Fréttatíminn - 26.11.2010, Blaðsíða 21
TölvupósTsamskipTi Heiðars más og seðlabankasTjóra
Kallaðir mig fífl, ekki einu
sinni heldur fjórum sinnum
Neðangreindir tölvupóstar fóru á
milli Heiðars Más Guðjónssonar
og Más Guðmundssonar seðla-
bankastjóra 16. október síðastlið-
inn, daginn eftir að seðlabanka-
stjóri hafði samband við Birgi
Tjörva Pétursson, lögmann kaup-
endahópsins, en í því samtali seg-
ir Heiðar Már að seðlabankastjóri
hafi talið líklegustu leiðina til að
ganga frá sölunni vera án Heiðars
Más og félagsins Ursusar:
Sæll Már,
Ég er nú reyndar á ferðalagi með fjöl-
skylduna þar sem skólafrí er í Sviss.
Mér kom óþægilega á óvart að heyra
af símtali sem þú áttir við lögfræðing
kaupendahópsins í dag. Þar sem fram
kom að líklegast til árangurs væri
að sleppa mér úr hópnum. Mér kom
þetta sérstaklega á óvart þar sem þú
hringdir í mig í síðustu viku og baðst
mig um að setja mig í samband við Jón
Karlsson í gjaldeyriseftirliti til að ræða
aðkomu Ursus að viðskiptunum.
Ég fékk aldrei samband við Jón, þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir, en loks fékk ég
samband við Sigríði Logadóttur, sem
ég ræddi við stuttlega og reyndi að
skýra mál mitt og að þú hefðir beðið
mig um það. Hún sagði mér að þú
værir væntanlegur aftur til vinnu um
miðja vikuna eftir fundi í Washington.
Ég sendi þér beiðni um símafund, en
fékk ekkert svar. Okkar upphaflega
samtal varði í um 90 sekúndur, en því
miður sást þú þér ekki fært að ræða
frekar við mig. Hins vegar ræddir þú
við lögfræðing kaupendahópsins sem
ég fer fyrir í 20 mínútur í gær. Ég verð
að lýsa yfir furðu minni með þetta.
Kannski á ég ekki að vera hissa því í
þarsíðasta skiptið sem við hittumst, á
Þingholti í kvöldverðarboði Seðla-
banka Íslands, kallaðir þú mig fífl, að
fjölda vitna viðstöddum, og ekki einu
sinni heldur fjórum sinnum.
Heiðar
Sæll Heiðar,
Lýsingin á samtali mínu við lögfræðing
kaupendahópsins er ekki rétt. Ástæð-
an fyrir því að ég taldi mig þurfa að
hringja í hann var sú sama og var fyrir
því að ég hringdi í þig, þ.e. þrýstingur á
starfsmenn Sölvhóls/ESÍ að ganga frá
kaupunum. Drátturinn sem hefur orðið
á málinu að undanförnu hefur ekkert
með þessa starfsmenn að gera en
þrýstingurinn hefur verið óþægilegur
fyrir þá. Mér sýndist á tölvupósti frá
lögfræðingnum að annað hvort vissi
hann ekki um ástæðuna eða léti sem
hann vissi það ekki.
Ég sagði honum frá ástæðu dráttarins
en þá kom í ljós að honum var kunnugt
um málið. Síðan sagði ég honum
að við hefðum verið að rannsaka
málið frá ýmsum hliðum, þ.m.t. að afla
okkur ytri og innri lögfræðilegrar ráð-
gjafar. Endanleg afstaða um hvernig
Seðlabankinn myndi snúa sér í málinu
hefði ekki verið tekin en þá síðar um
daginn yrði fundur þar sem sú afstaða
yrði rædd og jafnvel tekin ákvörðun.
Ég útskýrði fyrir honum að gjald-
eyriseftirlitið væri sjálfstætt í sínum
rannsóknum og að ég hefði aldrei haft
afskipti af þeim málum að öðru leyti
en að setja upp það skipulag sem um
starfsemina gildir. Ég get auðvitað
spurt spurninga en ákvörðun um
hvaða mál eru rannsökuð og í hvaða
málum er kært liggur hjá eftirlitinu. Ég
sagði honum að ef það yrði niður-
staða eftirlitsins að þetta mál færi í
kærumeðferð yrði nánast útilokað
fyrir Seðlabankann að ganga frá fyrir-
liggjandi samningum óbreyttum.
Þá kæmu upp tveir möguleikar, þ.e.
að kaupendahópurinn breytti sér eða
þessu söluferli væri lokið og að ríkið
setti kraft í að reka Sjóvá þar til nýir
sölumöguleikar opnuðust.
Taktu eftir því að þetta þýðir að enn
eru þrír möguleikar á borðinu. Ég vil
hins vegar vera heiðarlegur við þig
með það að líkurnar á því að eftir-
litið komist að þeirri niðurstöðu að
ekki hafi verið um brot að ræða hafa
minnkað frá því við töluðum saman.
Þú verður að trúa mér með það að
mér þykir það óendanlega leiðinlegt
að þessi staða skyldi koma upp. Þar
til gjaldeyriseftirlitið flaggaði um
hugsanlegt brot taldi ég að við værum
á leiðinni að lenda samningum sem
fælu það í sér að þú myndir leika stórt
hlutverk í endurreisn Sjóvá. Mér leist
vel á þær horfur og sló á einstaka
gagnrýnisraddir. Ástæðan er sú að ég
hef haft töluvert álit á þér og hef að
sumu leyti enn. Það kann að vera að
þú hafir rétt eftir það sem ég kann að
hafa sagt við þig á Þingholti um árið en
ekki get ég staðfest það og spyr hvort
einhver misskilningur sé á ferðinni?
Sé þetta hins vegar rétt, og þú tekið
ummælin alvarlega, biðst ég afsökunar
á því. Ef þetta gerðist þykir mér líklegt
að þetta hafi verið í hita umræðunnar
um einhliða upptöku evru eða eitthvað
því um líkt enda endurspegla þau orð
sem þú hefur eftir alls ekki viðhorf
mitt til þín.
(Sent af Má Guðmundssyni)
úttekt 21 Helgin 26.-28. nóvember 2010
Staðgreiðslulán Borgunar eru einföld leið fyrir
verslanir til að bjóða viðskiptavinum sínum að
dreifa greiðslum á kreditkort í allt að 48 mánuði.
MasterCard og VISA korthafar eiga kost á að nýta
sér þessa greiðsluleið.
Kostir Staðgreiðslulána
Bætt þjónusta
Engin þjónustugjöld
Uppgjör á öðrum degi
Borgun ábyrgist uppgjör
til seljanda
Hafðu samband við okkur í síma
560 1600 eða á fyrirtaeki@borgun.is
og kynntu þér kosti lánanna.
Ármúla 30 • 108 Reykjavík
Sími 560 1600 • www.borgun.is
Auðveldaðu viðskiptin
með Staðgreiðslulánum
Borgunar
glæsilega
r jólagja
fir!
frábært v
erð!
Northbrook
blizzard Parka
Vetrarúlpa með hettu
og loðkraga. Vindhelt efni
sem hrindir frá sér vatni.
Svört og dökkbrún í
herrastærðum. Svört og
ljósbrún í dömustærðum.
úlPa
frábært verð
16.990
HELGARBLAÐ
Sími 531 3300