar allt er undir
þá vinnum við Tékka, ekki spurning,
en þeir eru sýnd veiði en ekki gefin.“
„Leikmenn íslenska landsliðs-
ins þekkja Þýskaland þar sem heims-
meistaramótið er,“ bætir Geir við. „Þeir
hafa spilað á öllum þessum völlum og
þekkja stemminguna, andrúmsloft-
ið, fjöldann sem er að horfa á og það
á ekkert eftir að koma á óvart. Ef við
náum ekki árangri núna þá náum við
aldrei árangri.“
Er það ekki bara Barcelona?
Logi ætlaði alltaf að verða hand-
boltamaður og eyddi nánast öllum
sínum frítíma í æfingar. Hann segir
að hann hafi sjaldan eða aldrei verið
í jafngóðu formi og núna.
„Ég tel mig aldrei hafa verið betri
og ég hlakka mjög til að spila í þess-
ari keppni.“ Þrátt fyrir að afi Loga
hafi verið handboltamaður og Geir
einn þekktasti íþróttamaður Íslands,
var aldrei sett pressa á börnin að þau
myndu feta í fótspor þeirra.
„Þetta kemur bara af sjálfu sér,
ætli þetta sé bara í genunum,“ segir
Geir. Logi bætir við að forvitnin hafi
ýtt honum í handbolta. „Pabbi er svo
hógvær, hann hefur til dæmis aldrei
kastað bolta til mín. Svo bara hvern-
ig fólk talar um pabba, hver sem hittir
mann spyr um pabba og hvernig hann
hafi það.“
Eftir frammistöðuna á móti Göpp-
ingen í úrslitaleiknum um Evrópu-
meistaratitilinn bauð Lemgo Loga
langan og góðan samning til ársins
2010 sem hann samþykkti. Hann seg-
ist alveg tilbúinn að breyta til eftir að
samningurinn rennur út.
„Ég verð 28 ára þegar hann renn-
ur út, en mér líður mjög vel í Þýska-
landi. Reglurnar, fólkið og það er hægt
að læra svo mikið af Þjóðverjum. Hins
vegar er ég ekki að pæla í því þessa
stundina, vil bara standa mig vel með
landsliðinu og síðan Lemgo, er það
ekki bara Barcelona? Maður stefnir
alltaf hærra. Það er mikil samkeppni
og maður þarf stöðugt að vera á tán-
um,“ segir Logi að lokum um leið og
hann drífur sig á landsliðsæfingu.
benni@dv.is
Logi Geirsson segir að hann hafi
sjaldan eða aldrei verið í jafngóðu formi
og núna og hlakkar mikið til HM.
Geir Hallsteinsson Á heiðurinn af einu
skrýtnasta marki sem skorað hefur verið
á handboltavellinum.
Handboltafeðgar
Þeir feðgar eru mjög
samrýndir og Logi
leitar oft ráða hjá
pabba sínum, enda var
geir einhver fremsti
handknattleiksmaður
okkar Íslendinga.
Við hittum þá handboltafeðga Geir
Hallsteinsson og Loga Geirsson á dög-
unum. Geir er ekki í nokkrum vafa um
að „strákarnir okkar“ geti náð langt á
HM sem hefst eftir viku en til þess þarf
ýmislegt að koma til. Logi tekur í sama
streng og segir að hann hafi sjaldan
eða aldrei verið betri en nú, sem eru
góðar fréttir fyrir okkur Íslendinga.
„Þetta er lokaprófraunin fyrir HM en það getur
margt gerst á 7 dögum. Auðvitað vilja allir sýna
sig og sanna um helgina en undirbúningurinn er
tiltölulega nýbyrjaður, en markviss og góður.“