Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Blaðsíða 57

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Blaðsíða 57
Starfsferill Lúðvík fæddist í Reykjavík 21.4. 1959 en ólst upp í Hafnarfirði. Hann lauk prófum frá Iðnskólanum í Reykjavík 1978, var við nám í bak- araiðn hjá Brauðgerð KÁ á Selfossi 1974-77 og í bakaríinu Kringlunni og Bernhöftsbakaríi 1977-78, lauk sveinsprófi í bakaraiðn 1978, lauk stúdentsprófi frá Flensborgarskóla 1978 og BA-prófi í íslensku frá HÍ 1984. Lúðvík var starfsmaður á skrif- stofu Alþýðubandalagsins 1978, blaðamaður á Þjóðviljanum 1979-89, fréttastjóri þar 1987-89, starfsmaður Blaðamannafélags Íslands frá 1989- 2002 auk kennslustarfa og margvís- legra starfa við ritstörf og fjölmiðla. Hann var formaður æskulýðsnefnd- ar Alþýðubandalagsins 1978, ritstjóri bæjarblaðsins Vegamóta 1979-95, formaður bæjarmálaráðs Alþýðu- bandalagsins í Hafnarfirði 1986-94, bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði 1994-98, bæjarfulltrúi og oddviti Fjarðarlistans 1998-2002, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnar- firði og bæjarstjóri þar frá 2002, sat í bæjarráði 1994-95 og aftur frá 1998, í Hafnarstjórn Hafnarfjarðar 1986- 90 og 1994-98, í Húsnæðisnefnd Hafnarfjarðar 1990-98, í byggingar- nefnd Suðurbæjarlaugar 1986-90, auk setu í fjölmörgum öðrum ráðum og nefndum á vegum Hafnarfjarðar- bæjar. Hann var formaður Samtaka sveitarfélaganna á höfuðborgar- svæðinu 2004-2006 og situr í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 2006. Lúðvík var varaformaður BÍ 1985-87, formaður þess 1987-98, sat í samninganefnd BÍ 1985-2002, í stjórn Norræna blaðamannasam- bandsins 1987-98, í framkvæmda- stjórn Alþjóðablaðamannasam- bandsins, IFJ, 1987-98, í skólastjórn Norrænu blaðamannamiðstöðvar- innar í Árósum 1991-96, formaður Fjölmiðlasambandsins frá stofn- un 1998-2001 og formaður knatt- spyrnufélagsins Hauka 1992-2002. Bækur Lúðvíks sem út hafa komið: Saga knattspyrnufélags- ins Hauka, útg. 1990; Saga Fé- lags byggingariðnaðarmanna, útg. 1992; Verslunarsaga Hafnarfjarðar í sex hundruð ár, útg. 1994, og Saga Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, útg. 1996. Fjölskylda Lúðvík kvæntist 25.6. 1995 Hönnu Björk Lárusdóttur, f. 2.11. 1959, húsmóður. Hún er dóttir Lár- usar Sigurðssonar, f. 1919, nú lát- inn, verslunarmanns í Hafnarfirði, og k.h., Guðlaugar Hansdóttur, f. 1920, húsmóður. Synir Lúðvíks og Hönnu Bjarkar eru Lárus Lúðvíksson, f. 31.7. 1984, viðskiptafræðinemi við Hí; Brynjar Hans Lúðvíksson, f. 3.3. 1989, nemi við Flensborg; Guðlaugur Bjarki Lúðvíksson, f. 2.10. 1996, grunn- skólanemi. Systkini Lúðvíks eru Gunnar Geirsson, f. 15.1. 1953, viðskipta- fræðingur og fisktæknir á Fáskrúðs- firði; Hörður Geirsson, f. 19.5. 1962, tölvunarfræðingur í Hafnar- firði; Ásdís Geirsdóttir, f. 1.10. 1966, þroskaþjálfi í Hafnarfirði; Þórdís Geirsdóttir, f. 1.10. 1966, húsmóðir í Hafnarfirði. Foreldrar Lúðvíks eru Geir Gunnarsson, f. 12.4. 1930, fyrrv. alþm. og nú vararíkissáttasemjari, og k.h., Ásta Lúðvíksdóttir, f. 9.12. 1930, framhaldsskólakennari. Geir er sonur Gunnars Ingi- bergs, sjómanns Hjörleifssonar, b. á Litlu-Háeyri á Eyrarbakka Há- konarsonar. Móðir Gunnars var Guðbjörg Gunnarsdóttir. Móð- ir Geirs er Björg Björgólfsdóttir, húsmanns á Litlu-Háeyri Ólafs- sonar, b. í Einkofa, Björgólfssonar. Móðir Bjargar var Elín Pálsdóttir, formanns í Nýjabæ, bróður Katr- ínar, ömmu Guðmundar Í. Guð- mundssonar ráðherra. Bróðir Páls var Eyjólfur, faðir Andrésar, alþm. í Síðumúla. Annar bróðir Páls var Magnús, prófastur og alþm. á Gils- bakka, faðir Péturs, ráðherra og varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Páll var sonur Andrésar, hrepp- stjóra í Syðra-Langholti Magn- ússonar, alþm. í Syðra-Langholti Andréssonar. Móðir Andrésar var Katrín, systir Kolbeins á Hlemmi- skeiði, langafa Guðríðar í Tryggva- skála, ömmu Guðlaugs Tryggva Karlssonar. Katrín er dóttir Eiríks, ættföður Reykjaættar Vigfússonar, og Ingunnar Eiríksdóttur, ættföð- ur Bolholtsættar Jónssonar. Móðir Elínar var Geirlaug Eiríksdóttir, b. í Húsatóftum á Skeiðum Jónssonar, og Ingibjargar Freysteinsdóttur. Ásta er dóttir Lúðvíks, bakara- meistara á Selfossi, bróður Guðna prófessors, föður Bjarna, prófess- ors og fyrrv. alþm. Lúðvík var son- ur Jóns, formanns á Gamla-Hrauni Guðmundssonar, formanns á Gamla-Hrauni, bróður Jóhanns, afa Ragnars í Smára. Guðmundur var sonur Þorkels, formanns í Munda- koti Einarssonar, spítalahaldara í Kaldaðarnesi Hannessonar. Móðir Jóns var Þóra Símonardóttir, smiðs á Gamla-Hrauni Þorkelssonar. Móðir Símonar var Valgerður Ara- dóttir, b. í Neistakoti Jónssonar, b. á Grjótlæk, Bergssonar, ættföður Bergsættar Sturlaugssonar. Móðir Lúðvíks var Ingibjörg Jónsdóttir, b. í Miðhúsum Jónssonar, bróður Hall- dórs, afa Halldórs Kiljans Laxness. Jón var sonur Jóns yngra, á Núpum, bróður Einars, langafa Garðars, kaupmanns í Hafnarfirði, föður Guðmundar H., fyrrv. alþm. Móð- ir Jóns í Miðhúsum var Sigríður yngri, systir Guðna, langafa Sigríð- ar, móður Vigdísar Finnbogadótt- ur. Gísli var sonur Guðna, ættföður Reykjakotsættar Jónssonar. Móðir Ástu var Lovísa Þórðardóttir, verka- manns í Sjólyst Björnssonar, b. í Móeiðarkotshjáleigu Árnasonar. DV Ættfræði miðvikudagur 4. apríl 2007 57 Framvegis mun DV birta tilkynning- ar um stórafmæli, afmælisbörnum að kostnaðarlausu. Tilkynningarnar munu birtast á ættfræðiopnunni sem verður í helgarblaði DV á föstudög- um. Með stórafmælum er hér átt við 40 ára, 50 ára, 60 ára, 70 ára, 75 ára, 80 ára, 85 ára, 90 ára, 95 ára og 100 ára afmæli. Þær upplýsingar sem hægt er að koma á framfæri í slíkum tilkynn- ingum eru nafn afmælisbarnsins, fæðingardagur þess og ár, starfsheiti, heimilisfang, nafn maka, starfsheiti maka, nöfn barna (án fæðingardags, starfsheitis eða maka), nöfn foreldra afmælisbarnsins og tilkynning um gestamóttöku eða önnur áform varð- andi afmælisdaginn. Á hverjum föstudegi verða birtar slíkar tilkynningar um þá sem eiga afmæli á föstudeginum sem blaðið kemur út á til fimmtudags í vikunni á eftir. Þannig verða tilkynningarnar um afmæli á sjálfum útgáfudeginum og næstu viku fram í tímann. Senda skal afmælistilkynningar á netfangið kgk@dv.is. Tilkynningarn- ar verða að berast blaðinu eigi síðar en kl. 15 á miðvikudegi. Það er afar brýnt að þeim fylgi skýr andlitsmynd af afmælisbarninu. AfmælistilkynningAr á ættfræðisíðu MAÐUR VIKUNNAR Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði Lúðvík Geirsson, bæjar- stjóri í Hafnarfirði, hefur öðrum pólitíkusum frem- ur verið í sviðsljósi stjórn- málanna síðastliðna viku vegna kosninganna um deiliskipulag fyrir stækkað álver í Straumsvík. Hann hefur verið gagnrýndur af pólitískum andstæðingum fyrir að láta ekki uppi per- sónulega afstöðu sína til kosningamálefnisins. En honum hefur jafnframt verið hrósað af samherj- um og mótherjum fyrir að standa að kosningunum og fyrir góða skipulagningu og framkvæmd kosninganna. Veisla í miðborginni Veislukompaníið er alhliða veislu- og fundaþjónusta, nýr og spennandi valkostur í miðborginni. Þú gengur að fyrsta flokks húsnæði með öllum tæknibúnaði, frábærum veitingum og þjónustu á besta stað í bænum. Lækjargötu 2a 101 Reykjavík s 517 5020 www.veislukompaniid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.