Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Blaðsíða 86

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Blaðsíða 86
FÖSTUDAGUR 12. jAnúAR86 Helgarblað DV Elma Lísa Gunnarsdóttir leik-kona hefur í mörg horn að líta þessa dagana. Hún æfir í tveim- ur verkum sem sett verða upp í Þjóð- leikhúsinu, átti góða spretti í Ára- mótaskaupinu og er hluti leikhópsins Sokkabandið sem hefur starfað í fjögur ár. Á mánudaginn tilkynnti menntamálaráðherra að Sokkaband- ið hljóti 5,2 milljóna króna styrk til uppsetningar á nútímasöngleiknum Hér og nú sem leikhópurinn ætlar að semja í samvinnu við Baggalút. Það er ákveðin rútína í gangi hjá mér alla morgna: Ég stilli á Rás 2 í útvarpinu, fer í sturtu, fæ mér „boost“ og borða morgunmat. Ég þarf alltaf að eiga stund með sjálfri mér áður en vinnu- dagurinn hefst. Það er augljóst að það er ískalt úti... Góða úlpan sem ég fékk í jóla-gjöf kemur að góðum not-um þar sem ég geng niður á Hverfisgötu. Það eru fáir á ferli; það er dimmt og kalt, en ég er með gleði í hjarta. Ég veit nefnilega af gulrótinni sem bíður mín síðar í dag: Styrknum til uppsetning- ar á söngleiknum Hér og nú. Kaupi mér kaffi latte í götumáli á Gráa kett- inum... Við erum að hefja samlestur á leikritinu Legi eftir Hugleik Dagsson. Leikararnir eru tíu og Stefán Jónsson leikstjórinn. Við höfum verið við dans- og söngæfingar, en frumsýn- ingin verður 3. mars. Þetta verk er al- gjör snilld!... Hádegishlé. Til að lifa daginn af finnst mér nauðsynlegt að borða góðan hádegis- mat. Í dag er fiskur á borðum í mötu- neyti Þjóðleikhúss- ins. Eðlilega er nokkuð verið að ræða styrkveitingar til leikhúsa og leikhópa og það er verið að óska mér til ham- ingju. Það er mikið að gera þessa dag- ana, þar sem ég er að æfa í tveimur leikritum, Legi og Sælueyjunni í leik- stjórn Maríu Ellingsen. Það leikrit er vísindaskáldskapur með áherslu á erfðavísindi og frumsýning verður föstudaginn 19. janúar... Æfingum lauk klukkan fjög-ur og þá lagði ég af stað nið-ur í Iðnó. Þar var hápunkt- ur dagsins, þegar ég tók á móti styrk frá Leiklistarráði ásamt félögum mínum í leikhópnum Sokkabandinu. Styrkurinn er veitt- ur til verksins Hér og nú, sem er nýtt íslenskt verk, samið af okkur í Sokka- bandinu og Baggalúti. Þetta verður nútímasöngleikur, byggður á glans- tímaritum og snillingarnir í Baggalúti sjá um tónlistina. Við stefnum á frum- sýningu í haust... Það er mikið talað og hlegið á Horninu, þangað sem ég er mætt til að halda upp á styrk- veitinguna með því að fá mér pítsu með eiginmanni mínum og vinum. Ég verð þó að fara snemma heim, því á morgun byrja æfingar snemma. Það var heppilegt að eiga æfingafrí í kvöld, en þessa dag- ana æfi ég fyrst frá tíu á morgnana til fjögur og svo aftur frá sjö á kvöldin til ellefu. Gat samt ekki stillt mig um að horfa á einn þátt af 24 áður en ég kom mér í háttinn... Dagur í lífi Elmu Lísu Gunnarsdóttur Miðvikudagur 10. janúar kl. 8.30 kl. 16.30 að lokum kl. 19.00 kl. 10.00 kl. 9.30 Hvalur á haugum Helmingurinn af hvölunum, sem veiddust hjá Hvalstöðinni fyrir jól, er nú kominn á haugana í Fífl- holtum. Það er sá hluti, sem áður fór í bræðslu. Ekki hefur gengið neitt að selja hinn helminginn, þótt ætla megi, að hvalveiðisinnar geti skotið saman fyrir kostn- aði. Kannski verður kjötið gefið eins og við gáfum Bandaríkja- mönnum lambakjöt áður en þeir neituðu að skipta við okkur. Útrásarmenn íslenzka hagkerf- isins kvarta sáran yfir hvalveið- unum. Þær eru bara neyðaróp þjóðrembdra, sem ekki vilja láta aðra segja okkur fyrir verkum og vilja væntanlega borga fyrir þann lúxus. Raunsæismennirnir Ég vil ekki taka þátt í að niður- greiða raforku frá Kárahnjúk- um. Mér finnst, að stuðningsmenn orkuversins eigi að gera það ein- ir. Ég vil ekki taka þátt í að niðurgreiða lambakjöt til útflutnings. Mér finnst, að stuðningsmenn sauð- fjárræktar eigi að gera það einir. Ég vil ekki taka þátt í að niður- greiða hvalveiðar. Mér finnst, að stuðningsmenn hvalveiða eigi að gera það einir. Mér finnst út í hött, að menn geti talið sig raunsæismenn út á stuðning við arfavitlausar stjórnvaldsgerðir. Mér finnst, að þeir eigi að borga brúsann eða þegja öðrum kosti. Olían í fókus Heildarmagn olíulinda minnk- ar. Fyrir hverjar tvær tunnur, sem notaðar eru, finnast lindir, sem jafngilda einni tunnu. Um þetta mun heims- pólitíkin snú- ast næstu tvo áratugina. Á þeim tíma mun fram- leiðslan byrja að minnka og olíuverð rísa til skýjanna. Rússar munu fljótt klára sína olíu. Nánast öll olía á heimsmarkaði mun þá koma frá Persaflóa. Sólarorka og vetnis- orka er eina leiðin úr þessum vanda og úr vanda loftmengun- ar. Þeir munu hrynja, sem harð- ast berjast um olíuna, einkum Bandaríkin. Hinir munu lifa af, sem treysta á sól og vetni. En við þurfum greinilega að hraða vetni- svæðingu. jonas@ hestur.is veðrið um Helgina ritstjorn@dv.is LaugaRdaguR 7 4 5 7 3 6 3 9 3 2 7 1 510 3 5 3 8 0 3 1 1 7 3 8 10 2 2 0 5 5 5 5 2 5 3 1 8 3 SunnudaguR Þetta var góður leikur! Snjór og kuldi „Ég er auðvitað afar ánægður með þetta,“ segir Hugleikur Dagsson um þær fregnir að bókin hans Should You Be Laughing at This hafi selst í 10.000 eintökum í Bretlandi. Bók- in er ensk þýð- ing á Forðist okk- ur sem kom út hér heima fyrir nokkrum árum. Hún hefur selst í um 5.000 eintök- um hérlendis en allar útgáfur á bókum Hugleiks hafa selst upp hér heima. „Ég veit í rauninni ekkert um framhaldið eða hvað tekur við varðandi útgáfuna. Það eina sem ég hef í höndunum um þessar mundir eru sölutölurnar.“ 10.000 eintök á nokkrum vikum „Eitt af undirforlögum Penguin- útgáfunnar í Bretlandi gaf bókina út þar undir lok ársins 2006,“ segir Egill Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri JPV útgáfu sem hefur gefið út bækur Hugleiks hér heima. „Penguin ákvað að gefa út innbundna útgáfu af bók- inni til að sjá hvernig henni gengi áður en hún væri sett í kilju og fyrstu tölur segja okkur að það séu farin um 10.000 eintök af bókinni á aðeins nokkrum vikum.“ „Bókin hefur líka fengið mikla at- hygli í blöðum í Bretlandi og meðal annars hafa birst greinar og fréttir um hana í blöðum eins og The Gu- ardian og The Irish Sun sem er syst- urblað The Sun,“ segir Egill og tekur einnig fram að vegna velgengninnar og frumsýningar á söngleiknum Leg eftir Hugleik verði bókin gefin aftur út á Íslandi. Stefnt á útgáfu um allan heim „Enn sem komið er hefur bók- in bara komið út í Bretlandi en það styttist í útgáfu hennar í Bandaríkj- unum, Þýskalandi, Danmörku, Nor- egi og hugsanlega Ástralíu og Ítalíu,“ segir Egill og telur líklegra en ekki að fleiri lönd bætist í hópinn. „Upphaflega var ætlunin að gefa út þessa þýðingu af Forðist okkur og sjá hvernig Bretarnir tækju í hana og það er bara ekki við öðru að búast eftir þetta en að þeir vilji gefa út allt sem Hugleikur hefur gert.“ asgeir@dv.is kl. 12.00 Hugleikur dagsson gaf út bókina Forðist okkur í Bretlandi rétt fyrir áramót og hefur hún þegar selst í þúsundum eintaka: Hugleikur selur 10.000 bækur í bretlandi „Það er útlit fyrir það að áfram verði fremur kalt á landinu um helg- ina, einkum þó norðan- og norðaust- anlands. Lægðirnar halda áfram að fara til austurs fyrir sunnan landið og við sitjum í lofti sem er af vestrænum uppruna,“ segir Einar Sveinbjörns- son, veðurfræðingur. Hann segist reikna með því að vindurinn verði svona almennt séð fremur hægur á landinu. „Það sem meira er að við eigum eftir að sjá snjókomu og sums staðar í sæmilegu magni. Einna síst er búist við að það snjói um landið norðaust- anvert. Eins og svo oft áður þegar loft- ið yfir landinu kemur úr vestri raðast gjarnan upp éljagarðar og snjókomu- bakkar með ýmsu móti sem berast með vindi inn á landið sunnan- og vestanvert. Smálægðir eiga það líka til að myndast í þessu lofti suðvestur- undan án þess endilega að tölvulíkön nái myndun þeirra,“ segir Einar. Hversu mikið mun snjóa og hvar, eru einmitt helstu óvissuþættir veð- urspár helgarinnar, ásamt því að um tíma gæti blásið eitthvað hressilegar en segir á veðurkortunum að neðan, að sögn Einars. Egill Örn Jóhannsson Framkvæmdastjóri jPV segir stefnt á útgáfu í fjölmörgum löndum. Ánægður huglEikur Should You Be Laughing at This rokselst í Bretlandi. kolsvartur húmor Bretar virðast kunna að meta miskunnarlausan húmor Hugleiks.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.