Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Qupperneq 57
an, en þetta er allt önnur íþrótt í
dag.
Það hefur margt breyst á undan-
förnum fimm eða sex árum. Bolt-
inn er mikið hraðari og það að fá
möguleika til að spila loksins al-
mennilegt heimsmeistaramót, þar
sem er nánast uppselt á alla leiki,
held ég að eigi eftir að skapa betri
umgjörð en nokkurn tímann hefur
verið.
Þetta verður eitt af stærri hand-
boltamótum sem haldin hafa ver-
ið. Þetta er í Þýskalandi, í Mekka
handboltans, og ég veit að það er
gríðarleg stemning þarna úti fyr-
ir þessu móti. Það er uppselt á alla
leiki Þjóðverja og þetta verður bara
veisla.“
Sigurður sagði að B-keppn-
in sem Ísland vann árið 1989
hefði verið merkileg fyrir margra
hluta sakir. „Austantjaldsþjóðirn-
ar mættu ekki á ólympíuleikana
árið áður og þurftu því að fara í B-
keppni. Hún var því svolítið sérstök
sú keppni.“
Síðustu ár hefur umræða ver-
ið í gangi um að taka aftur upp B-
keppni en Sigurður vill skoða þann
möguleika að fækka liðunum sem
koma frá slökustu heimsálfun-
um. „Það er fullt af liðum sem hafa
kannski ekkert að gera þarna. Þessi
setning „að vera með“ held ég að
sé svolítið afstæð á heimsmeistara-
móti.
En þetta eru reglurnar og við
verðum bara að fara eftir þeim.
Þetta gerir eitthvað til að byggja
upp handboltann hjá þessum þjóð-
um sem eru ekki eins góðar og hin-
ar og við sjáum nú að sumar Afríku-
þjóðirnar koma sterkar inn. Túnis
gæti til dæmis verið hættulegur biti
fyrir okkur í milliriðlinum.“
dagur@dv.is
DV Sport föstudagur 12. janúar 2007 57
Í Heimsliðið fyrstur Íslendinga
ekki á fyrstu æfingar og ætlar að
hitta liðið einhvers staðar í Skand-
inavíu þegar hálfur mánuður er
í keppni. Þó að hann sé afburða-
þjálfari hef ég ekki trú á því að það
dugi fyrir hann að vera með liðið í
tvær vikur fyrir mót. Ég vona bara
að ég hafi rangt fyrir mér.“
Kennir HSÍ um ástand
markvarðamála
Gunnlaugur telur að fjarvera
Einars Hólmgeirssonar gæti reynst
dýrkeypt. „Það leggst hálfilla í mig,
hann er að verða yfirburðamaður.
Reyndar er Ásgeir Örn að koma til
og það virðist vera svolítið skrítið
með íslenska handknattleiksmenn
að það virðist alltaf einhver spretta
upp í staðinn.
Það er samt mikið skarð fyrir
skildi, að Einar skuli hafa meiðst,
en það getur verið að leikgleðin
vinni það upp,“ sagði Gunnlaugur
og hafði einnig töluverðar áhyggjur
af markvörslunni.
„Markvarslan er svipuð og að
vinna í lottóinu. Við fögnum því
ef þeir spila vel en eitthvað virðist
þetta vera mikið happa og glappa
með íslenska markmenn. Þar kenni
ég handboltaforystunni um. Það
hefur ekki verið lögð nein elja í að
þjálfa unga markverði sérstaklega.
Það er aldrei of seint að byrja en ef
það hefði verið lögð áhersla á þetta
þá værum við í miklu betri málum.
Ég fór og horfði á æfingu hjá 17
ára landsliðinu fyrir ekki svo löngu
og þar voru 24 strákar og einn þjálf-
ari. Hann lagði sig auðvitað fram
eins og hann gat en ég dauðvor-
kenndi honum. Þarna hefðu átt
að vera að minnsta kosti fimm eða
sex þjálfarar. Unglingaþjálfunin er
að mínu mati okkar stærsti vandi,
það vantar að það sé lögð meiri
áhersla á hana og að þetta sé gert á
markvissan hátt,“ sagði Gunnlaug-
ur, sem greinilega er mikill áhuga-
maður um handbolta.
„Handbolti er eina íþróttin sem
við höfum náð einhverjum ár-
angri í, fyrir utan einstaka ein-
staklinga í öðrum íþróttum, og það
er grunnt á stoltinu. Ef illa gengur
eru nógu margir til þess að gagn-
rýna en þá þarf að taka á vanda-
málinu og reyna að bæta, frek-
ar en að rífa niður,“ sagði hinn 68
ára gamli Gunnlaugur og bað fyrir
kæra kveðju til landsliðsmannanna
sem halda í baráttuna sem fram
undan er og bætti við að það væru
góðar hugsanir sem fylgdu þeim til
Þýskalands.
Liðsheildin er okkar styrkur
Íslenska landsliðið tók þátt í
fjögurra liða móti í Danmörku um
síðustu helgi í undirbúningi sín-
um fyrir HM í Þýskalandi.
Fyrsti leikur liðsins var gegn
Norðmönnum og tapaðist stórt,
34-22. Því næst mætti íslenska lið-
ið Pólverjum í miklum markaleik
og fór með sigur af hólmi, 40-39,
og í síðasta leiknum gerði Ísland
jafntefli við Dani, 29-29.
„5-1 vörnin virkaði mjög vel á
þessu móti en við spiluðum ekki
vel í 6-0 vörn. Í leikjunum gegn
Ungverjalandi var það öfugt, 6-0
vörnin gekk þá miklu betur. Við
erum bara að reyna að vinna lið-
ið saman, það var mikið um mis-
skilning í 6-0 vörninni.
Það voru þarna kaflar þar sem
við spiluðum mjög vel. Fyrri hálf-
leikirnir á móti Pólverjum og
Dönum voru mjög góðir,“ sagði
Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari
Íslands.
Tveir leikir gegn Tékkum um
helgina
Íslenska landsliðið á eftir tvo
undirbúningsleiki, gegn Tékkum
hér heima um helgina. Leikirn-
ir fara fram í Laugardalshöllinni á
laugardag og sunnudag og hefjast
báðir klukkan 16.
„Við þurfum að bæta okkur alls
staðar. Markvarslan var köflótt.
Hreiðar varði vel fyrstu 30 til 40
mínúturnar gegn Dönum og eins
varði Birkir vel gegn Pólverjum í
fyrri hálfleik.
Það er fullt af atriðum sem
við þurfum að laga. Eins og þetta
er hjá okkur í dag, þá spilum við
ágætlega ef við erum með sömu
sex mennina inni á og hver ein-
asta skipting kemur miklu róti á
þetta hjá okkur.
Að vera með Róbert Gunn-
arsson inni á og þurfa að skipta
tveimur út af er hálfgerður dauða-
dómur fyrir okkur. Á móti liðum
sem spila hraðan handbolta er svo
mikilvægt að þurfa ekki að skipta
mörgum inn og út,“ sagði Alfreð
og bætti við að Tékkar væru með
mjög sterkt lið.
„Þeir eru með mjög gott lið.
Þeir spila athyglisverðan bolta,
sem er mjög hraður. Í vörninni
spila þeir 4-3, mjög opna vörn,
og eru á mikilli hreyfingu. Á mót-
inu í Danmörku fengum við ein-
göngu 6-0 varnir á móti okkur en í
næstu leikjum verða þær opnar og
grimmar varnir. Vikan fer bara í að
undirbúa okkur fyrir það.“
Gengur vel að samræma
landsliðið og Gummersbach
Alfreð sagði að liðið sakn-
aði Einars Hólmgeirssonar sem
meiddist fyrir skömmu og verð-
ur ekki með á HM. „Það er mjög
erfitt fyrir okkur að missa hann út
vegna þess að hann er okkar öfl-
ugasti skotmaður í dag. Hann er
líka leikmaður sem getur klárað
leiki fyrir okkur.
Á móti kemur að án hans þurf-
um við að spila af meiri aga í gegn-
um allt saman, meiri taktík,“ sagði
Alfreð og bætti við að Alexander
Petterson hefði átt mjög góða leiki
á mótinu í Danmörku.
„Alexander átti mjög góða leiki,
hann var frábær gegn Pólverjum
og mjög góður gegn Dönum. Ólaf-
ur spilaði ágætlega fyrir liðið. Logi
átti einnig mjög góða kafla í leikj-
unum og líka Snorri. Okkur vant-
ar bara meiri stöðugleika í heilan
leik.“
Alfreð er þjálfari Gummers-
bach í Þýskalandi auk þess að
þjálfa landsliðið og segir að vel
gangi að samræma þetta tvennt.
„Stóri kosturinn við að vera með
þjálfara sem er á kafi í þýsku
deildinni og í Evrópuboltanum er
að maður vinnur allar upplýsingar
um leikmenn og nýtir allan þann
gagnabanka.
Þannig hef ég getað unnið alla
forvinnuna um Úkraínu og Frakk-
land og það sem gæti komið til
með að lenda á okkur. Þetta hef-
ur ekkert verið vandamál, núna
skiptir maður bara um hlutverk
og er hættur að taka símtölin frá
Þýskalandi.“
dagur@dv.is
Undirbúningur íslenska landsliðsins í
handbolta er í hámarki og um helgina
mætir liðið Tékkum í tveimur leikjum:
Tékkar spila athyglis-
verðan handbolta
Alfreð Gíslason segir að margt þurfi enn að laga fyrir heimsmeistaramótið.
Mikill áhugamaður um handbolta
gunnlaugur lék með Ír og fram á sínum
tíma. DV Mynd Daníel
Sigri á Svíum fagnað guðjón Valur og alexander Petterson fagna hér eftir sigurinn
á svíum síðasta sumar. DV Mynd Daníel
Að lifa sig inn í leikinn Það tekur ekki síður á að sitja á bekknum þegar æsispennandi leikur er í gangi inni á vellinum, eins og
sjá má hér á þeim alfreð gíslasyni og Hreiðari guðmundssyni. DV Mynd Daníel