Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Side 11
DV Fréttir miðvikudagur 4. apríl 2007 11
tilboð Á grenningar-
OG heilsumeðferð
S k e i f u n n i 3 j · S í m i 5 5 3 8 2 8 2 · w w w. h e i l s u d r e k i n n . i s
Helmingur útlenskra fanga
frá austur-evrópu
ferðisbrotum og litið sé til þess
þegar ákveðið er hvar viðkom-
andi eigi að afplána. „Það fer eftir
brotum og mönnum. Sumir hafa
farið í meðferð og breytt lífshátt-
um áður en afplánun hefst. Við
reynum að skoða hvern fyrir sig,
aldur, brotaferil og ástand,“ segir
Erlendur. Oft er betra fyrir þá sem
eru án vímuefna að vera annars
staðar en á Litla-Hrauni þar sem
ástandið er einna versta hvað það
varðar. Erlendur segir þó marga á
Litla-Hrauni vera edrú en þar er
öflugt AA-starf og eru sumir gang-
anna nánast án vímuefna.
Erlendur segir dæmi um að
fangar sem sýnt hafi góða hegðun
og verið til fyrirmyndar fái flutn-
ing á Kvíabryggju en það gerist þó
ekki oft því þar eru fá pláss. Það
mun þó lagast í haust þegar pláss-
um fjölgar í kjölfar breytinga.
Í fangelsinu á Akureyri eru
flestir fanganna með dóma fyr-
ir umferðarlagabrot. „Reynt er
að hafa menn með heldur styttri
dóma á Akureyri út af slakri að-
stöðu þar,“ segir Erlendur en í
fangelsinu á Akureyri á líka að
gera breytingar til að bæta að-
stöðuna og verður fangelsið tilbú-
ið eftir rúmt ár. Þrátt fyrir slaka að-
stöðu vilja sumir vera á Akureyri
vegna nálægðar við fjölskyldu.
Besti möguleikinn til náms
Margir fangar vilja á Litla-
Hraun, sem er mesta öryggisfang-
elsið, vegna þeirra möguleika til
náms sem þar eru. Þar eru skóla-
stofur og tölvuherbergi og kenn-
arar frá Fjölbrautaskóla Suður-
lands koma til að kenna. „Það er
greinilegt að þessi möguleiki getur
breytt miklu, því miklu getur skipt
fyrir fangana að hafa eitthvað til
þess að stefna að. Svo gleður þetta
oft mömmurnar þegar drengirnir
hringja af Litla-Hrauni og segjast
hafa hafið nám,“ segir Erlendur
og bætir við að oft leynist góðir
námsmenn inni í fangelsinu. Það
kemur þeim sjálfum oft á óvart og
veldur viðhorfsbreytingu. Nám-
ið er sniðið að hverjum og einum
því afplánun lýkur á misjöfnum
tíma.
Erlendur er ekki alls sáttur
við þá gagnrýni um að ungum
glæpamönnum sé hent inn til al-
hörðustu glæpamanna landsins.
Þeir sem yngstir eru inni á Litla-
Hrauni séu til dæmis oft með
einna lengstan sakaferil og væri
til unglingafangelsi væri ekki gott
að hafa þá einstaklinga innan um
unglinga sem sætu inni fyrir fyrsta
brot. „Það kæmi aldrei til greina
að láta ungan mann með hreinan
sakaferil inn á Litla-Hraun til af-
plánunar.“
„Verðmætið er ein
hverjir milljarðar.“
ÓSKILORÐSBUNDNIR DÓMAR ÁRIN 2000 - 2006
FJÖLDI DÓMÞOLA EFTIR BROTUM
TEgUND BROTS Og ÁR: 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006
Manndráp / tilraun til manndráps 4 4 2 2 1 2 6
Auðgunarbrot / skjalafals 82 80 79 109 122 99 78
Umferðarlagabrot / nytjataka 131 120 136 108 105 106 147
Fíkniefnabrot 60 63 59 81 66 101 85
Kynferðisafbrot 6 6 14 23 16 14 18
Ofbeldisbrot 18 15 11 27 24 26 20
Brenna 0 0 0 0 3 1 0
Annað 12 14 11 18 24 21 10
SAMtAlS: 313 302 312 368 361 370 364
TILEFNI FANgAvISTAR ÁRIN 2000 - 2006
TEgUND BROTS Og ÁR: 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006
Manndráp / tilraun til manndráps 13 16 13 15 13 15 20
Auðgunarbrot / skjalafals 76 83 66 86 109 82 78
Umferðarlagabrot / nytjataka 43 39 55 53 39 34 52
Fíkniefnabrot 55 75 79 91 75 96 112
Kynferðisafbrot 10 14 14 30 36 27 28
Ofbeldisbrot 15 22 14 32 31 27 29
Brenna 0 0 0 0 0 4 4
Annað 7 5 10 18 14 20 8
SAMtAlS: 219 254 251 325 317 305 331
Kvennafangelsið í Kópavogi allir sem dæmdir
hafa verið fyrir manndráp sitja á litla-Hrauni. Fyrir
utan konu sem er vistuð í kópavoginum
Hegningarhúsið við Skólavörðustíg.
Elsta fangelsi landsins og er á undanþágu.
Ekki þykir gott að vera þar í refsivist.
Fangelsið á Akureyri
Þeir sem hljóta styttri dóma eru oft vistaðir
þar vegna þess hve slæm aðstaðan er.
60% MARKAÐSHLUTDEILD Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2004
MANITOU skotbómulyftarar - Þarfur þjónn, sem uppfyllir ströngustu gæði og væntingar þeirra kröfuhörðustu.
HANN ER GRIMMUR!
MANITOU MLT 634 TURBO INTERCOOLER
- VIÐURKENND VARAHLUTAÞJÓNUSTA í 44 ár
- Útvegum notaða skotbómulyftara
- Úrval notaðra lyftara á lager
Fjórhjóladrifinn
Fjórhjólastýrður
Lyftigeta: 3.400 KG
Lyftihæð: 6.050 MM
Gafflar: 1.200 MM
Vél: Perkins Turbo intercooler, 123 HÖ
LOAD SENSING!! Samtímis glussahreyfingar
án aukins snúningshraða vélar.
SKOTBÓMULYFTARI
PON PÉTUR O. NIKULÁSSON ehf.
Melabraut 23 • 220 Hafnarfjörður
Símar 552 2650 & 552 0110 • FAX: 552 1588 • e-maiL: pon@pon.is