Fréttatíminn - 26.11.2010, Blaðsíða 74
50 tíska Helgin 26.-28. nóvember 2010
Mánudagur
Skór: Lítil búð á Strikinu í Kaupmannahöfn
Sokkabuxur: Vero Moda
Kjóll: Vila
Peysa: Vero Moda
Klútur: Vila
Eyrnalokkar: Gyllti kötturinn
Þriðjudagur
Peysa: Gerði hana sjálf
Pils: Second hand-markaður í Kaupmannahöfn
Skór: Gjöf frá vinkonu minni
Sokkabuxur: Blend
Miðvikudagur
Pels: Fatamarkaður
Skór: Fókus
Pils: Zara
Bolur: Top Shop
Litrík og aldrei í svörtu
Karítas Björg Úlfarsdóttir er 27 ára Hafnfirðingur sem leggur stund á viðskiptafræði
í Háskólanum. Hún mun útskrifast nú um jólin og hlakkar mikið til þess. Hún er mikill
heimsborgari og hefur búið víða. „Það er svo mikið að gera í skólanum hjá mér að ég
hef ekki mikinn tíma fyrir áhugamál. Þegar ég er búin að læra mun ég trúlega finna
mér eitthvert áhugamál sem ég get farið að eyða frítíma mínum í. Annars hef ég mest
gaman af alls konar tónlist og matargerð er mjög mikil ástríða hjá mér,“ segir Karítas.
„Stíllinn minn er mjög litríkur og ég er sjaldan í svörtu. Ég kaupi þær flíkur sem mér
finnst flottar og höfða til mín, einhvern veginn bara það sem hentar mér. Ég er mest
í kjólum eða pilsum og geng mjög sjaldan í buxum. Ég prjóna og sauma mikið sjálf af
þeim fötum sem ég klæðist. Annars kaupi ég fötin mín yfirleitt í Zöru, Vero Moda eða
Vila, verslunum sem selja ekki dýran fatnað. Hins vegar er uppáhaldsbúðin mín Andrea
sem er í Hafnarfirðinum. Rosalega flott búð,“ bætir Karítas við.
5
dagar
dress
Föstudagur
Kjóll: Frá ömmu minni
Skór: Kaupfélagið
Belti: Warehose
Sokkabuxur: Oroblue
Fimmtudagur
Kjóll: Lítil búð í Barcelona
Buxur: Vero Moda
Skór: Bianco
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
Leyfum
draumunum
að rætast
Kreppa, kreppa, kreppa. Eitthvert hugtak með
leiðinlegum fylgikvillum sem leysast út í samfé-
lagið? Maður er alveg kominn með upp í kok af
öllu þessu krepputali sem hefur gengið síðustu
mánuði og ár. Ég vill helst ímynda mér að þetta sé
aðeins hugarástand sem breytist og bætist með
jákvæðum hugsunum.
Þetta var auðvitað mikið áfall fyrir þjóðina á
sínum tíma en það þýðir ekki að leyfa öllu að
renna sér úr greipum, standa í sömu sporunum
og skima í kringum sig eftir bætingu. Bíða eftir
að allt lagist og verði betra. Málið er bara að geta
tekið hlutina í sínar hendur, stækka markmið sín
og leyfa draumunum að rætast.
Það eru svo margir sem hafa gefist upp í kjölfar
þessarar kreppu. En það eru þó aðrir sem taka
áhættu, stofna sín eigin fyrirtæki og láta þau
ganga. Það er ekki svo galið að opna verslanir,
sama hvaða ástand ríkir og hversu illa við erum
stödd. Þörfin er alltaf til staðar til þess að líta vel
út, kaupa sér föt og snyrtivörur.
Síðustu misseri hef ég einmitt rekist á óvenju-
margar fata- og skóverslanir sem nýlega hafa
verið opnaðar eða hafa stækkað við sig. Á einu
göngugötu okkar Reykvíkinga hafa glæsilegar
tískuverslanir risið frá grunni og gengið svo
óvenjuvel. Þegar ég geng niður Laugaveginn sé
ég að það vantar ekkert. Tískuvöruverslanir, nær-
fataverslanir og nóg af skóverslunum. Endalaust
get ég talið upp. Það er sama hvaða ástand liggur
á þjóðinni, við sækjum alltaf í þetta.
Kannski erum við ekkert svo illa stödd eftir allt
saman. Við höfum ennþá allar þessar verslanir
og fólkið í kringum okkur hefur ekkert breyst.
Ástandið hefur vissulega versnað en sjaldan látum
við það stoppa okkur þegar kemur að innkaupum.
Lanvin for H&M
slær í gegn
Nú í nóvember hefur verslunin Hennes &
Mauritz staðið að sinni stærstu kynningar-
herferð frá upphafi. Nýjasta fatalínan
þeirra, Lanvin for H&M hefur fengið
gríðarlega góða gagnrýni frá
áhugafólki um tísku. Flíkurnar
eru hannaðar af meistaranum
Alber Elbaz ásamt fleiri stærstu
fatahönnuðum heims. Þetta eru
listrænar flíkur, hver annarri ólík.
Það var ekki fyrr en síðastliðinn
þriðjudag, 23.nóvember, að fólk
átti kost á að fjárfesta í þessum
flíkum. Fatalínan fær nú að njóta
sín í yfir tv- hundruð verslunum
H&M úti um allan heim.
Litagleði kætir
nærstadda
Sokkar og sokkabuxur hafa
alltaf gegnt því hlutverki að
halda á okkur hita. Förum
varla út úr húsi án þeirra. En
þetta er ekki bara einhver
skylduflík. Þetta eru fylgihlutir
sem þurfa að fá að njóta sín
og úrvalið er orðið svo mikið
að við höfum endalaust að
velja um. Í ár er áberandi
mikið af háum sokkum, úr ull
eða bómull, sem ná langt upp
fyrir hné. Ótal litir og mynstur.
Láttu þetta vera sem fjöl-
breyttast og mundu: Litagleði
kætir nærstadda!
vara vikunnar
Gallalaust útlit
Húðin er okkar stærsta líffæri og mikil-
vægt er að við hlúum vel að henni og
nauðsynlegt að halda hreinlætinu í há-
marki. Endalaust er talað um
ný andlitskrem og handáburð
sem nauðsynlegt sé að eign-
ast. En er ekki mikilvægt að
halda fótleggjunum einnig vel
til höfðum? Á skömmum tíma
er auðvelt að öðlast kynþokka-
fulla fætur með gallalaust út-
lit. Snyrtivörudeild Hagkaupa
selur úðabrúsa með efni sem
gerir fæturna heilbrigða og
gljáandi og auka lit húðarinnar.
Án hjálpar frá sólinni. Brúsinn
kostar 3.549 krónur.
Opnunartími
virka daga 12-18
laugardag 12-16
Grensásvegi 8 - 108 Reykjavík - 517-2040
LAGERSALA
www.xena.is
Gönguskór
St. 36-46
Verð áður 14.995
Verð nú 9.995