Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Side 73

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2007, Side 73
Breski leikarinn Ian McKellen gagnrýnir framleiðend- ur fyrir að hvetja samkynhneigða leikara til að bæla kynhneigð sína: Hvetur samkynhneigða leikara út úr skápnum Ian McKellen stórleikari sem leikið hefur í myndum á borð við The Da Vinci Code, Hringadróttinssögu og X-Men, hefur gagnrýnt framleiðendur í Hollywood sem hann segir hvetja samkynhneigða leikara til að halda sig inni í skápnum. Hinn 67 ára gamli leikari tilkynnti í bresku útvarpi árið 1988 að hann væri samkynhneigður og hefur síðan þá hvatt aðra samkynhneigða leikara til að gera slíkt hið sama. McKellen segir að miðað við frjálslegt viðhorfið í Hollywood sé undarlegt að þar sé starfræktur svona stór iðnaður á borð við kvikmyndaiðnaðinn sem virkilega banni fólki að vera samkynhneigt í vinnunni. „Ég hugsa nú bara með mér hvort fólk með svona hugarfar sé fært um að framleiða góðar kvikmyndir,“ segir leikarinn og bætir svo við að það séu í rauninni framleiðendurnir sjálfir sem eigi við vandamál að stríða fyrst það sé svona erfitt fyrir þá að ímynda sér að fólk geti hrifist af aðila af sama kyni. „Þeir hljóta bara að lifa alveg ofsalega óspennandi lífi,“ lætur Ian McKellen hafa eftir sér að lokum. Gandálfur í Hringadróttinssögu Segir framleiðendur í Hollywood lifa óspennandi lífi. Ian McKellen kom út úr skápnum 1988 Ósáttur við skilningsleysi í garð samkyn- hneigðra. Neitar nektarsenum Leikkonan Scarlett Johansson krefst þess nú að það verði sett ákvæði sem kveði á um að hún leiki ekki í nektaratriði inn í alla kvikmyndasamninga sína. Hin lostafulla 22 ára gamla leikkona er staðráðin í því að fá fólk til að líta á sig sem alvöru leikkonu og mun héðan í frá ekki líta við neinum hlutverkum sem innihalda nekt. Scarlett gæti hins vegar þurft að hugsa sig aðeins um í sambandi við nektina ef hún fær hlutverk sem Jenna Jameson í fyrirhugaðri mynd um líf klámmyndaleikkonunnar en það má búast við þó nokkrum nektarsenum í þeirri mynd og Scarlett er ein af þeim sem er orðuð við aðalhlutverkið. Mynd um Flórída- talninguna Óskarsverðlaunahafinn Sydney Pollack mun leikstýra mynd sem er byggð á hinni umdeildu atkvæðatalningu í Flórída í bandarísku forsetakosningunum árið 2000. Myndin sem mun bera hið viðeigandi nafn Recount mun fara á bak við tjöldin þegar George W. Bush og Al Gore tókust á í kosningunum. Myndin mun sýna þá valdabaráttu sem átti sér stað meðan á mánaðar- löngum ósköpunum stóð en Bush sigraði þrátt fyrir að fá færri atkvæði. Paula Weinstein framleiðandi myndarinnar segir: „Mér finnst handritið magnað og núna erum við með hinn fullkomna leikstjóra.“ Páska The Science of Sleep Græna ljósið býður upp á þessa súrrealísku gamanmynd eftir Michel Gondry. Hann hefur áður gert myndina Eternal Sunshine of the Spotless Mind með Jim Carrey en er þekktastur fyrir tónlistarmyndbönd sín. Myndin fjallar um hinn unga og óörugga Stéphane Miroux, sem flytur til Parísar eftir dauða föður síns til að vera nærri móður sinni. Stéphane fær leiðinlega vinnu og er hálfleiður á lífinu þegar hann kynnist nágranna sínum, Stéphanie, og verður ástfanginn af henni, en það er enginn dans á rósum að tjá henni það. Hann ákveður því að flýja inn í draumaheiminn til þess að vinna hana á sitt band. Hvað er draumur og hvað er raunveruleiki? IMDB: 7,6/10 Rottentomatoes: 69%/100% Metacritic: 70/100 Sunshine Það er snillingurinn Danny Boyle sem leikstýrir myndinni Sunshine. Hann hefur áður gert myndir eins og Shallow Grave, Trainspotting, A Life Less Ordinary og 28 Days Later. Myndin gerist eftir 50 ár. Sólin er að deyja og mannkynið með. Síðasta von mannkynsins er eitt geimskip og áhöfn þess sem samanstendur af átta mönnum og einni konu. Geimfararnir eru með búnað meðferðis sem mun hleypa nýju lífi í sólina sé honum komið fyrir á réttum stað. Þegar leiðangur þeirra er hálfnaður gerast hræðilegir hlutir. Mistök sem hafa skelfilegar afleiðingar. Þau ná engum samskiptum við jörðina en fá merki frá geimskipi sem hvarf sjö árum áður. Áhöfnin þarf að berjast fyrir lífi sínu og geðheilsu. Fínir leikarar eru í myndinni og ber þar helst að nefna Cillian Murphy sem lék meðal annars aðalhlutverkið í 28 Days Later. Hann hefur einnig leikið í Batman Begins og Red Eye. Þá leika einnig í myndinni þau Rose Byrne, Chris Evans og Cliff Curtis. IMDB: 7,4/10 Rottentomatoes: ekki til Metacritic: ekki til Happily N‘Ever After Paul J. Bolger og Yvette Kaplan leikstýra þessari teiknimynd. Paul er óreyndur en Kaplan hefur áður verið meðleikstjóri í myndinni Beavis and Butt-Head Do America. Myndin er byggð á hinu klassíska ævintýri um Öskubusku eða Cinderella. Frieda er ill stjúpmóðir Ellu. Hún stjórnar hópi óþokka sem ráða ríkjum. Ella er orðin þreytt á óréttlætinu sem á sér stað og stofnar andspyrnuhreyf- ingu. Í heimi þar sem hamingjusöm endalok eru fyrir bý reynir Ella að bjarga konungsríkinu. IMDB: 2,3/10 Rottentomatoes: 4%/100% Metacritic: 28/100 FRÁ DANNY BOYLE LEIKSTJÓRA 28 DAYS LATER OG TRAINSPOTTING KEMUR SPENNUTRYLLIR ÁRSINS! SÓLIN ER AÐ DEYJA. ER HÆGT AÐ BJARGA HENNI? !óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á MIÐASALA Í BORGARBÍÓ Á SUNSHINE kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA THE SCIENCE OF SLEEP kl. 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 6 TMNT kl. 6 B.I. 7 ÁRA SCHOOL FOR SCOUNDRELS kl. 5.45, 8 og 10.15 THE ILLUSIONIST kl. 8 og 10.15 SUNSHINE kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA MR. BEAN´S HOLIDAY kl. 1, 3, 5, 7, 9 og 11 MR. BEAN´S HOLID. SÝND Í LÚXUS kl. 1, 3, 5, 7, 9 og 11 ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 2 og 4 TMNT kl. 2, 4, 6, og 8 B.I. 7 ÁRA SCHOOL FOR SCOUNDRELS kl. 5.45, 8 og 10.15 THE HITCHER kl. 10 B.I. 16 ÁRA EPIC MOVIE kl. 1.50 og 3.50 B.I. 7 ÁRA HOT FUZZ kl. 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA SCHOOL FOR SCOUNDRELS kl. 8 og 10 ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 6 TMNT kl. 6 B.I. 7 ÁRA STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA PÁSKAMYNDIN Í ÁR PÁSKAMYNDIN Í ÁR ANNAR ÞESSARA TVEGGJA HEFUR HEILA Á STÆRÐ VIÐ HNETU ! PÁSKAMYNDIN 2007 HEIMSFRUMSÝNING

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.