Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Side 78

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Side 78
RappsýRa á stúd- entakjallaRanum Haldnir verða heljarinnar rapptónleikar undir yfirskriftinni rappsýra og hipp hopp geðhvörf á Stúdentakjall- aranum á laugardagskvöldið. Hljómsveitir kvöldsins eru Forgotten Lores, sem gaf út skífuna Frá heimsenda fyrir jól, Bent sem einnig átti disk í jólaflóðinu og þeir félagar Dóri DNA & Daníel Deluxe. Margir töldu íslenska rappið vera dautt en eftir vel heppnaðar plötur frá bæði Bent og Forgotten Lores er víst að rappið er enn í fullum blóma. Á staðnum verður ýmis varningur til sölu frá böndunum, til dæmis geisladiskar og bolir. Húsið verður opnað kl. 21, kostar 1.000 krónur inn og 18 ára aldurstakmark. spennan eykst í moRfís Fyrstu umferð í Mælsku og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi, eða Morfís, er nú lokið. Athygli vakti að ríkjandi meistari Menntaskólinn í Reykjavík beið lægri hlut fyrir Menntaskólanum við Hamrahlíð, en þau lið öttu kappi í úrslitum í fyrra. Önnur umferð fer fram nú í janúarmánuði og mætast þá eftirfarandi lið: Flensborg og FG, MH og MS, Kvennó og Borgó og FB og VÍ. Úrslit keppninnar verða svo ljós í mars. Reykjavík! til Hollands „Það má eiginlega segja að þetta sé eins konar hollenskt Airwaves, nema bara stærra,“ segir Haukur S. Magnússon, gítarleikari Reykjavík!, en piltarnir munu spila í kvöld á Eurosonic- hátíðinni í Gronigen þar sem ungar og efnilegar hljómsveitir koma fram. Á hátíðinni munu meðal annars spila Peter Bjorn and Jon, sem hafa verið bókaðir hingað til lands seinna í mánuð- inum. Haukur segir hljómsveitina þó ekki stefna að heimsfrægð, heldur sé þetta mun frekar gott tækifæri til þess að fá að fara í skemmtilega utanlandsferð. föstudagur 12. janúar 200778 Helgarblað DV Venni Páer í útrás Athafnamaðurinn og grínarinn Vernharð Þorleifsson vinnur nú að því að koma þátt- um sínum á markað í Evrópu. Vinna er þegar hafin við að gera enska og norska texta við þættina og viðurkennir Vernharð að hann líti mikið til Magnúsar Scheving og ævintýra hans um Latabæ. Vernharð Þorleifsson hefur undanfarið vakið heilmikla athygli fyrir þætti sína um Venna Páer, sem sýndir hafa verið á SkjáEinum. Venni er stór- huga varðandi framtíð þáttanna og stefnir hann nú með hugmyndina um einkaþjálfarann út fyrir land- steinana. „Ætli það megi ekki segja að þetta sé á þýðingarstigi. Við erum bara að texta þættina núna og þetta er eiginlega allt í start- holunum ennþá, við erum ekki en búin að selja þættina erlendis, en við erum að vinna í því núna.“ Dáist að Magnúsi Scheving Að sögn Venna er verið að gera enska og norska texta við þættina um þessar mundir, ennþá er þó óljóst hvenær þættirnir munu sjást í bresku sjónvarpi. „Upphaflega, þegar ég skrifaði handritið, þá hélt ég að þetta yrði komið í sjónvarp- ið eftir mánuð, en það tók tvö og hálft ár. Þannig að ef ég er spurð- ur núna segi ég að það verði byrjað að sýna þáttinn í Bretlandi í sumar, en það er náttúrulega bara bölvuð vitleysa.“ Vernharð viðurkennir fúslega að hann líti mikið til Magnúsar Scheving í þessum efnum, enda dáist hann að því sem Magnús hef- ur náð að afreka. „Ég er svo sem ekki í neinu sérstöku samstarfi við Magnús, annað en það að ég sýndi honum handritið að þáttun- um þegar við vorum að byrja, en það sem hann hefur náð að gera er ótrúlegt. Magnús er maður sem ákveður að gera eitthvað og ger- ir það um leið. Ef hann hefði sagt það fyrir 15 árum að hann ætlaði að slá í gegn með Latabæ, þá hefði fólk talið hann vera klikkaðan.“ Getur slegið í gegn Tvö fyrirtæki koma nú að útrás Venna Páer, en það eru Max Páer og Filmumenn, sem bæði koma að þáttunum á SkjáEin- um. „Ég tel mig alla- vega vera með söluvöru í höndunum sem get- ur slegið í gegn, en svo kemur bara í ljós hvort við getum selt þetta. Ég er með breitt bak og get lagt ýmislegt á mig. Ég er allavega mjög bjartsýnn á þetta æv- intýri.“ valgeir@dv.is „Ég og nokkrir félagar erum að setja á laggirnar nýja hljómsveit sem heitir The Handsome Gang,“ segir Guðni Rúnar Gunnarsson að- spurður en hann er betur þekktur undir nafninu Mr. Handsome. „Það eru þegar komnir nokkrir meðlim- ir. Til dæmis Pétur Jökull sem spilar með mér á hljómborð í Dr. Mister og Mr. Handsome, Frosti Jón sem var í hljómsveitinni Klink og fleiri góðir. Við eigum svo eftir að finna tromm- ara líka. Það gæti líka verið að Siggi Lauf verði með okkur í þessu verk- efni.“ En Guðni spilar með Sigurði Laufdal í næsta lagi sem hann sendir frá sér. Sigurður hef- ur verið að gera það gott með lagi sínu Í frelsarans nafni á út- varpsstöðvum lands- ins en hann er son- ur hins góðkunna trúbadors Guðlaugs Laufdal. „Tónlistin verð- ur eins konar fram- tíðarþungarokk með smá teknóívafi,“ seg- ir Guðni um þá tón- listarstefnu sem The Handsome Gang mun aðhyllast. „Þetta verður samt meira bara bland úr öllum áttum frekar en einhver ein ákveð- in stefna.“ Guðni talar einnig um að hafa sett sig í samband við Rott- weilerhundinn Bent um að rappa með þeim félögum. „Dr. Mister & Mr. Handsome eru komnir í góða pásu núna. Allavega fram á sumar,“ segir Guðni en hljóm- sveitin mun leika á sínum síð- ustu tónleikum í óákveðinn tíma á Broadway annað kvöld. Hann neitar því að hljómsveitin sé að leggja upp laupana. Guðni seg- ir þá félaga ennþá stefna að því að gefa út sína aðra plötu sem þeir eru þegar byrjaðir að vinna í. asgeir@dv.is Guðni Rúnar Gunnarsson úr Dr. Mister & Mr. Handsome er forsprakki nýrrar hljómsveitar sem ber nafnið The Handsome Gang Mr. HandsoMe Með nýtt band Guðni Rúnar Gunnarsson forsprakki nýju hljómsveitarinn- ar the Handsome gang. Dr. Mister & Mr. Handsome taka sér langa pásu eftir tónleikana á Broadway annað kvöld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.