Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Side 56

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Side 56
Hann var þekktur fyrir sín þrumuskot. Sigurður Valur Sveins- son tók þátt á mörgum stórmót- um fyrir Íslands hönd og var meðal annars í liðinu sem vann B-keppn- ina 1989. Sigurður var vinsæll leik- maður á sínum tíma og hann var borubrattur þegar hann var spurð- ur út í komandi heimsmeistara- mót. „Það eru alltaf miklar vænting- ar til liðsins og þær eru að byggj- ast upp, maður finnur það í kring- um sig. Við eigum alveg fullt erindi á þetta mót. Það er auðvitað sárt að missa Einar Hólmgeirsson en við eigum fullt af örvhentum leikmönn- um. Þetta verður fyrst og fremst spurning um hvernig markvarslan og varnarleikurinn verður. Ég hef nú ekki áhyggjur af því að við skor- um ekki mörg mörk. Við endum í einhverju af átta efstu sætunum og svo er þetta spurning um heppni. Við höfum unnið leiki, komist langt og átt möguleika á verðlaunum en þá höf- um við stundum sprungið á limm- inu. Það er spurning hvort það tekst núna að fara alla leið og spila um verðlaun. Það er alveg möguleiki, en þá þarf líka allt að ganga upp.“ Þurfum að nýta breiddina Sigurður sagði að Alfreð þyrfti að nota allan leikmannahópinn til að ná árangri á mótinu. „Alfreð veit það sjálfur að til að ná langt á þessu móti þarf hann að nota nánast alla leikmennina. Í svona stóru móti er ekki hægt að spila á sjö, átta, níu mönnum. Menn þurfa að vera ein- beittir og hafa trú á verkefninu. Það þarf líka að hafa gaman af þessu. Nokkrir leikmenn eru farnir að huga að því að hætta í landsliðinu og þetta gæti verið þeirra síðasta tækifæri. Þetta er eitt sterkasta lið sem Ísland hefur átt og ég held að við ættum að stefna á þriðja sætið í þessu móti. Við eigum einn erfiðan leik í riðlinum, gegn Frökkum, en þegar komið er í milliriðil getur allt gerst,“ sagði Sigurður og bætti við að markvarslan væri höfuðverkur íslenska handboltans. „Við virðumst einfaldlega ekki ná upp þessum heimsklassamark- vörðum eins og hin liðin eru með. Þegar okkar markverðir eru með tíu til fimmtán skot varin, þá eru hin- ir með tuttugu til tuttugu og fimm skot. Það er oft þetta sem gerir út- slagið um það hvort lið spili um verðlaun eða ekki. Birkir Ívar hefur hins vegar fengið þessa reynslu í vetur í þýsku deildinni og ef Roland sleppur við meiðsli eigum við að vera með al- veg ágætis markmenn.“ Fínt að byrja gegn Ástralíu Sigurður sagði að íslenska liðið mætti ekki reiða sig of mikið á Ólaf Stefánsson í mótinu. „Við þurfum að passa okkur á því að leikmenn- irnir séu ekki of mikið að horfa og bíða eftir því að Ólafur klári leikina. Hann hefur verið meiddur og ég held að styrkur okkar í þessu móti sé liðsheildin. Við vitum samt al- veg hvað Ólafur kann og hann skil- ar alltaf sínu. Ég hef frekar áhyggjur af skytt- unni vinstra megin. Við erum með Arnór Atlason en við höfum enga ofboðslega breidd þeim megin. Guðjón Valur getur reyndar farið í þessa stöðu líka og ég held að það gæti verið mjög sterkt að setja hann af og til í þá stöðu. Okkur vantar hæðina í þessa stöðu en við erum með klassalið. Ég held að það sé fínt að byrja gegn Ástralíu. Alfreð byrjar ör- ugglega með sterkasta liðið og svo getur hann bara sett leikmenn á bekkinn og þeir geta farið að ein- beita sér að hinum leikjunum eft- ir 20 mínútur. Það er ágætt að byrja á svona léttum leik og þá frekar að hafa stíganda í mótinu heldur en hitt. Leikmenn eru að koma sér inn í mótið og spila sig saman og svo kemur harkan,“ sagði Sigurður en Ísland mætti Ástralíu einnig í síð- ustu heimsmeistarakeppni og vann þá stórsigur. B-keppnin var sérstakt mót Sigurður hefur tekið þátt í mörg- um stórmótum fyrir Íslands hönd og segist eiga margar góðar minn- ingar frá þeim. „Þrátt fyrir að við höfum gert í brók á mótinu hér heima 1995, þá var mjög gaman að taka þátt í því móti. Ég spilaði líka á HM árið 1981, það er nú langt síð- Gunnlaugur Hjálmarsson er gamalreyndur handboltakappi sem tók þátt í þremur heimsmeistara- keppnum fyrir Íslands hönd, 1958, 1961 og 1964. Gunnlaugur var þriðji markahæsti maður mótsins árið 1961 og fyrsti íslenski leikmaður- inn til að vera valinn í Heimsliðið. „1958 lentum við í riðli með Tékkum, Rúmenum og Ungverj- um og töpuðum fyrsta leiknum fyr- ir Tékkum. Svo gerðum við jafntefli við Rúmena 13–13, að mig minnir. Þetta eru auðvitað markatölur sem eru ótrúlegar. Síðan töpuðum við fyrir Ungverjum í síðasta leiknum. Ég var yngsti maður- inn í lið- inu þá en náði því svo seinna að vera elsti maður- inn. Eft- ir þetta urðu enn- þá meiri fram- farir og við lögð- um hart að okkur. 1961 náð- um við sjötta sætinu og það hef- ur nú ekki náðst mikið betri ár- angur síðan, að minnsta kosti ekki í A-keppni,“ sagði Gunnlaugur en á því móti var hann þriðji marka- hæsti leikmaðurinn og var valinn í Heimsliðið. HM 1964 eftirminnilegasta mótið Gunnlaugur sagði að þrátt fyr- ir þennan góða árangur hefði mót- ið árið 1961 ekki verið eftirminni- legasta heimsmeistaramótið sem hann fór á. „Því miður, þá verð ég að segja að mótið 1964 sé það eft- irminnilegasta fyrir þau klaufalegu mistök sem við gerðum okkur seka um. Við byrjuðum á því að bursta Egypta, unnum síðan Svía í hinum fræga leik, 14-12. Í síðasta leiknum máttum við svo tapa fyrir Ungverj- um með sjö mörkum, en töpuðum með átta. Heimferðin eftir það var hin mesta harmsaga. Það sat lengi í mönnum, enda algjör afglöp, við vorum ekki nema einu marki und- ir í hálfleik. Það var skelfilega grát- legt,“ sagði Gunnlaugur en hann gerir sér ekki of miklar vonir fyr- ir mótið sem hefst í Þýskalandi 19. janúar. Þjálfarinn þarf meiri tíma með liðið „Trúlega er þetta besti mann- skapurinn sem við eigum kost á, en hvort það dugar til mikilla sigra er ég ekki sannfærður um. Ég ætlast auðvitað til að liðið komist í milli- riðlana en ég held að það verði nú ekkert miklu meira. Auðvitað vonar maður að þeim gangi sem best. Eitthvað finnst mér þetta samt laust í reipunum, þjálfarinn mætir föstudagur 12. janúar 200756 Sport DV Sigurður Valur Sveinsson segir að liðið í dag sé eitt sterkasta lið sem Ísland hefur átt og setja ætti stefnuna á þriðja sætið á HM. HM í handbolta fer af stað 19. janúar og íslenska landsliðið stendur í ströngum undirbúningi þessa dagana. DV hafði samband við handboltakempurnar Gunnlaug Hjálmarsson og Sigurð Val Sveinsson, ræddi við þá um komandi keppni og rifjaði upp gamla tíma. Í Heimsliðið fyrstur Íslendinga GunnlauGur Hjálmarsson Gunnlaugur Hjálmarsson Var þriðji markahæsti maður mótsins árið 1961 og fyrsti Íslendingurinn til að vera valinn í Heimsliðið. DV Mynd Daníel Liðsheildin er okkar styrkur Eitt af mörgum mörkum Gunnlaugs Hann sést hér skora mark fyrir Ísland í leik gegn dönum á Heimsmeistaramótinu í Þýskalandi árið 1961. Gríðarlega reynsla sigurður lék á sínum tíma fjöldann allan af landsleikj- um á stórmótum. DV Mynd Daníel Vikan 5. maí 1966 Listamaðurinn Baltasar gerði þessa mynd af gunnlaugi sem birtist á forsíðu Vikunnar. siGurður valur sveinsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.