Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Síða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Síða 48
miðvikudagur 4. apríl 200748 Sport DV Kvennalið Stjörnunnar í hand- knattleik tryggði sér á dögunum sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í níu ár. Liðið hefur sýnt mikinn stöðugleika á tímabilinu og er búið að tryggja sér sigur á Íslandsmótinu þegar enn eru þrjár umferðir eftir. Af þessu tilefni hittum við þjálfara liðsins Aðalstein Reyni Eyjólfsson sem þekktur er fyrir ákveðnar og skeleggar skoðanir á ís- lenskum handknattleik. Metnaðarfullur hópur Við byrjuðum á að spyrja Að- alstein út í lið hans, nýkrýnda Ís- landsmeistara. „Stjörnuliðið er mjög vel mannað í dag. Við höfum góða blöndu af duglegum og góð- um leikmönnum sem hafa metnað til að ná enn lengra. Allt sem við- kemur kvennahandbolta í Garða- bæ er til fyrirmyndar. Þeir Þorsteinn Rafn Johnsen og Bragi Bragason hafa ásamt góðum hópi fólks mótað um- gjörð í kringum liðið sem fáir þekkja. Það má segja að ég sé ofdekraður þjálfari. Ég held að ég hafi bara ekki fengið neitun við þeim óskum sem ég hef borið fram við þá,“ sagði Að- alsteinn sem er einnig á því að þeir félagar, Þorsteinn og Bragi, hafi sýnt mikla framsýni og fagmensku þeg- ar þeir ákváðu að ráða Ragnar Her- mannsson honum til aðstoðar. Sú ákvörðun sýni í raun að þeim sé al- vara í að byggja upp stórveldi á göml- um merg. Frábært að vinna með Ragnari Aðalsteinn er ekki í vanda með að lýsa Ragnari félaga sínum. „Raggi er frábær þjálfari, hann einbeitir sér að þeim hlutum sem mestu máli skipta og sinnir þjálfuninni gríðarlega vel. Hann opnaði augu mín fyrir því hve mikilvægt er að byggja leikmenn- ina upp líkamlega áður en farið er út í fínni vinnu. Hann byggir þjálf- un sína upp á einföldum gildum sem gagnast mjög vel. Setur hlutina upp á einfaldan og skýran hátt í stað þess að flækja þá of mikið. Hann hefur sýnt það áður að hann nær frábær- um árangri með lið sín. Þau eru allt- af í besta forminu og byggjast upp á góðri vörn, markvörslu og hraða- upphlaupum,“ sagði Aðalsteinn og bendir á að margir leikmenn sem Ragnar hefur þjálfað í gegnum tíð- ina hafa einmitt náð sínum bestu árum um það leyti sem hann vann með þá. „Tökum kvennalið Hauka tímabilið 2000-2001 sem dæmi. Þar voru leikmenn á borð við Hönnu G. Stefánsdóttur og Hörpu Melsted sem hreinlega blómstruðu undir hans stjórn. Hann hefur sýnt það oftar en einu sinni að lið hans geisla af krafti og sjálfstrausti.“ Þetta er einmitt það sem Aðalsteinn telur að Ragnari hafi tekist að hjálpa sér með hjá Stjörn- unni síðastliðin tvö ár. Fagmennska og framsýni Eins og Aðalsteinn kom inn á fyrr í viðtalinu, einkennast vinnubrögð stjórnarmanna í Garðabæ af fram- sýni og fagmennsku. „Það er mikill hugur í Stjörnufólki. Við ætlum að byggja upp metnaðarfullt og mark- visst starf hjá okkur. Afrekslína í handknattleik er í uppbyggingu og frekari uppbygg- ing á innra starfi okkar er hafin. Raggi hefur tekið að sér þjálfun á 4. og unglingaflokki kvenna og hef- ur þar með mótun og uppbyggingu leikmanna enn fyrr en ella. Það á að vera einn ákveðinn rauður þráður í gegnum starfið hjá okkur því ekk- ert veldi er byggt upp á einni nóttu. Við höfum séð það í gegnum tíðina að ekkert lið getur haldið úti öflugu liði í meistaraflokki í lengri tíma án þess að sinna yngri flokkum sínum af alúð.“ Aðalsteinn bendir á að gott starf í yngri flokkum Fram, Gróttu og HK komi til með að skila sér í öfl- ugum meistaraflokkum þegar fram í sækir, máli sínu til stuðnings. „Við erum ekki hættir uppbyggingu á líkamlegu atgervi okkar leikmanna. Við erum aðeins komnir vel á veg en enn er hægt að bæta liðið mikið. Það er fyrst og fremst á þeim vígstöðvum sem við ætlum að bæta okkur. Við stefnum á að keppa í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Þá þurfum við að geta hlaupið með þessum lið- um í sextíu mínútur og staðið vörn maður á mann. Ef það tekst verður gaman að sjá hvað við komumst upp með að stríða þessum liðum,“ sagði Aðalsteinn. Hann gerir sér þó grein fyrir að það verði síður en svo auðvelt að keppa við bestu lið álfunnar. „Það eru fullt af góðum liðum sem hafa ekki náð að festa sig í sessi þegar kemur að Meist- aradeildinni. Þýska liðið Leipzig, sem er mjög vel þjálfað, hefur til dæmis átt erfitt með að komast upp úr riðla- keppninni síðastliðin ár. Þetta er hörð keppni og við eigum sjálfsagt eftir að kynnast því,“ sagði Aðalsteinn sem er þó alls ekki hræddur við að takast á við það verkefni sem keppni í Meist- aradeildinni hefur upp á að bjóða og bendir á að það sé íslenskum kvenna- handknattleik mjög mikilvægt að eiga fulltrúa í þessari keppni. „Þarna eru allar bestu handboltakonur heims og það er mikilvægt fyrir okkur að fá að mæla getu okkar saman við þeirra. Einnig væri frábært að geta boðið Ís- lendingum upp á alvöru heimsklassa kvennahandbolta í okkar húsum.“ Erfitt að byggja upp leikmenn í því umhverfi sem hefur skapast Við fetum okkur inn á viðkvæm- ar brautir og spyrjum Aðalstein út í þá gagnrýni sem hann hefur haldið á lofti vegna verkefna landsliða Ís- lands. „Já það er rétt, ég hef gagn- rýnt HSÍ fyrir þau vinnubrögð sem hafa verið viðhöfð í gegnum tíðina þegar kemur að landsliðunum. Ég er á þeirri skoðun að við séum að gera leikmönnum okkar mikinn grikk með því að taka þá út úr þeim upp- byggingartímabilum sem þeir þarfn- ast,“ sagði Aðalsteinn og bendir á að þeir Ragnar hafi verið gagnrýnd- ir mikið fyrir líkamlegt atgervi leik- mann sinna á síðastliðnu tímabili. „Þegar við tökum við liðinu voru allt of margir leikmenn í álagsmeiðlsum og hreinlega ekki í formi. Við gátum ekkert unnið í þessu á undirbúnings- tímabilinu því þær voru flestar í verk- efnum með landsliðunum. Þegar þær skiluðu sér aftur þurftu þær að sjálfsögðu á hvíld að halda því álag- ið var búið að vera mikið. Síðan tók keppnistímabilið við þar sem leikið er einu sinni í viku. Við ákváðum að hefja uppbyggingu leikmanna okk- ar strax og við gátum. Ragnar hóf þá uppbyggingarvinnu þrátt fyrir að við vissum að það kæmi niður á hraða liðsins í leikjum. Þetta var einfald- lega nauðsynlegt fyrir þeirra framtíð á þeim tímapunkti.“ Þessa gagnrýni taldi Aðalsteinn óvæga á sínum tíma því leikmenn þeirra voru aldrei á staðnum þegar Aðalsteinn Eyjólfsson er þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar sem hampaði Íslandsmeistaratitlinum um síðustu helgi. Hann hefur lifað og hrærst í heimi handboltans síðan hann man eftir sér og er þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum. Enginn er verri þó hann vökni aðalsteinn fékk væna gusu frá Stjörnustúlkum eftir að íslandsmeistaratitillinn var í höfn. Frábær liðsheild aðal- steinn segir Stjörnuliðið góða blöndu af duglegum og góðum leikmönnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.