Fréttatíminn - 26.11.2010, Blaðsíða 56
20 jól Helgin 26.-28. nóvember 2010
Skráðu eignina þína þar sem hún selst!
Ég seldi þessar eignir á síðustu 30 dögum!
Hringdu núna
699 5008Hannes Steindórsson
Sölufulltrúi
hannes@remax.is
Sími: 699 5008
Þórarinn
Jónsson hdl.
lögg. Fasteignasali
Í slenskt útsaumsmynstur er fært í nýjan búning í jólalínunni frá Stássi. Um er að ræða jólalínu úr plexígleri sem samanstendur af
jólastjörnum í tveimur stærðum og aðventu kransi
í stíl. Arkitektarnir Árný Þórarinsdóttir og Helga
Guðrún Vilmundardóttir eru hönnuðirnir á bak
við Stáss. Þær segja að hugmyndin hafi kvikn
að þegar þær uppgötvuðu að lítið var til af sér
íslensku jólaskrauti. Jólastjörnurnar er hægt að
hafa á borði eða hengja upp og minni jólastjörn
urnar má nota sem glasabakka. Jólaskrautið kem
ur í flötum pakkningum og þarf að setja saman
en þannig öðlast það þrívídd. Þær stöllur segja að
skrautið höfði vel til Íslendinga, þar sem sagan er
færð áfram í nýrri mynd. Það fæst í hvítu, rauðu og
appelsínugulu. Jólaskrautið frá Stássi fæst í Epal,
Mýrinni, Safnabúð Þjóðminjasafnsins og í Hrími
og Sirku á Akureyri.
Íslensk hönnun
Jólaskraut úr plexígleri
Ráð við jólastRessi
Margrét Pála Ólafsdóttir leikskólastjóri
„Ég ráðlegg fólki að einbeita sér að því að
skapa frið og ró. Og í stað þess að vera í
búðarhlaupum og tiltektarstressi og gjafa-
stressi ráðlegg ég fólki að gera eitthvað
afslappað og óvenjulegt með börnum
sínum. Setjast niður við piparkökugerð,
fara út fyrir bæinn með kakó á brúsa,
ná sér í trjágrein til að skreyta, búa til
jólakort og skrifa á þau og kveikja á
friðarkerti. Ég hef þá kenningu að það
sem skapar jólaandann hjá börnum í dag
er ekki matur eða gjafir, því það er alltaf
í gangi, heldur það sem er nýtt og skapar
hughrif. Það sem fjölskyldan skapar
saman.Það sem þú gerir með börnunum
þínum er arfurinn sem þau bera til sinna
barna. Viltu að það sé enn ein Kringlu-
ferðin eða ferð út í skóg?“