Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Page 6
miðvikudagur 4. apríl 20076 Fréttir DV
Verð fyrir tannlæknaþjónustu hef-
ur hækkað um 35 prósent á síðustu
fimm árum. Sú hækkun er töluvert
umfram meðaltalsþróun almenns
verðlags en vísitala neysluverðs hefur
hækkað um tuttugu prósent á þessu
sama tímabili. Tannlæknar hafa því
hækkað um fimmtán prósentustig
umfram meðaltalið.
„Þetta er ansi hressileg hækkun.
Þetta er langt umfram það sem eðli-
legar hækkanir gefa tilefni til og ég
velti vöngum hvort í raun sé virk sam-
keppni milli tannlækna. Sökum þess
hversu erfiður markaður þetta er fyrir
neytendur, skiptir það miklu máli að
birta verð og nöfn allra tannlækna,“
segir Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna.
Fram til ársins 1999 gilti samn-
ingur milli Tryggingastofnunar og
tannlækna þar sem verðskráin var
samræmd á heildina og miðaðist við
svokallaða ráðherraverðskrá. Eftir
það var verðlag gefið frjálst til þess
að skapa samkeppnisgrundvöll í
tannlækningum. Frá þeim tíma hef-
ur þjónusta tannlækna hækkað um
helming.
Undir launaþróun
Guðrún Ragnheiður Jónsdóttir,
deildarstjóri vísitöludeildar Hagstofu
Íslands, tekur undir og segir hækk-
unina umfram meðaltal. Hún bendir
jafnframt á að verðlagsþróun þeirra
sé undir almennri launaþróun fyr-
ir sama tímabil. „Vissulega er þetta
nokkuð yfir meðaltalinu. Samt hefur
þetta ekki fylgt almennri launaþró-
un. Á þessu sama tímabili hefur verið
mikil kaupmáttaraukning en hækk-
unin er engu að síður töluvert um-
fram meðaltalið,“ segir Guðrún. „Það
má segja að þessi hækkun sé í meira
lagi. Laun og húsnæði eru auðvitað
stórir liðir hjá tannlæknum og þeir
liðir hafa hækkað nokkuð á síðustu
árum. Því meiri sem hækkunin er
umfram meðaltalið þá hækkar með-
altalið og verðbólga eykst.“
Erfiður samanburður
Sigurjón Benediktsson, formað-
ur Tannlæknafélags Íslands, setur
fyrirvara við samanburð við hefð-
bundnar neysluvörur. Hann segir
einu raunhæfu leiðina að miða við
launaþróun annarra sérfræðistétta.
„Útgjöld heimilanna vegna heimil-
istannlækna hafa lækkað, það liggur
fyrir. Það er ekki raunhæft að miða
tannlæknaverð við verð á flatkökum.
Ég stend fastur á því að laun tann-
lækna hafa ekki hækkað heldur þvert
á móti, því miður,“ segir Sigurjón. „Ef
hækkunin er óeðlileg þá er það at-
hugunarvert. Miðað við flatkökur þá
höfum við hækkað mikið en ekki í
samanburði við aðra sérfræðinga. Ég
ætla að leyfa mér að efast um þenn-
an samanburð og tel tannlækna ekki
hafa hækkað meira en sambærilegir
hópar sem styðjast við útgjöld og að-
keypta vinnu. Laun tannlækna hafa
hækkað minna en laun almennt og
ég held mig ákveðið við það.“
1996
1998 2000
2002
2004
2006
2007
Vísitöluþróun
launaþróun
84
,8
65
,5
88
,5
75
,0
92
,4
84
,3 10
0,
0
10
0,
0
11
3,
0
10
9,
7
12
5,
7
12
6,
8
13
4,
9
13
8,
8
Verð á tannlækningum hefur hækkað mikið undan-
farin ár en minna en launaþróun. Taflan sýnir þróun-
ina miðað við verðlag 2002.
Tannlækningar
TraUsTi hafsTEinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Helmings Hækkun
Tannlæknaþjónusta hefur hækkað meira en almennt verðlag á síðustu fimm árum.
sigurjón ��n�di��ss�n , formaður Tannlæknafélags Íslands, segir laun tannlækna ekki
hafa hækkað. Formaður Neytendasamtakanna efast um að samkeppnin sé virk.
hæ��að um h�lming
Frá því að verðlag tannlækna var
gefið frjálst 1999 hefur það
hækkað um helming samkvæmt
vísitölumælingum Hagstofu
íslands. Hækkunin er töluvert yfir
meðaltali almenns verðlags en
undir launaþróun síðustu fimm
ára. myndin tengist ekki
verðþróun tannlækna.
Skoðið
Gagnvirkt efni og leikir – heima og í skólanum
Það er leikur að læra á vef Námsgagnastofnunar
má finna ýmislegt fróðlegt
og skemmtilegt fyrir krakka á
öllum aldri. Vefurinn er opinn
fyrir alla.
Á www.nams.is
NÁMSGAGNASTOFNUN
Ofsahraði
á suðurnesjum
Lögreglan á Suðurnesjum
stöðvaði ökumann á 146 kíló-
metra hraða á Reykjanesbrautinni
á mánudagskvöldið. Leyfilegur
hraði er 90 kílómetrar. Þá var ann-
ar tekinn á svipuðum stað á 114
kílómetra hraða. Einnig var öku-
maður stöðvaður á Njarðarbraut
í Reykjanesbæ en hann ók á 77
kílómetra hraða þar sem hámarks-
hraðinn er 50 kílómetrar á klukku-
stund. Þrjár bifreiðar voru svo
boðaðar í skoðun fyrir vanrækslu á
aðalskoðun.
Ólafur Ragnar
í Ohio
Ólafur Ragnar Grímsson for-
seti hélt fyrirlestur um umhverf-
ismál í ríkisháskóla Ohio á dög-
unum. Samtímis
voru samstarfs-
samningar und-
irritaðir milli
Háskóla Íslands,
Landbúnaðarhá-
skólans og Há-
skólans á Akureyri
og ríkisháskólans
í Ohio. Þá voru
jafnframt mótað-
ar tillögur um rannsóknarverk-
efni í landgræðslu, orkumálum,
jöklafræðum og aðgerðir gegn
loftslagsbreytingum. Forsvars-
menn íslensku háskólanna undir-
búa alþjóðlega ráðstefnu í byrjun
september.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Atlantsskip í
Hafnarfjörðinn
„Þetta mun gjörbylta starf-
seminni þar sem við getum
nú geymt vörur til lengri
tíma og í meira magni,“ segir
Gunnar Bachmann, fram-
kvæmdastjóri Atlantsskipa,
um flutning fyrirtækisins úr
12 þúsund fermetra geymslu-
svæði í Kópavogi í 40 þúsund
fermetra í Hafnarfirði.
Áður gátu Atlantsskip ekki
geymt vörur eins og bíla til
lengri tíma því ekki er hægt
að stafla þeim auk þess sem
þeir taka mikið pláss. „Einnig
munum við bjóða skipum að
landa beint í skipin okkar,“
segir Gunnar sem segir að
flutningurinn muni verða
vaxtarbroddur fyrirtækisins
til framtíðar.