Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Page 60
Menning Í gær, fimmtudaginn 11. janúar, var opnuð í Hafnarborg, menningar- og lista-stofnun Hafnarfjarðar, færeyska málverkasýningin Einsýna List. Færeyskir listmálarar hafa lengi sótt innblástur í stórbrotið umhverfi Færeyja þó að málverkin á sýningunni hafi vissulega nútímalegt yfirbragð og myndefnið sé fjölbreytt. Listamennirnir á sýningunni eru: Ingálvur av Reyni, Astri Luihn, Sigrún
Gunnarsdóttir, Edward Fuglø og Torbjørn Olsen.
Sex færeyskir listamenn í Hafnarborg
U m s j ó n : K o r m á k u r B r a g a s o n . N e t f a n g k o r m a k u r @ d v . i s
Íslenskir
bíódagar
í Köben
Nordatlantens Brygge í Kaup-
mannahöfn heldur bíódaga í
febrúar og mars. Þar er kynn-
ing á kvikmynd Friðriks Þórs
Friðrikssonar Börnum nátt-
úrunnar frá 1991 fyrst á dag-
skránni. Friðrik Þór er einmitt
tilnefndur til dönsku Bodil-
verðlaunanna fyrir besta leik í
aukahlutverki í nýjustu mynd
Lars von Trier, Direktören for
det hele. Danski kvikmynda-
fræðingurinn Birgir Thor
Möller fjalla um Friðrik og
kvikmyndagerð hans.
Listasafn Akureyrar hefur sýningarárið 2007 með myndlistarmönn-
unum Jóni Óskari og Bandaríkjamanninum Adam Batesman. Þar
hrærast saman hugmyndaheimar sem báðir tengjast orðum og
myndum þótt verk þeirra séu ólík að formgerð og efnistökum.
föstudagur 12. janúar 200760 Helgarblað DV
S
ýning Jóns Óskars
nefnist Les yeux de
l‘ombre jaune upp á
frönsku og er gríðar-
lega yfirgripsmikil. Hún
mun þekja veggi beggja
stærstu sala safnsins og
ríflega það. Ekki er um eiginlega yf-
irlitssýningu að ræða þótt þar ægi
saman öllum mögulegum vinnslu-
formum, teikningum, málverkum,
ljósmyndum, tölvumyndum og gra-
fík með meiru.
„Ég er að vinna í alls kyns miðla
og ákvað í þetta skipti að hrúga bara
öllu saman svona eins og að þú
værir að koma í heimsókn á vinnu-
stofuna til mín. Að vísu mun þetta
þróast svolítið þegar ég kem þarna
inn í rýmið fyrir norðan. Meining-
in er að þekja veggina þannig að
þeir hverfi. Stundum hef ég haldið
miðlunum aðskildum en núna leyfi
ég þessu öllu að fljóta saman. Það
er enginn sérstakur fókus á þessari
sýningu, þannig séð. Mín list er ein-
hvers konar viðbrögð, líkt og ef þú
stígur í drullupoll, þá er ég drullu-
pollurinn sem slettist á móti,“ segir
Jón Óskar.
Sprottinn úr
póstmódernískum skóla
Jón Óskar fór til náms í New York
1980 þar sem tíðarandinn krafðist
þess að landamærin milli listgrein-
anna væru rofin, girðingar brotnar
niður og veröldin öll gerð að við-
fangsefni með hverju því verkfæri
eða efni sem tiltækt var. Á skólaár-
um sínum hér heima í MHÍ vann
Jón á Vísi samhliða náminu og hef-
ur fengist við blaða- og tímarita-
gerð alla tíð síðan samhliða mynd-
listinni.
„Þetta hentaði mér mjög vel
þegar vikublöðin voru í gangi. Þá
vann ég tvo eða þrjá daga og hafði
síðan restina af vikunni fyrir sjálfan
mig. Síðan hef ég dottið inn í þetta,
stundum í stuttan tíma, stundum
lengri, en þetta er lifandi heimur
sem ég hef þörf fyrir. Ég reyndi fyrst
að halda þessum heimum aðskild-
um þannig að þetta væru svona
tveir heimar en í seinni tíð hefur
þetta runnið saman í eitt og ég á
oft erfitt með að greina á milli. Lík-
lega verð ég til dæmis með plön af
blöðum á þessari sýningu. Ég hef
geymt svona skissur og útskýringar-
myndir eða krotmiða og hef notað
þetta í málverkin eða það sem ég er
að vinna. Þetta eru oft svona sjálf-
sprottnar útskýringar sem verða
til í ákveðnu flæði eða díalóg án
áreynslu,“ segir Jón Óskar.
Listin er ekki heilög
„Það er enginn sérstakur tilgang-
ur í minni list. Ég er ekki í neinni
krossferð heldur eru þetta eins og ég
sagði áðan viðbrögð. Reyndar er ég
þannig að ég hef aldrei tekið nein-
ar ákvarðanir heldur leyfi hlutunum
að gerast meira af sjálfum sér. Ég hef
alltaf verið hrifnastur af list sem ein-
hver leikur er í og þeim listamönn-
um sem taka sig ekki of alvarlega. Ég
hef stundum verið að vinna sömu
hugmyndina í mismunandi miðlum
og það er gaman að sjá hvað útkom-
an verður ólík þótt maður sjái þráð-
inn ef þau eru skoðuð saman. Ég og
konan mín (Hulda Hákon, innskot
blaðamanns) höfum stundum unn-
ið verk út frá sömu hugmynd en út-
koman verður alltaf gerólík,“ segir
Jón Óskar.
Orð og myndir
Hugmyndaheimar Jóns Óskars
og Adams Bateman, orð og mynd-
ir, tvinnast saman í sýningarskránni
sem Jón sá um að hanna enda hæg
heimatökin eftir að hafa komið að
hönnun blaða, bóka og tímarita um
árabil. Þar ægir saman myndum
af verkum, auglýsingum og text-
um eftir innlenda og erlenda fræði-
menn og gamla félaga, sem fjalla
um Jón Óskar og hans list. Umfjöll-
unina um Bateman má líta á sem
framandi erlendar fréttir.
„Ég hef aldrei hitt Bateman en
mér finnst sýningarnar passa vel
saman og þær tengjast einmitt
gegnum orð eða orðið en Bateman
pælir einmitt mikið í mikilvægi
tungumálsins eins og sést af verk-
um hans. Ég er náttúrulega líka að
vinna með texta eða orð á einhvern
hátt,“ segir Jón.
kormakur@dv.is
Augu gulA skuggans
ALAmO Verkið er nokkurs konar andlit
sýningarinnar, kveikjan að verkinu var
trúnaðarsamtal þessara vinnufélaga í bíl
í umferðateppu á leið á flugvöll í
Englandi. titill verksins vísar til hins
óumflýjanlega.
myndlist
„Ég hef geymt
svona skissur og
útskýringarmynd-
ir eða krotmiða og
hef notað þetta
í málverkin eða
það sem ég er að
vinna. Þetta eru
oft svona sjálf-
sprottnar útskýr-
ingar sem verða
til í ákveðnu flæði
eða díalóg án
áreynslu.“ south
River Band á
Grand Rokk
South River Band, sem er eitt
af best varðveittu leyndarmál-
um íslenskrar tónlistarflóru,
kemur fram á tónleikum á
Grand Rokki fimmtudags-
kvöldið 18. janúar. Sveitin
hefur lítið látið á sér kræla
undanfarið en þó hefur frést
af nýjum geisladiski sem á að
verða tilbúinn í lok maí. Ekki
er ólíklegt að þeir félagar taki
eitthvað af þeim nýju lögum
sem verða á disknum á tón-
leikunum.
steinunn
Þórarins sýn-
ir í Flórída
Verk Steinunnar Þórarins-
dóttur verða til sýnis á hinni
alþjóðlegu Palm Beach 3
samtímalistamessu í Flórída
sem nú er haldin í 10. skipti
og hefst í dag. Það er gallerí-
ið Osborne Samuel í May-
fair í London sem sýnir verk
Steinunnar ásamt verkum
eftir þekkta listamenn eins og
David Hockney, Miro, Picasso,
Warhol, Anna Maria Pacheco
og fleiri. Eitt af verkum Stein-
unnar er við aðalinngang sýn-
ingarinnar ásamt verki eftir
Lynn Chadwick, sem er nýlát-
inn og var einn af þekktustu
myndhöggvurum Breta á 20.
öldinni.