Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Síða 21
DV Helgarblað miðvikudagur 4. apríl 2007 21
Píslarganga í Mývatnssveit
Hin árlega píslarganga verður gengin í kringum Mývatn á skírdag. Gang-
an hefst kl. 9 við Hótel Reynihlíð og verður gengið rangsælis í kringum
vatnið. Rúta fylgir göngufólkinu eftir og þar er hægt að geyma fatnað og
séu menn þreyttir geta þeir tekið sér far með rútunni. Í Skútustaðakirkju
verða Passíusálmarnir lesnir frá kl. 11 og fram eftir degi. Þar getur göngu-
fólk sest niður og kastað mæðinni en hádegishlé verður gert í Selinu.
Göngunni lýkur svo við Hótel Reynihlíð. Tilvalið er að skella sér í náttúru-
legt bað í jarðböðunum að göngu lokinni en þau verða opin alla páskana
frá 12 til 22. Þess má líka geta að Hótel Reynihlíð er með páskatilboð á
gistingu og á föstudaginn langa spila Ljótu hálfvitarnir í Skjólbrekku. Nán-
ari upplýsingar má fá á myvatn.org.
snjósleðar og KK á snæfellsnesi
Um páskana verður nóg um að vera á Búðum á Snæfellsnesi. Boðið verð-
ur upp á snjósleðaferðir á Snæfellsjökul og gönguferð um Búðahraun. KK
verður svo með tónleika á staðnum bæði á laugardag og sunnudag en þá
daga verður einnig boðið upp á páskaeggjaleit á staðnum. Fjöruhúsið á
Hellnum verður opið og er tilvalið að fara í gönguferð á milli Arnarstapa
og Hellna og fá sér hressingu þar. Gönguleiðin þangað er um 2,5 km löng
og er hægt að sjá hana á korti við bílastæðið við höfnina á Arnarstapa.
á göngusKíðuM við strút
Ferðafélagið Útivist býður upp á tvær páskaferð-
ir. Önnur er í Landmannalaugar og hin í Strút.
Við Strút eru aðstæður til gönguskíðaferða yf-
irleitt góðar og því er þetta gott tækifæri til að
komast á skíði. Nánari upplýsingar um báðar
þessar ferðir má fá á heimasíðunni utivist.is en
lagt er af stað í báðar ferðirnar á skírdag og kom-
ið til baka á mánudag. Ferðafélag Íslands stend-
ur fyrir gönguferðum bæði í Landmannalaugum
og Þórsmörk um páskana. Skálaverðir verða á
báðum stöðum og einnig fararstjórar í dagsferð-
um. Ef aðstæður leyfa verður farið á gönguskíði.
Ferðafélagið býður einnig upp á kirkjuferð að
Hvalsnesi sunnan Sandgerðis á skírdag.
göngutúr í nágrenni Bláa lónsins
Bláa lónið er opið alla páskana á milli klukkan 10 og 20 og þar verður
óvæntur glaðningur fyrir börnin. Annan í páskum verður boðið upp á
göngu frá bílastæðinu kl.13 í samvinnu við leiðsögumenn á Reykjanesi.
Genginn verður léttur hringur í hrauninu og þeir sem taka þátt í göng-
unni fá tveir fyrir einn í lónið og ókeypis hressingu.
Fjölskyldufjör
Páskarnir eru sá tími sem flestar fjölskyldur nýta til samveru.
Skíðabrekkurnar eru þar fastur áfangastaður hjá mörgum en
auk þess að skella sér á skíði geta foreldrar fundið upp á ýmsu
öðru til að gera með krökkunum í páskafríinu. DV gefur les-
endum sínum tólf hugmyndir að skemmtilegri páskahelgi.
um páskana
páskabíó
Það eru nokkrar nýjar fjölskyldumyndir í kvikmyndahúsunum sem foreldrar
og börn geta farið saman á um páskana. Fyrst ber að nefna ævintýrastór-
myndina Teenage Mutant Ninja Turtles. Þetta er teiknimynd um bardaga-
fimar skjaldbökur sem verða að stoppa dularfullan andstæðing sem hótar
að eyða heiminum. Meet the Robinsons er Disney-teiknimynd sem einnig
fer í sýningar um páskana en hún fjallar um pilt sem fær tækfæri til þess að
ferðast inn í framtíðina. Þeir sem ekki eru hrifnir af slíkum vísindaskáld-
skap geta í staðinn skellt sér á klassískari ævintýramynd sem heitir Happily
N‘Ever After. Í þeirri teiknimynd koma vond stjúpa, sjö álfar, Öskubuska og
fallegur prins og fleiri ævintýrafígúrur við sögu. Myndin er úr smiðju sama
framleiðanda og gerði Shrek-myndirnar. Nú svo er rétt að benda á það að
RÚV sýnir verðlaunamyndina Ferðalag keisaramörgæsanna á föstudaginn
langa en hún er frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Frítt leikhús
Fyrir börn
Leikfélag Reykjavíkur býð-
ur börnum, 12 ára og yngri,
frítt í leikhúsið í fylgd forráða-
manna. Þetta boð gildir á allar
leiksýningar, nema söngleiki
og barnasýningar. Það er sem
sagt algjör óþarfi að láta krakk-
ana sitja heima þótt fullorðna
fólkið langi í leikhús. Þannig
væri til dæmis hægt að taka
krakkana með á Laddasýning-
una í Borgarleikhúsinu á skír-
dag sem er bæði sýnd klukkan
17 og 20.
kíkt á kaFFihús
Það er alltaf notalegt að kíkja á
kaffihús og ekki er verra ef börnin
hafa einnig gaman af því. Þannig
geta jafnt fullorðnir sem börn
haft gaman af því að heimsækja
reyklausa kaffihúsið Súfistann við
Laugaveg. Krakkarnir geta fengið
sér barnakakó og flett barna-
bókum á meðan fullorðna fólkið
blaðar í nýjustu tímaritunum.
Opið er alla páskana á kaffihúsinu
frá klukkan 10 til 22 nema föstu-
daginn langa og á páskadag.
sund í sjópotti
Það er tilvalið að kíkja í nýja sjópottinn í Laugardalslaug um páskana.
Potturinn, sem er með nuddi, er fullur af sjó og skilar þeim sem hann
heimsækja endurnærðum, því saltið gerir líkamanum sérlega gott.
Laugin er opin alla páskana frá klukkan 10 til 20 nema á föstudaginn
langa þá er lokað klukkan 18. Þeir sem kjósa hefðbundna potta geta
skellt sér í Vesturbæjarlaugina sem er opin alla hátíðisdagana frá kl. 10
til 18 og á milli 8 og 20 á laugardeginum. Á Akureyri er sundlaugin opin
frá 9 til19 alla páskana.
Gramsað
í kolaportinu
Öll fjölskyldan getur fundið eitt-
hvað fyrir sig í Kolaportinu, eina
íslenska flóamarkaðinum. Þar
verður opið á laugardaginn og
annan í páskum frá 9 til 17.
páskaratleikur
Margir fara í fjölskylduboð
um páskana og til að lífga
aðeins upp á boðið mætti
auðveldlega búa til ratleik sem
öll stórfjölskyldan getur tekið
þátt í. Það er um að gera að láta
leikinn teygja sig út úr húsi og
hafa svo páskaegg í vinning.
6
7
8
9
10
11
12
Páskafríið er kjörið til útiveru:
lunGun Fyllt af súrefni