Fréttatíminn - 26.11.2010, Qupperneq 6
Engiferdrykkir virðast vera nýjasta heilsuæðið á Íslandi. Nokkrar tegundir
eru í boði og er mismikill leyndarljómi yfir
tegundum. Drykkirnir eru síður en svo
gefnir, sá ódýrasti er af tegundinni Zing
og fæst í Bónus á 1.698 krónur, 2 l flaska.
Aðrar tegundir eru dýrari, enda leyndar-
dómsfyllri. Ekki veit ég hvers vegna
verðið er svona hátt því innihaldslýsingin
gefur ekki tilefni til þessa verðlags. Þvert
á móti er hráefnið frekar ódýrt. Kíló af
engifer kostar 579 krónur í Bónus, kíló af
lime er á 459 kr., kíló af hrásykri á 596
kr. og 50 grömm af myntublöðum á 398
krónur. Vatnið kemur svo úr krananum.
Jafnvel mestu eldhúsklaufar eins
og ég geta náð upp leikni við að búa
til sína eigin engiferdrykki. Ekki þori
ég þó að lofa jafn miklum árangri af
svona heimagerðum drykkjum og dýru
drykkirnir lofa. Það eru fá meinin sem
leyndardómsfyllstu engiferdrykkirnir lofa
ekki að bæta.
Netið er stútfullt af uppskriftum að
engiferdrykkjum. Magn hráefna
fer eftir því hversu sterkan drykk
maður vill gera og það verður
að leyfa sér smá tilraunastarf-
semi í byrjun. Svona sirka býr
maður til sinn eigin drykk:
Engiferrót er söxuð smátt.
Sjóðandi vatni hellt yfir og þetta
kramið svolítið með staut til þess að
ná bragðinu úr engiferinu.
Lime-safa og krömdum myntulaufum
bætt í eftir smekk.
Hrásykri bætt í eftir smekk (eða bara
sleppt).
Vilji maður fá aukahjálp í baráttunni
við kvef kremur maður smátt sax-
aðan chili-pipar (og hvítlauk) með
engiferinu.
Kælt (eða drukkið heitt eins og te).
En nú að öðru. Nýlega gerði ég könnun á
fiskverði á höfuðborgarsvæðinu. Í fram-
haldi af því fékk ég bréf frá Fiskbúðinni
okkar sem sér Bónus fyrir
ferskum fiski. Þeim
finnst þeir alltaf
verða út undan
í verðkönnunum
en segjast þó
hafa lagt sig
fram um að
bjóða ódýran og
góðan fisk. Kílóverð á roð- og beinlausum
ýsuflökum í Bónus er 998 kr., en algengt
verð í fiskbúðum er á bilinu 1500-1900
kr. Svipaða sögu má segja um fiskibollur
(699 kr. – 10% afsláttur við kassa (sama
verð frá árinu 1999)) og ýsuréttirnir kosta
998 kr. kg. Bónus virðist því vera með
lægsta verðið á ferskum fiski, eins og svo
mörgu öðru.
Dr Gunni er UmboðsmaðUr neytenda Ábendingar og kvartanir: drgunni@centrum.is
Engiferdrykkir og ódýr fiskur
Gunnar
Hjálmarsson
drgunni@centrum.is
Nístandi
falleg
og sönn
Stuttsagan Missir eftir Guðberg Bergsson er komin í fallegri innbundinni gjafa-
útgáfu í valdar verslanir. Mögnuð saga
sem afhjúpar einstaklinginn gagnvart
óhjákvæmilegum örlögum sínum.
„… tvímælalaust eitt af hans áhrifameiri
verkum, knappt og meitlað og vekur
lesandann til umhugsunar.“
Einar Falur Ingólfsson / Morgunblaðið
„... meistaraleg frásögn.”
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan
Aðeins 1000 eintök, árituð og
tölusett, ásamt geisladiski með
upplestri höfundar á verkinu.
k osið verður til stjórnlagaþings á morgun, laugardaginn 27. nóvember. Stjórn
lagaþingi er ætlað að endurskoða
stjórnarskrána en það kemur sam
an í febrúar næstkomandi. Það
verður skipað minnst 25 og mest
31 fulltrúa og stendur í tvo til fjóra
mánuði. Þingfulltrúar eru kosnir
persónukosningu og er landið eitt
kjördæmi. Við vinnu sína hafa þing
fulltrúar niðurstöðu Þjóðfundar
2010 til hliðsjónar. Alþingi fær síðan
frumvarp stjórnlagaþings til endur
bættrar stjórnarskrár til meðferðar.
Kjósendur eru 232.374 og velja
þeir milli 522 frambjóðenda. Allir
frambjóðendur voru kynntir í riti
sem borið var inn á hvert heimili
fyrr í þessum mánuði. Atkvæða
greiðslu utan kjörfundar lýkur kl.
12 á hádegi í dag, föstudaginn 26.
nóvember. Klukkan 14 í gær höfðu
6.586 kosið utan kjörfundar.
Fjalar Sigurðarson er talsmað
ur hvatningarhóps frambjóðenda.
Hann hvetur kjósendur til að nýta
sér rétt sinn. Alþingi hafi vísað því
verki til þjóðarinnar að ljúka því
verki sem hófst árið 1944. Yfir 500
manns hafi boðið sig fram og notið
til þess um 25 þúsund meðmælenda
en nú sé komið að þjóðinni. Fjalar
segir að mörgum frambjóðendum
hafi þótt of mikið gert úr því að erf
itt sé að kjósa. Það sé ekkert flókið
að forgangsraða allt að 25 frambjóð
endum á blað heima í stofu og afrita
síðan eina til 25 tölur á kjörseðilinn
á kjörstað.
Röð frambjóðenda skiptir máli en
atkvæði er fullgilt hvort sem kjós
andi velur einungis frambjóðanda í
fyrsta sætið, fyllir öll sætin 25 eða
einungis að ákveðnu marki. Vægi
þess efsta á listanum minnkar ekki
þótt kjósandi velji fleiri á eftir hon
um. Kosningakerfið virkar þannig
að sá frambjóðandi sem kjósandi
velur efst fær fyrst að nýta sér at
kvæðið. Ef sá sem kjósandi setur
stjórnlagaþing 232.374 Á kjörskrÁ í kosningUm Á laUgardag
Ekkert flókið að
forgangsraða
Reiknað er
með að niður-
stöður liggi
fyrir á mánu-
dagskvöld.
Fjalar Sigurðarson, talsmaður hvatningarhóps frambjóðenda. Ljósmynd/Hari.
í fyrsta sæti fær mjög góða kosningu, nýtist
atkvæðið þeim sem kjósandi setti í annað
sæti. Ef frambjóðandi í fyrsta sæti kjósanda
nær ekki kjöri færist atkvæði hans á þann
sem hann setti í annað sæti. Þetta heldur svo
áfram koll af kolli niður eftir kjörseðlinum.
Landskjörstjórn kemur saman kl. 22 ann
að kvöld til að opna kjörkassa og undirbúa
talningu en hún hefst kl. 9 á sunnudag. Tal
ið verður í Laugardalshöllinni í Reykjavík.
Reiknað er með að niðurstöður liggi fyrir á
mánudagskvöld.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Fjalar Sigurðarson, talsmaður
hvatningarhóps frambjóðenda,
hvetur fólk til að nýta rétt sinn
og ljúka því verki sem hófst
1944.
6 fréttir Helgin 26.-28. nóvember 2010