Fréttatíminn - 26.11.2010, Side 56

Fréttatíminn - 26.11.2010, Side 56
20 jól Helgin 26.-28. nóvember 2010 Skráðu eignina þína þar sem hún selst! Ég seldi þessar eignir á síðustu 30 dögum! Hringdu núna 699 5008Hannes Steindórsson Sölufulltrúi hannes@remax.is Sími: 699 5008 Þórarinn Jónsson hdl. lögg. Fasteignasali Í slenskt útsaumsmynstur er fært í nýjan bún­ing í jólalínunni frá Stássi. Um er að ræða jólalínu úr plexígleri sem samanstendur af jólastjörnum í tveimur stærðum og aðventu kransi í stíl. Arkitektarnir Árný Þórarinsdóttir og Helga Guðrún Vilmundardóttir eru hönnuðirnir á bak við Stáss. Þær segja að hugmyndin hafi kvikn­ að þegar þær uppgötvuðu að lítið var til af sér­ íslensku jólaskrauti. Jólastjörnurnar er hægt að hafa á borði eða hengja upp og minni jólastjörn­ urnar má nota sem glasabakka. Jólaskrautið kem­ ur í flötum pakkningum og þarf að setja saman en þannig öðlast það þrívídd. Þær stöllur segja að skrautið höfði vel til Íslendinga, þar sem sagan er færð áfram í nýrri mynd. Það fæst í hvítu, rauðu og appelsínugulu. Jólaskrautið frá Stássi fæst í Epal, Mýrinni, Safnabúð Þjóðminjasafnsins og í Hrími og Sirku á Akureyri.  Íslensk hönnun Jólaskraut úr plexígleri Ráð við jólastRessi Margrét Pála Ólafsdóttir leikskólastjóri „Ég ráðlegg fólki að einbeita sér að því að skapa frið og ró. Og í stað þess að vera í búðarhlaupum og tiltektarstressi og gjafa- stressi ráðlegg ég fólki að gera eitthvað afslappað og óvenjulegt með börnum sínum. Setjast niður við piparkökugerð, fara út fyrir bæinn með kakó á brúsa, ná sér í trjágrein til að skreyta, búa til jólakort og skrifa á þau og kveikja á friðarkerti. Ég hef þá kenningu að það sem skapar jólaandann hjá börnum í dag er ekki matur eða gjafir, því það er alltaf í gangi, heldur það sem er nýtt og skapar hughrif. Það sem fjölskyldan skapar saman.Það sem þú gerir með börnunum þínum er arfurinn sem þau bera til sinna barna. Viltu að það sé enn ein Kringlu- ferðin eða ferð út í skóg?“

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.