Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Síða 58
miðvikudagur 4. apríl 200758 Páskablaðið DV
Á föstunni er tilvalið að gæða sér
á góðum fiskrétti og í síðustu viku
skoraði Guðný Aradóttir einkaþjálf-
ari og stafgönguleiðbeinandi á kol-
lega sinn, Dísu í World Class. Guð-
ný óskaði sérstaklega eftir uppskrift
að hollustudrykk. Dísa, Hafdís Jóns-
dóttir, framkvæmdastjóri Lauga,
brást vel við og sendi okkur þessar
dýrindis uppskriftir.
Hér kemur einn góður fiskréttur.
Ofnbakaður karrýfiskur
l 600 - 700 g ýsa eða annar fiskur
l Einn og hálfur til tveir bollar soðin
hrísgrjón
l paprika, brokkolí, laukur og fleira
grænmeti eftir smekk
l 3-4 tómatar
l 1 dl karrýsósa
l 1,5 dl mjólk
Hitið ofninn í 200°C. Setjið soðin
hrísgrjónin í botninn á eldföstu móti,
grænmetið þar ofan á fyrir utan tóm-
atana, síðan fiskinn og dreifið kar-
rýsósunni ofan á fiskinn. Loks eru
tómatarnir settir ofan á og mjólkinni
hellt yfir. Bakað í um það bil 20-25
mínútur.
Gulróta OG epladrykkur
með enGifer
Ljúffeng safablanda sem veitir
orku og er frábær fjölvítamíngjafi.
l 2 epli
l 1 stór gulrót
l 1 cm engiferbiti
l allt sett í gegnum safapressuna og
hvers dropa notið vel
Engiferkalkúnn
með krydd-
jógúrtsósu
Undirbúningur 20 mínút-
ur + kæling, matreiðslutími
25 mínútur
450 gr beinlaust kalkúnakjöt, skorið í
bita (fjarlægið skinnið)
1½ dl hreint jógúrt
2 msk. tómatmauk
1 msk. paprika
25 gr engiferrót, söxuð
1 hvítlauksrif, marið
1 tsk. kúmen, malað
½ tsk. kardimommufræ - möluð
1 msk. jurtaolía
2 laukar, sneiddir
1 rauð paprika, skorin til helminga, fræin
fjarlægð og hún skorin í sneiðar
100 gr okra (grænir fræbelgir)
Setjið kalkúninn í skál, blandið
jógúrtinni, tómatmaukinu, paprikunni,
engiferinu, hvítlauknum, kúmeninu og
kardimommunum saman og hellið yfir
kalkúninn. Blandið saman og látið í
kæliskápinn, breiðið yfir og látið
marinerast í 3-4 klukkustundir. Setjið
olíu á pönnu, bætið lauknum saman við
og sjóðið þar til laukurinn verður
mjúkur. Hrærið papriku og okra saman
við og sjóðið í 2-3 mín. Hrærið kjötinu
varlega saman við og steikið í 4-5
mínútur hrærið varlega 1½ dl af vatni
saman við og látið suðuna koma upp.
Setjið lok á og látið krauma í 10-15
mínútur.
Berið fram með kókosmjöli stráðu yfir.
gott er að bera fram hrísgrjón með
réttinum.
brudkaup.is
U m s j ó n : J a n u s S i g u r j ó n s s o n . N e t f a n g j a n u s @ d v . i s
&Matur vín
Heppilegur sessunautur
kínverskur viðskiptajöfur missti sig alveg í vínbúð í fríhöfninni á Charles de
gaulle-flugvellinum í parís. meðal þess sem hann keypti var koníak frá árinu
1806, flaska af armaníaki árgerð 1900 og Château mouton-rothschild frá
árinu 1945. venjulega eru slík verðmæti ekki í hillum fríhafnarinnar en
starfsfólkið fær pantanir frá kínverjanum áður en hann fer í flug. Ef heppnin er
með okkur gætum við lent við hliðina á honum í flugi milli Frakklands og kína
og hver veit nema hann bjóði okkur að dreypa á einhverjum fjársjóðnum.
Hafdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Lauga Matgæðingurinn
grænn hollustudrykkur
Dísa skorar á tengdamóður
sína, Grétu, að vera næsti matgæð-
ingur DV:
„Gréta er mikill matgæðing-
ur og hún býr til bestu kjötsúpu
í heimi!“ segir Hafdís Jónsdóttir,
Dísa í í World Class - Laugum.
Full búð af flottum
vor- og sumarvörum
Nærföt, sundföt, sokkabuxur,
barnaföt og margt fleira.
Verið hjartanlega velkomin
Skál fyrir góðri
helgi
Þurru góðu freyðivíni, t.d.
prosecco, er hellt í hátt
kampavínsglas. Hellið
smávegis af kirsuberja-
líkjör þar út í (t.d.
kirsberry),eða kirsuberja-
sírópi. Skellið heilu
kirsuberi út í hvert glas og
skálið fyrir páskafríinu, lífinu og tilverunni.
Ofnbakaður fiskur
og dýrindis hollustudrykkur