Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Síða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Síða 54
miðvikudagur 4. apríl 200754 Páskablað DV hættulegt að fara snemma á fætur á laugardögum!“ segir hann hlæjandi. „Mér finnst vanta sveitaveruna inn í uppeldismynstrið nú til dags. Það var gott veganesti fyrir þá sem fengu að njóta þess að vera á góðum sveita- bæ og fengu að umgangast skepnur.“ Hann talar af svo miklum hlýhug um árin austur í Sólheimahjáleigu að það er ekki hægt annað en spyrja hvort hann sé svolítill sveitastrákur inn við beinið? „Já, ég get alveg fallið í stafi ef ég finn töðulykt,“ svarar hann án um- hugsunar. „Ég hafði gott af því upp- eldi sem ég hlaut fyrir austan og bý að því alla tíð.Það að fara í sveit er stórt þroskaskref. Bóndabær er í rauninni lítið fyrirtæki þar sem maður lærir að fara vel með hlutina, ganga vel um og virða verðmæti. Margt ungt fólk sem við erum að ráða í vinnu núna kann ekki á kúst, tusku eða fægiskóflu. Því er ekki kennt að nota þessi áhöld heima hjá sér og kann þar af leiðandi ekki á þau. Mér ofbýður oft að sjá að það sem ég hef alltaf talið sjálfsagð- an hlut sé ekki þáttur af uppeldi nú- tímans.“ Ungur að árum var hann farinn að sniglast í kringum pabba sinn í vinnu hans hjá Sláturfélagi Suður- lands og átti síðar eftir að starfa við hans hlið í hartnær aldarfjórðung. „Pabbi var medium plús í lifi- standard og afkomu,“ segir hann. „Hann var í góðri vinnu hjá Sláturfé- lagi Suðurlands alla sína starfsævi, í 55 ár. Hann hóf störf hjá Sláturfélag- inu fimmtán ára og hætti ekki fyrr en lögin kváðu um að hann væri orðinn of gamall til að vinna úti. Hann var ekkert að skipta um atvinnu bless- aður og fékk því launaseðil frá einum stað allt sitt líf. Félagið gerði vel við hann alveg fram til hinsta dags.“ Mannvonska á bak við laga- setningu Það var ósáttur gutti sem flutti úr Reykjavík suður í Kópavog og þrátt fyrir að elska sveitina elskaði hann ekki þá sveit sem honum fannst Kópavogur þess tíma vera. „Pabbi og félagi hans, Sigurð- ur kaupmaður í Hamborg byggðu sér hús hlið við hlið á Kópavogs- brautinni. Þar bjuggum við þangað til við systkinin fluttum að heiman. Mamma var heldur aldrei sátt við að búa í Kópavogi því hún er Reykjavík- urdama, Vesturbæingur í húð og hár. Það fór líka svo á endanum að for- eldrar mínir fluttu á Ásvallagötu og bjuggu þar síðustu árin sem pabbi lifði.“ Kristín móðir Jóhannesar ólst upp á Öldugötunni, þar sem faðir hennar rak verkstæði í litlum skúr við húsið. „Mamma er ein átta barna ömmu, Sigríðar Þórðardóttur og afa, Jóhannesar Þórðarsonar. Af þessum átta börnum voru þrennir tvíburar,“ segir hann og af svip hans má ráða að hann er að hugsa um hvernig fólk fór að á þeim tímum sem enga fé- lagslega aðstoð var að fá. „Afi hafði verið bóndi en bæklað- ist mikið eftir að hann féll af hestbaki. En hann hafði sjálfsbjargarviðleitni og var þúsundþjalasmiður. Hann smíðaði verkfæri sín sjálfur og gerði við koppa og kirnur, klukkur og stóla. Ég segi að fólk sem er fætt 40+ eld- ist öðruvísi en þeir sem fæddust tut- tugu árum fyrr. Við höfum ekki liðið vosbúð, þrældóm eða hungur eins og þetta fólk bjó víða við. Svo kveða lögin á um að fólk í fullu fjöri eigi að hætta að vinna úti, 67 ára. Þetta hlýt- ur að eiga að þróast með öðru og fólk að eiga kost á því að fá að vinna eitt- hvað áfram ef kraftar þess leyfa. Að fólk með fulla starfskrafta megi ekki vinna eftir ákveðinn aldur nema að ellilífeyrir þeirra skerðist finnst mér fáránlegt. Þetta fólk má vinna sér inn 25 þúsund krónur á mánuði án þess að lífeyrir skerðist, en mér finnst nær að miða upphæðina við 100 þúsund krónur. Það myndu allir græða á því. Fyrst og fremst fólkið sjálft að vera ekki dæmt úr leik, ríkið fengi tekju- skatt og lyfjakostnaður myndi snar- lækka. Þegar fólk í fullu fjöri - eins og sjötugt fólk er í dag - er dæmt til að vera heima og bíða þess eins hvað verði næst, þá er ekki við góðu að bú- ast.“ Faðir í heimi þunglyndis Jóhannes veit hvað hann er að tala um. Hann horfði á föður sinn hverfa inn í heim þunglyndis að lok- inni starfsævi sinni. „Mér finnst það tóm mannvonska sem liggur að baki lagasetningu sem þeirri að fólk megi ekki vinna eftir að ákveðnu aldursmarki er náð,“ seg- ir hann. „Þetta er afburða fólk með þjónustulund og verksvit í fartesk- inu. Fólk verður einmana og þung- lynt þegar það er dæmt frá þátttöku í þjóðfélaginu. Ég get auðvitað ekki fullyrt að starfslok föður míns hafi átt allan þátt í þunglyndi hans, en tel þau vera undirrót sjúkdómsins. Líf- ið er svo hverfult. Pabbi, sem hafði verið hvers manns hugljúfi og allra manna kátastur, hvarf í heim þung- lyndis eftir að hann hætti að vinna. Hann lifði í fimmtán ár eftir það og leið mikið í sínu sálarástandi. Lykill- inn að því að maður sættir sig við að kveðja foreldra sína held ég að hljóti að vera sá að maður hafi lifað í sátt og samlyndi við þá. Við faðir minn vorum mjög samrýmdir og vörðum miklum tíma saman. Þegar hann féll frá eftir þessi veikindi, held ég að hann hafi verið saddur lífdaga og þar af leiðandi var ég sáttur líka þegar að kveðjustundinni kom.“ Starfsfólk er bensínið á bílinn Aðspurður segist Jóhannes þeirrar skoðunar að framkoma yfirmanna og eigenda fyrirtækja ráði engu minna um það hvernig fyrirtækjum haldist á starfsfólki heldur en launakjör. „Við erum með fátt en mjög gott fólk á skrifstofu Bónuss. Bónus er átján ára fyrirtæki og tvær konur á skrifstofunni hafa verið hjá okkur í sautján ár. Auðvitað reynir maður að halda utan um gott fólk. Starfsfólkið er bensínið á bílinn. Ef það vantar bensín þá höktir bíllinn.“ Engu að síður er það svo að fólk skiptir oft um vinnu, einkum hinir ungu. Hvað telur Jóhannes að valdi því? „Þetta er kannski sá mórall sem hefur skapast í þenslunni,“ svar- ar hann. „Það er svo auðvelt að fara milli fyrirtækja. Margir halda að gras- ið sé grænna hinum megin. Þegar það er 110% atvinna í landinu, þá er fólk óhrætt við að skipta um starf. En þá er líka ákveðin hætta á því að fólk verði ekki eins trútt sínu fyrirtæki og tíðkaðist áður fyrr. Húsbóndaholl- ustan er ekki eins mikil. Auðvitað skiptir öllu máli hvernig fólki líður á vinnustað og hvernig yfirmenn og eigendur koma fram við starfsfólk sitt. Laun hafa talsvert mikið að segja en það skiptir fólk ekki síður máli hvernig það er virt á vinnustaðnum. Það er orðin svo mikil hreyfing og hraði á ungu fólki í dag,“ bætir hann við. „Ungt fólk er stöðugt að leita að einhverju meira spennandi og það er svo auðvelt nú til dags að hætta einhvers staðar og komast inn ann- ars staðar. Þess vegna myndast ekki sá stöðugleiki sem við þekkum sem eldri erum. Margt ungmennið átt- ar sig hins vegar ekki á því að þegar starfað er lengi á einum stað og fólk nær betri tökum á starfi sínu, þeim mun betur er hægt að gera við fólk í launum.“ Jón Ásgeir líkari Óla í Olís Úr þessari umræðu læði ég inn því allra nýjasta sem ég heyrði um Jóhannes í Bónus. Að hann og Óli í Olís hafi verið bræðrasynir? „Já, við Óli erum bræðrasynir og vorum miklir vinir. Við töluðum saman nánast daglega og áttum mik- il og góð samskipti, líkt og feður okk- ar. Sigurður pabbi Óla og Jón pabbi minn, voru einu synir ömmu og afa sem komust á legg og því samskiptin innan fjölskyldunnar kannski meiri og nánari en algengt er. Þeir bræður báru mikla umhyggju hvor fyrir öðr- um og það féll aldrei styggðaryrði milli þeirra. Þannig hefur það líka verið milli okkar systkinanna – það er enginn hávaði í kringum okkur Ester!“ segir hann brosandi. Óli í Olís var mikill athafnamað- ur og áberandi í íslensku samfélagi. Hann lést langt fyrir aldur fram árið 1992. Þegar Jóhannes er spurður hvort viðskiptavit þeirra frænda liggi í genunum svarar hann að bragði: „Nei, ég held að það sé bara meira og minna áunnið. Og hvað er viðskiptavit? Er það ekki bara verksvit og áræðni í bland? Óli var HúSbÓndaHOlluSta ekki SJÁlFgeFin Jóhannes við opnun fyrstu Bónusversl- unarinnar fyrir 18 árum. „Þar er fámennt starfslið, en tvær konur hafa unnið hjá okkur í sautján ár af þessum átján.“ Óli var djarfur, miklu djarfari en ég og ég myndi frekar segja að Jón Ásgeir sé líkur Óla en ég. Kannski er eitthvað af þessu í genunum?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.