Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Blaðsíða 29
DV Páskablað miðvikudagur 4. apríl 2007 29 „Einu sinni fyrir langa löngu voru músík-elskir drengir í Menntaskól- anum í Hamrahlíð. Þeir ráfuðu þar um ganga skólans eins og gengur í leit að einhverju sem hugsanlega gæti gefið lífinu lit og tilgang. Einn var bjartur yfirlitum, meira á lengd- ina en hitt og stikaði stóran, svo var annar sömuleiðis ljós og hávaxinn, sérlundaður og snilldargóður á gít- arinn, og enn annar fíngerður með skeggló á höku eins og pardusdýr, skáldmæltur, þá var einn jarphærð- ur, átti ættir austur á firði og var sérdeilis laginn við að galdra fram eitthvað sem hann sjálfur kallaði „púkalega söngva“ og svo var einn söngvin, en þó hlédrægur og hélt sig helst með veggjum. Þeir vissu hver af öðrum og sá bjarti stórstikandi og sérlundaða ljósa gítarhetjan og þá sá jarphærði, með púkalegu söngv- ana, höfðu verið saman í hljómsveit sem einhvern tíman hafði verið skýrð hallærislegasta hljómsveitar- nafni sem þekktist þá; Stuðmenn. Hljómsveitin hafði komið fram einu sinni á árshátíð skólans í Súlnasal, Hótel Sögu. Þrátt fyrir nokkra hrifn- ingu sem þeim félögum tókst að vekja í Súlnasal Bændahallarinn- ar fór ekki mjög mörgum sögum af þeirri útgáfu sveitarinnar lengi vel, uns hún birtist nútíðarmönnum fyr- ir skömmu sem Frummenn, en það er önnur saga. Pardusdýrið með skegglóna, og sá jarphærði og veggjamaðurinn stofn- uðu í kjölfarið nokkrar hljómsveit- ir innan skólans, sem skýrðar voru nöfnum eins og; Hljómsveit Árna Vilhjálmssonar ( kennd við trommu- leikara sveitarinnar, sem nú starfar sem lögmaður), Hassansmjör, Egils og svo að lokum Spilverk Þjóðanna. Eftir að skólagöngu lauk hélt Spil- verkið áfram að starfa og þá gerðist það; að sá er stikaði áður um ganga skólans, bjartur yfirlitum og aðsóps- mikill, kallaði Spilverkið á fund og þar var ákveðið að halda til Lund- úna og freista þess að taka upp efni undir merkjum púkalegasta hljóm- sveitarnafns í heimi - úr varð hljóm- platan „Sumar á Sýrlandi“. Þegar þarna var komið sögu bættist enn einn ljósálfurinn í hópinn, sá var hinn slyngi töframaður fjórstrengja bassagígjunnar, Tómas Magnús úr Skeiðarvogi, síðar kom svo sérlund- aði gítarsnillingurinn aftur til liðs við sveitina og enn bættist í hópinn Mýr- dælingurinn Ásgeir Óskarsson, stó- ískur slagverksmaður og um svipað leyti gekk svo fegurðin sjálf til liðs við renglulega drengina, hún Ragga. Ekki þarf að fjölyrða um fram- haldið, en hljómsveit þessi er enn starfandi og nú hefur hrifningin og æskuþrótturinn, sem áður dró þetta fólk hvað að öðru, breyst í ævilanga vináttu.“ Hrifning og æskuþróttur Hafa breyst í ævilanga vináttu Egill Ólafsson tónlistarmaður er einn Stuðmanna. Þeirra vinátta hefur varað lengi eins og þjóðinni er kunnugt og stundum getur maður ekki hugsað sér neitt þeirra án hinna. Við gefum Agli orðið. „Í Menntaskólanum í Reykjavík - sem ég reyndar droppaði út úr - til- heyrði ég stórri klíku sem leit ansi stórt á sig og gerði sig mjög breiða í skólanum,“ segir Egill. „Kannski þykj- ast einhverjir muna að þessi hópur hafi aðallega haft áhuga á að drekka og djamma en það er reyndar ekki alveg satt, því við tókum mikinn þátt í félagslífinu líka. Sjálfur var ég for- maður Herranætur, Illugi Jökulsson sem hafði fylgt mér síðan í Haga- skóla var í ritstjórn Skólablaðsins, þar var líka Hrafn Þorgeirsson sem nú starfar hjá Icelandair – og var líklega skemmtilegasti maðurinn í hópnum, en bróðir hans, Halldór Þorgeirsson, nú kvikmyndagerðarmaður, var for- seti Framtíðarinnar. Þórhallur Ey- þórsson málfræðingur þótti gáfað- astur, andríkastur og best lesinn úr okkar hópi. Er það ábyggilega ennþá. Hann var formaður Listafélagsins.“ Egill rifjar upp skemmtilega sögu af því þegar hann þýddi kvæði eftir T. S.Eliot og fékk tiltal rektors. „Við Þórhallur og Illugi geng- umst mjög upp í því að vera bók- menntamenn. Það var svo sem ekki tóm sýndarmennska. Sjálfur tók ég mér fyrir hendur þá vitleysu að þýða kvæðið The Waste Land eftir T.S. Eliot og birta í skólablaðinu. Guðni rekt- or sagði að ég hefði „þýtt mig út úr skólanum“. Við gengum með bækur í frakkavösum og síteruðum alveg eins og við ættum lífið að leysa. Eftir á að hyggja var þetta samt ágætis mennt- un. Það voru fleiri bráðskemmtilegir menn sem tengdust þarna. Ég var líka í hljómsveit sem nefndist Gaukarn- ir með bræðrunum Haraldi Hrafns- syni og Einari Hrafnssyni, einhverj- um skemmtilegustu náungum sem ég hef nokkurn tíma kynnst. Þar var líka snillingurinn Ásgeir Sverrisson, blaðamaður á Mogganum. Þessi sveit fór í hreint ævintýralega hringferð um landið og spilaði í Atlavík. Þeg- ar við fórum í fótbolta spiluðu með okkur Magnús Erlingsson, prestur á Ísafirði, og Sigurður Ármann Sigur- björnsson sem hefur um árabil starf- að hjá Sameinuðu þjóðunum á verstu ófriðarsvæðum heimsins. Svo var það auðvitað Mímir – Mímir Völundarson – sem var einna bestur vinur minn á þessum árum.“ En strákarnir tengdust líka sér eldri vinaáttuböndum. „Í skólanum var fólk sem var að- eins eldra en tengdist okkur vináttu- böndum. Ég nefni fremstan Finn- boga Rút Arnarson, sendifulltrúa í París. Hann var þá í sambúð með Ragnheiði Gyðu Jónsdóttur, aldeil- is stórbrotinni konu. Þarna var líka afar virðulegur maður, launfyndinn, Guðni Bragason sem líka starfar í ut- anríkisráðuneytinu - ég held hann sé í Róm. Jafnaldrar þeirra voru Hilmar Oddsson, Karl Roth og Hróðmar Sig- urbjörnsson - við fórum saman í öku- ferð um Evrópu sumarið 1983, keyrð- um um á fínum Benz en gistum á tjaldstæðum. - Eitthvað gerði maður sem maður vill kannski ekki að sé rifj- að upp. Samt ekki svo margt. Líklega drakk maður og drabbaði of mik- ið. Stundum hitti ég fólk sem fannst ég vera hálfgerð ótukt í Menntaskóla – þetta var jú tími pönksins, anark- isma og borgarskæruliða - en verður hálf undrandi yfir því að ég sé þetta ljúfmenni sem ég held að ég sé. Þegar ég horfi yfir þennan hóp sem ég um- gekkst á unglingsárum og fram yfir tvítugt er ég býsna ánægður. Þetta var skemmtilegt fólk og mér sýnist hafa ræst ágætlega vel úr því flestu.“ gengumst upp í að vera bókmenntamenn Egill Helgason fjölmiðlamaður og Illugi Jökulsson eru vinir frá menntaskóla- árunum. Báðir eru gáfumenn sem hafa skarað fram úr en Egill segir vin þeirra, málfræðinginn Þórhall Eyþórsson hafa þótt gáfaðastan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.