Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Qupperneq 62

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Qupperneq 62
Menning Fyrir 25 árum var óperettan Sígaunabaróninn eftir Johann Strauss frumsýnd í Gamla bíói. Þessi fyrsta uppfærsla Íslensku óperunnar í eigin húsnæði naut gífurlegra vinsælda og sáu alls um tuttugu og þrjú þúsund gestir sýninguna. Fjölmargir íslenskir söngvarar sem gera nú garðinn frægan erlendis hafa alist upp á sviði Íslensku óperunnar á þessum tuttugu og fimm árum og nú í febrúar frumsýnir Íslenska óperan sextugasta verkefni sitt í Gamla bíói, óperuna Flagari í framsókn eftir Stravinsky. 25 ár frá fyrstu sýningu Óperunnar U m s j ó n : K o r m á k u r B r a g a s o n . N e t f a n g : k o r m a k u r @ d v . i s „Þetta leikrit er í raun ástæðan fyrir því að ég varð leikari og þess vegna sérstaklega gaman að fá að leikstýra því núna. Þetta er geysimikið fjölskyldudrama og mikið leikaraverk,“ segir Hilmir Snær Guðnason leikstjóri. Tuttugu ár eru frá því verkið var fyrst sýnt en það er nú tekið til sýninga í tilefni af 20 ára afmæli Borgarleikhússins. Leikritið þótti mikið tímamótaverk á sínum tíma og þykir eitt besta verk Birgis Sigurðssonar. „Þetta er auðvitað mikið raunsæisverk þannig að hér er ekki mikið pláss fyrir tilraunir en Vytautas Narbutas leikmyndahönnuð- ur kom fljótt með hugmynd sem varð ofan á og leikmyndin gefur okkur skemmtilega möguleika. Það eru sex hlutverk í þessu leikriti, öll stór og reyna mjög á leikarana enda er þetta mikið átakaverk um fjölskyldu þar sem allir hafa sinn djöful að draga. Birgir Sigurðsson hefur fylgst með okkar vinnu og það hefur verið mjög gott að geta leitað til hans á stundum. Ég er mjög ánægður með útkomuna enda frábær hópur sem ég er að vinna með,“ segir Hilmir Snær. Leikarar í sýningunni eru Ellert A. Ingimundar- son, Sigrún Edda Björnsdóttir, Hanna María Karlsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason, Gunnar Hansson og Birgitta Birgisdóttir. Lýsing er eftir Kára Gíslason og búninga hönnuðu Margrét Einarsdóttir og Dýrleif Ýr Örlygsdóttir. Afmælissýning Borgarleikhússins leiklist föstudagur 12. janúar 200762 Helgarblað DV Foreldrar, kvikmynd Ragnars Bragasonar og Vesturports, verður frumsýnd 19. janúar. Sýningar- eintök af myndinni eru á leið til lands- ins en hún verður einnig sýnd á alþjóð- legri kvikmyndahátíð í Rotterdam í Hollandi nokkrum dögum síðar. Ragn- ar Bragason, leikstjóri myndarinnar, er afar ánægður með útkomuna og segir frumsýningarspennuna fara vaxandi. „Þó að myndirnar, Börn og For- eldrar, hafi nánast verið gerðar sam- tímis eru þær tvær algerlega sjálf- stæðar myndir og það þarf enginn að hafa séð Börn til að skilja Foreldra. Það var í rauninni vinnuaðferðin sem varð til þess að þetta urðu tvær myndir. Við byrjuðum á því að búa til persónur, sem leikararnir og ég unn- um í sameiningu. Þeir fundu sér fólk, kannski úr raunveruleikanum, og sköpuðu þeim bakgrunn, tilfinning- ar, atvinnu og sambönd og svo leiddi ég þær saman. Lét þær mætast og skoðaði hvað gerðist í þeim og milli þeirra. Það var ekki fyrr en allar per- sónur voru fullmótaðar að við fórum að skissa söguna en við fórum í tökur án þess að skrifa díalóg. Leikararnir vissu hins vegar nákvæmlega hverjir þeir voru og af hverju þeir gerðu eða sögðu eitthvað. Þessar vinnuaðferðir eru sóttar í smiðju Cassavetes, Mikes Leigh og Goddards, en við vildum gera mynd um íslenskan raunveru- leika, um fólk, foreldra og börn, fyr- ir Íslendinga,“ segir Ragnar Bragason leikstjóri. Millistéttarforeldrar „Við byrjuðum að vinna með sex karaktera en ég splittaði þeim síð- an upp þremur og þremur. Í Börn- um eru það Gísli Örn, Nína Dögg og Darri sem mynda kjarnapersón- urnar en í Foreldrum eru það Ingv- ar, Nanna Kristín og Víkingur. En persónurnar skiptast líka upp eft- ir efnahag. Fólkið í Börnum er ein- hvers konar dreggjar samfélagsins, fólk sem kannski ekki sést svo mik- ið, meðan persónurnar í Foreldr- um eru af þessari millistétt sem er lunginn úr þjóðfélaginu, menntað- ar og hafa komið sér ágætlega fyrir efnalega. Veruleiki þeirra er þannig ólíkur á milli myndanna en þær eiga það sammerkt að mannlegar tilfinningar eru allar af sama meiði. Samskipti barna og foreldra byggj- ast á tilfinningalegum grunni sem er öllum sameiginlegur. Við sjáum samt glimt af persónum úr Börnum í Foreldrum en þær standa alveg sjálfstæðar þar,“ segir Ragnar. Sami stíll og uppbygging „Það var enginn munur á gerð þessara mynda fyrir mig og „crewið“, fyrir okkur var þetta bara eitt stórt verkefni. Gerðar jöfnum höndum á sama hátt þannig að útlit mynd- anna er í sama stíl og uppbygging þeirra eins,“ segir Ragnar. Þessar myndir báðar eru mjög ódýrar, enda áttum við enga peninga þegar við fórum af stað. Við vildum bara gera bíómynd og gerðum þær í raun á ástríðunni einni saman. Við vissum að við værum með eitthvað í höndunum sem skipti máli og von- uðumst eftir að menn myndu átta sig á því og að peningarnir myndu skila sér að lokum, sem varð raunin. Þetta var svona eins og að leggja af stað með eina feita, stóra yfirdrátt- arheimild en öllum kostnaði var haldið algerlega í lágmarki.“ Svart-hvít mynd „Það að myndin er svart-hvít kom upphaflega til af sömu ástæðu. Við vorum að spara, en persónurn- ar verða líka fyrir bragðið skýrari og skarpari. Þó að það væri fyrirfram neikvætt vegna markaðssetningar að gera myndirnar svart-hvítar er ég mjög ánægður með eftiráviðbrögð fólks sem finnst það virka vel. And- lit leikaranna fá meira vægi enda voru það þeir sem ég vildi fókusera á. Vandamál sem venjulega tengjast litum, eins og sviðsmynd og fleiru, núlluðust út,“ segir Ragnar. Óvænt viðbrögð erlendis „Viðbrögðin erlendis komu mér skemmtilega á óvart. Ég hafði von- ast til að að minnsta kosti einn dreifingaraðili myndi sýna Börn- um áhuga þegar við sýndum hana í Haugasundi í fyrra en það kom verulega á óvart að allir vildu fá hana og að þurfa að velja á milli. Um leið vildu menn fá Foreldra og það er mikill áhugi á að fá þær á hátíðir víðs vegar um heim. Það er orðið nokkuð ljóst að við fáum fyrir kostnaði og allt bendir til að menn fái jafnvel einhver laun fyrir sína vinnu. Ég get ekki verið annað en ánægður með útkomuna,“ segir Ragnar að lokum. kormakur@dv.is Íslenskmillistéttarvandræði kvikmynd Leikrit Birgis sigurðssonar dagur vonar var frumsýnt í gær: Græna ljósið sýnir kvik- myndir Græna ljósið, dreifingar- fyrirtæki Ísleifs Þórhallsson- ar, hyggst frumsýna eina til tvær myndir í hverjum mán- uði árið um kring. Fyrirtæk- ið frumsýndi nýlega mynd- ina Little Miss Sunshine, sem fengið hefur afar góða dóma auk tveggja Golden Globe-til- nefninga. „Við viljum gera sýningará- tak núna og höfum samið við kvikmyndahúsin um að frum- sýna eina til tvær myndir í mán- uði. Höfuðstöðvarnar verða að öllum líkindum í Regnbogan- um. Auk þess höfum við samið um að afnema íslenska hléið og fækka auglýsingum, sem þýð- ir að sýningin byrjar fyrr,“ sagði Ísleifur í stuttu spjalli við DV. Meðal væntanlegra mynda er Venus með Peter O’Toole, sem sýnir eftirminnilega frammi- stöðu í hlutverki leikara sem er kominn á efri ár, en yngist allur upp við að kynnast óhefl- aðri táningsstúlku. O’Toole er er tilnefndur til Golden Globe- verðlauna fyrir besta leik ársins og þykir einnig líklegur til að hreppa Óskarinn í febrúar. Alþjóðlegur menningar- samningur Ríkisstjórn Íslands sam- þykkti á þriðjudag að stað- festa samning 148 ríkja um að vernda og styðja við fjölbreyti- leg menningarleg tjáning- arform frá 33. aðalráðstefnu Menningarmálastofnun- ar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) 20. október 2005. Samningurinn öðlast gildi 18. mars. Markmið samningsins er meðal annars að vernda og stuðla að menningarlegri fjölbreytni og skapa skil- yrði fyrir auknum samskipt- um á milli ólíkra menning- arheima. Margvísleg ákvæði eru í samningnum en meðal annars heimilar hann ríkjum að veita opinberum stofnun- um, listamönnum og útvarpi í almannaþágu fjárstyrki. Einnig hvetur samningurinn ríki til að skapa skilyrði fyrir einstaklinga og hópa til list- sköpunar og til þess að veita þeim aðgang að menningar- legum tjáningarformum ann- arra þjóða. Grundvallaratriði samningsins er réttur hvers ríkis til að styðja og styrkja eig- in menningu, jafnframt því sem virða beri menningarleg- ar afurðir annarra ríkja.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.