Fréttatíminn - 26.11.2010, Blaðsíða 31
einstaklingarnir koma alltaf upp
á réttum tíma. Það var enginn að
tala um Jóhönnu sem leiðtoga í að
draganda þess að hún tók við en
hún var akkúrat rétta manneskjan
á réttum tíma. Ingibjörg Sólrún og
Össur voru mjög afgerandi leiðtogar
árum saman og Össur fyrir sína vísu
ennþá. Þannig að það er í sjálfu sér
ekki vandamálið. Það er fullt af öfl
ugu fólki og tíminn og tíðarandinn
kalla eftir ákveðnum manngerðum
þegar að því kemur.“
Brenndur og reiður
Björgvin talar í bók sinni um
algeran trúnaðarbrest á milli
stjórnarflokkanna hina örlagaríku
Glitnishelgi, sem og fullkominn
trúnaðarbrest á milli hans og for
ystufólks ríkisstjórnarinnar. Hann
ber þó ekki lengur kala til þess fólks
sem hélt honum úti í kuldanum á
meðan einhverjir stærstu atburðir í
sögu þjóðarinnar áttu sér stað. „Ég
ber ekki kala til þessa fólks lengur
en ég gerði það auðvitað þá og í eftir
málunum. Það hefur mikil áhrif á
mann að lenda í svona miklum eldi
sem brennir mann og laskar og þá
fer maður auðvitað í gegnum allt
litróf tilfinninganna; reiði, gremju
og allt þetta. En þegar upp er staðið
og frá líður er ég þeim ekki reiður.
Ég hef einfaldlega tekið þá stefnu
að eigi ég eitthvað vantalað við ein
hverja um þessa atburði þá ræði ég
það bara við þetta fólk. Ég hef rætt
þetta við Ingibjörgu Sólrúnu, Geir
Haarde og aðra. Það fór ýmislegt
úrskeiðis. Þau gerðu mistök. Ég
gerði mistök. Við gerðum öll mistök.
Glitnishelgin var ein mistakasería út
og suður. Úr þessu unnum við eins
og staðan var á þeim tíma en það
er bara svo erfitt að horfa til baka
á meðan maður gengur áfram. Þá
hrasar maður í hverju skrefi og ég
ætla ekki að gera það. Ég vinn bara
úr þessum atburðum og er ekkert að
velta mér upp úr því. Þessir atburðir
liggja einfaldlega fyrir og ég fjalla al
veg hispurslaust um þetta í bókinni.
Björgvin er harður á því að þær
hremmingar sem hann gekk í gegn
um sem viðskiptaráðherra hafi ekki
bundið enda á pólitískt líf hans. „Það
hvarflar ekki að mér að láta hrekj
ast undan þessu. Ég hóf tiltölulega
óvænt þátttöku í pólitík af því að ég
ætlaði mér aldrei að verða stjórn
málamaður. Ég ætlaði að vinna við
skriftir, fræðastörf og ýmislegt
annað og var að mennta mig í því
þegar mér bauðst að taka sæti á lista
flokksins 1999. Þá var ég í masters
námi úti á Írlandi og ætlaði að helga
mig því. Ég mun sjálfsagt hætta
jafn óvænt og ég byrjaði þegar að
því kemur en þessa atburði læt ég
ekki feykja mér um koll eða hrekja
mig í burtu, svo lengi sem ég hef
traust og umboð kjósenda. Ég fór í
galopið prófkjör hálfu ári eftir hrun
og vann það með yfirburðum. Ég
leiddi flokkinn í kjördæminu á með
an stanslaust dundu á mér, sérstak
lega svona neðanmáls,
ásakanir og upprifjan
ir um hrunið, banka
málin og allt. En kjós
endur kusu með kalt
höfuð og ég fékk til
tölulega lítið af út
strikunum miðað við
aðstæður. Það hefði
verið léttur leikur að
skauta mér út af list
anum en flokkurinn
var stærstur og ég er
fyrsti þingmaðurinn í
kjördæminu. Á meðan
ég nýt trausts og stuðnings er mér
ekkert að vanbúnaði og á meðan ég
hef löngun og vilja til að taka þátt í
þessu þá geri ég það.“
Í estu sem viðkemur jólahaldinu er best að halda í hefðirnar
og þar er MS rjóminn hvergi undanskilinn. MS rjóminn er þessi
gamli góði sem er samt alltaf ferskur. Nú er hann fáanlegur í
nýjum umbúðum með skrúfuðum tappa. Hann myndi endast á
milli jóla og nýárs – ef hann væri ekki svona góður.
Björgvin blaðar í fyrsta eintaki
bókarinnar Stormurinn – Reynslusaga
ráðherra með dætrum sínum Guðrúnu
Rögnu og Elísabetu en þegar Guðrún
Ragna áttaði sig á að pabbi væri búinn
að skrifa heila bók datt henni ekkert
annað til hugar en að um matreiðslubók
væri að ræða. Sem þykir nokkuð
skondið þar sem Björgvin er þekktur
fyrir flest annað en fimi og hugmynda-
auðgi við eldavélina. Mynd/Björn Ingi
Bjarnason
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hélt
Björgvini utan við mál er vörðuðu
hann og ráðuneyti hans í banka-
hruninu en hann hefur farið yfir þá
atburði með fyrrverandi formanni
sínum.
Geir H. Haarde og Björgvin höfðu
ekki hist síðan Geir gekk af hinu
pólitíska sviði og Björgvin sótti
hann því óvænt heim þegar bókin
kom út og færði honum eintak.
Ég hef rætt þetta við
Ingibjörgu Sólrúnu,
Geir Haarde og aðra.
Það fór ýmislegt úr-
skeiðis. Þau gerðu mis-
tök. Ég gerði mistök.
Við gerðum öll mistök.
viðtal 31 Helgin 26.-28. nóvember 2010