Fréttatíminn - 26.11.2010, Blaðsíða 36

Fréttatíminn - 26.11.2010, Blaðsíða 36
Lionel Messi, Barcelona Aldur: 23 ára Númer: 10 Hæð: 1,69 m Þyngd: 67 kg Staða: Framherji Leikir/mörk á þessu tímabili: 18/23 Leikir/mörk samtals: 232/150 Hjörvar um Ronaldo „Hann er með einstakt líkamlegt atgervi fyrir knattspyrnumann. Líkami hans er stútfullur af vöðvum og nánast engri fitu. Hann er hávaxinn og nausterkur. Ronaldo er með ótrúlega spyrnugetu. Setur ristina ofarlega á boltann og hann svífur í loftinu. Þar fylgir hann í kjölfarið á mönnum eins og Juninho (Lyon) og Andrea Pirlo. Tæknin er mögnuð. Hann getur gert hluti með boltann sem venjulegir fótboltamenn geta ekki gert með blöðru. Hann hefur sýnt heim- inum nýjar útgáfur af skærum og alls konar trixum. Ekki má heldur gleyma því að hann er einn sterkasti skallamaður heims þar sem líkamlegir yfirburðir hans njóta sín. Og eigum við að tala um hraðann? Hann hefur ótrúlegan hraða og er einn af allra fljótustu knattspyrnumönnum heims. Ronaldo virðist vera mikill leiðtogi og fer nú fyrir ungu liði Real Madrid. Það má eiginlega segja að hann hafi allt í sínu vopnabúri. Fyrst þegar hann steig fram var talað um að hann væri svokallaður „one trick pony“. Kynni bara flott skæri en svo kæmi ekk- ert út úr því. Hann kann hins vegar allt í íþróttinni. Það eina neikvæða við hann er að hann á það til að vera með grát- legan leikaraskap. Nú síðast gegn AC Milan á Ítalíu fyrr í mánuðinum. Slík vitleysa hefur gert Ronaldo að frekar umdeildum leik- manni sem knattspyrnu- áhugamenn annað hvort elska eða hata.“ Staðan í deildinni Real Madrid 12 10 2 0 33:6 32 Barcelona 12 10 1 1 33:8 31 MarkahæStu Menn: Cristiano Ronaldo, Real Madrid 14 Lionel Messi, Barcelona 13 Porto Mónakó – Porto úrslita- leikur meistaradeildar Evrópu 2004 Vitor Baia 35 Paulo Ferreira 25 Jorge Costa 33 ricardo Carvalho 26 nuno Valente 30 Costinha 29 Pedro Mendes 25 Maniche 27 deco 27 derlei 29 Carlos alberto 20 Meðalaldur 27,8 Chelsea Manchester United – Chelsea úrslitaleikur enska bikarsins 2007 Petr Cech 25 Paulo Ferreira 28 Michael essien 25 John terry 27 Wayne Bridge 27 Calude Makelele 34 Frank lampard 29 John Obi Mikel 20 Shaun Wright-Phillips 26 Joe Cole 26 didier drogba 29 Meðalaldur 26,9 inter Milan Bayern München – Inter Milan úrslitaleikur meistaradeildarinnar 2010 Julio Cesar 31 Maicon 29 lucio 32 Walter Samuel 32 Christian Chivu 30 Javier Zanetti 37 esteban Cambiasso 30 Wesley Sneijder 26 Samuel eto'o 29 Goran Pandev 27 diego Milito 31 Meðalaldur 30,4 real Madrid Real Madrid – Athletic Bilbao spænska úrvals- deildin 2010 iker Casillas 29 Sergio ramos 24 ricardo Carvalho 32 Pepe 27 Marcelo 22 Xabi alonso 29 Sami khedira 23 Cristiano ronaldo 25 angel de Maria 22 Mezut Ozil 22 Gonzalo higuaín 23 Meðalaldur 25,3 EL CLásICo Einvígi tveggja bestu hinn dvergvaxni lionel Messi mætir risanum Cristiano ronaldo í stórleik ársins í spænska boltanum á mánudag. Madrid langyngsta lið Mourinho A nnar þeirra lítur út eins og grískur guð en hinn eins og hann hafi verið dreginn út úr ævintýrinu um Mjallhvíti og dvergana sjö. Þeir eiga það þó sameiginlegt að geta báðir gert til- kall til titilsins Besti knattspyrnu- maður í heimi. Um það getur enginn deilt. Argentínski snillingurinn Lionel Messi og portúgalska hraðlestin Cristiano Ronaldo mætast á mánudag í El Clásico – Barcelona gegn Real Madrid. Þessa leiks er beðið með gríðarlegri eftirvæntingu, jafnvel meiri en oft áður. Bæði liðin eru í toppformi og hafa skilið önnur lið í deildinni eftir í reyk. Real Madrid er fyrir leikinn með eins stigs forystu á Barcelona. Þetta eru bestu liðin, með bestu leikmennina og sennilega bestu þjálfarana, Jose Mourinho og Pep Guardiola. Og í liðunum tveimur eru tveir bestu leikmenn heims. Lionel Messi sem hefur skorað 22 mörk í 17 leikjum fyr- ir Barcelona á þessu tímabili og Cris- tiano Ronaldo sem hefur gert 17 mörk í 18 leikjum fyrir Real Madrid. Báðir í besta formi lífsins og skoruðu þrennu um síðustu helgi. Fréttatíminn fékk knatt- spyrnuspekinginn Hjörvar Hafliðason til að segja sitt álit á þessum tveimur snillingum. Hjörvar um Messi „Messi er afar vinsæll leikmaður. Ég kalla hann stundum Vigdísi Finnbogadóttur fótboltans því það er í raun og veru ekki hægt að vera illa við hann. Hann er góður íþróttamaður sem spilar leikinn án allra stæla. Knattrak hans er ein- stakt. Hann er með öll grunnatriði knatt- spyrnunnar upp á tíu. Þegar hann kemst á ferðina er ekki hægt að stoppa hann. Messi er frábær markaskorari og hefur gert sex þrennur á þessu ári. Þá er það þekkt að örfættir leikmenn séu mjög einfættir eins og stundum er sagt. En Messi beitir hægri fætinum mun meira en tíðkast hjá flestum örfættum leikmönnum. Hann er með jafnvægi sem líklega þekkist ekki hjá nokkrum öðrum íþrótta- manni. Hann er með þyngdar- punktinn mjög neðarlega, sem gerir það ómögulegt að stöðva hann þegar hann er kominn á ferð- ina og varnarmenn líta oft út eins og keilur þegar Messi svigar fram hjá þeim. Öfugt við marga fljóta leik- menn sem hafa treyst á hraða sinn alla tíð hefur Messi gríðarlega mikinn leik- skilning og kann leikinn út og inn. Þess vegna hefur samvinna hans, Iniesta og Xavi gengið svona vel. Þetta eru allt menn með afar háa „fótboltagreindarvísitölu“. Oft hefur verið talað um að veikleiki Messi sé í loftinu. Það er einfaldlega ekki rétt. Vegna undraverðs sprengikrafts er hann mjög góður skallamaður. Mark hans gegn Manchester United í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2009 undirstrikar það. Þar hékk hann í loftinu í lengri tíma áður en hann setti pönn- una í boltann.“ Cristiano Ronaldo, Real Madrid Aldur: 25 ára Númer: 7 Hæð: 1,86 m Þyngd: 75 kg Staða: Framherji Leikir/mörk á þessu tímabili: 19/18 Leikir/mörk samtals: 377/174 36 fótbolti helgin 26.-28. nóvember 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.