Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Blaðsíða 43
DV Akureyri miðvikudagur 4. apríl 2007 43
Hjá sumum snýst lífið bara um ís... Aðalstræti 3 - Akureyri
Það hefur verið mikil uppgangur á síðustu
misserum hjá Leikfélagi Akureyrar. Aðsókn í
leikhúsið hefur margfaldast á síðustu árum og
aldrei hefur verið meira um að vera hjá félag-
inu en nú um páskahelgina. Þrjú leikverk verða
sýnd á fjölum leikhúsins um páskana. Þeirra á
meðal er nýtt íslenskt leikverk, Lífið notkunar-
reglur. Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri
Leikfélags Akureyrar, er himinlifandi með leik-
árið.
Einvala lið listamanna kemur að Lífið notk-
unarreglur. Þorvaldur Þorsteinsson skrifaði
verkið, Megas samdi tónlistina og leikstjórn
var í höndum Kjartans Ragnarssonar. „Þetta
eru miklir reynsluboltar og mikill akkur fyr-
ir leikhúsið að fá þessa frábæru listamenn til
liðs við okkur. Þeir stýra hér kraftmiklum hópi
nýrrar kynslóðar íslenskra leikara.“ segir hann,
en verkið er unnið í samvinnu við útskriftarár-
gang leiklistardeildar Listaháskóla Íslands og
er lokaverkefni þeirra við skólann. „Leikritið
hefur hlotið góða dóma og afbragðs aðsókn,
þegar er uppselt á 22 sýningar. Á fimmtudag
og laugardag verðum við með tvær sýningar á
dag. Það er virkilega ánægjulegt að leikritið nái
svona góðu gengi. Þetta er hrífandi og falleg
sýning sem veltir upp ýmsum spurningum og
snertir við fólki.“
Leiksýningin Bezt í heimi, sem sýnd var í
Iðnó við miklar vinsældir, verður gestasýn-
ing Leikfélags Akureyrar í kringum páskana.
„Við ákváðum í upphafi leikárs að fá eina
gestasýningu sem yrði sýnd undir vorið.
Við völdum Bezt í heimi vegna þess að
hún er mjög vel lukkuð sýning, sem unnin
er út frá innflytjendamálum, en í mjög létt-
um dúr. Það eru erlendir leikarar sem leika
að mestu á íslensku. Það er mjög gaman
að fá þessa sýningu til Akureyrar á þess-
um tímapunkti, enda fjallar hún um mál-
efni sem eru mjög viðeigandi í umræðunni
í dag. Í leikritinu er gert grín að þjóðarsál-
inni, þjóðarstoltinu og hvernig við höfum
tekið á útlendingum í gegnum tíðina.“
Einleikurinn Ausa Steinberg er þriðja
sýningin sem sýnd verður í kringum pásk-
ana. „Ilmur Kristjánsdóttir leikur í þess-
um einleik, hún fékk glimrandi dóma fyr-
ir frammistöðu sína. Þetta er yndislegt verk
og mjög mannbætandi. Það fjallar um níu
ára einhverfa stúlku og hennar sýn á lífið og
tilveruna. Ilmur var tilnefnd til Grímunnar
á sínum tíma fyrrr frammistöðun sína. Þetta
er gamansamt, hlýtt og fallegt verk sem læt-
ur engan ósnortinn. Í tilefni páskanna ætl-
um við að sýna það í Akureyrarkrikju. Okkur
fannst það viðeigandi út frá efni verksins að
sýna þetta í kirkjunni, það ætti því að vera há-
tíðleg stemming,“ segir Magnús Geir og bætir
við: „Þetta verða leikhúspáskar í leikhúsbæn-
um Akureyri.“
valgeir@dv.is
Leikhúspáskar
á Akureyri
Leikfélag Akureyrar sýnir
þrjú leikverk í kringum
páskana. Leikritið Lífið
notkunarreglur hefur hlotið
frábærar viðtökur, en auk
þess verða leikverkin Bezt í
heimi og Ausa Steinberg
sýnd í kringum páskana.
Magnús Geir Þórðarson, leik-
hússtjóri Leikfélags Akur-
eyrar segist himinlifandi
með árangur Leikfélagsins.
Ausa Steinberg
ilmur kristjándsdótti
r leikur níu ára
einhverfa stúlku í ein
leiknum.
Magnús Geir Þórðarson„Það er mikill akkur fyrir leikhúsið að fá þessa frábæru listamenn til liðs við okkur“
Næsta kynslóð leikara
lífið notkunarreglur hefur hlotið frábærar viðtökur.