Fréttatíminn - 26.11.2010, Side 10
Sem betur fer
var sett inn í
hafnalög heimild
fyrir hafnirnar
til að taka þessi
óreiðuskip ... “
Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna,
segir Reykjavíkurhöfn hafa verið með töluvert af
óreiðubátum á síðustu árum en staðan sé nokkuð
góð núna. Unnið hafi verið markvisst að því að losna
við þá, eftir séu tveir eða þrír í höfninni og tveir
trébátar hafi verið teknir á land í Sundahöfn. Gísli
segir stálbátana skárri því hægt sé að losna við þá í
brotajárn en talsverður kostnaður fylgi því að farga
trébátum. „Við vorum búnir að taka okkar skammt
af austantjaldstogurunum með hinu fræga skipi
Odinkova en við losnuðum við það. Skipið var raunar
gert upp í Póllandi og er nú notað sem þjónustuskip
í olíuiðnaði.
Sá sem er sýnu verstur hér í Reykjavík er Þór, gamla
varðskipið,“ segir Gísli og bætir því við að menn taki
út fyrir að horfa á skipið. Hið fornfræga skip þorska-
stríðanna, sem má muna sinn fífil fegri, liggur nú við
Gufunesbryggju. Sú bryggja er að vísu ekki á ábyrgð
Faxaflóahafna heldur Íslenska gámafélagsins. „Þór
var orðinn slæmur áður en restin fór af honum þegar
hann var notaður í kvikmyndatökur myndarinnar
Reykjavík Whalewatching Massacre,“ segir Gísli. -jh
Taka út fyrir að horfa á Þór
Þ etta er eina skipið sem er í óreiðu en það eru fleiri skip sem liggja í höfninni og eru ekki í rekstri
en það er alltaf borgað af þeim,“ segir
Ína Illugadóttir, skrifstofustjóri Hafnar-
fjarðarhafnar. Höfnin auglýsti á dögun-
um uppboð á m.v. OBSHS, „óreiðuskipi“
í Hafnarfjarðarhöfn. Sýslumaðurinn í
Hafnarfirði býður skipið upp á fimmtu-
daginn í næstu viku, 2. desember.
Ína segir að togarinn hafi verið bund-
inn við bryggju í Hafnarfirði í nærfellt
tvö ár. Skipið er skráð í eigu Brand-
ford Commerce Ltd Í Belize City í Be-
lize en Bjarni Ásgeirsson, lögmaður
Hafnarfjarðarhafnar, segir að þar sé um
skúffufyrirtæki og austantjaldsútgerð að
ræða. Engir Íslendingar komu að útgerð
skipsins utan þess sem umboðsmaður
eigenda sá um viðskipti við höfnina en
hann ber enga ábyrgð á rekstri skipsins.
Bjarni segir að nær eingöngu hafnar-
gjöld hvíli á skipinu, sennilega um fjórar
milljónir króna. Hann segir þetta mikið
vandamál í höfnum landsins. Hinir og
þessir komi að málum og stingi svo af
frá öllu saman. „Sem betur fer var sett
inn í hafnalög heimild fyrir hafnirnar
til að taka þessi óreiðuskip á tiltölulega
einfaldan máta og selja þau. Það þarf að
auglýsa og tilkynna eigendum en alveg
er sama hvort þeir fá bréfið eða ekki,
bara ef það hefur sannanlega verið sent.
Með þessum hætti losna hafnirnar við
skipin,“ segir Bjarni.
Togarinn Lómur í brotajárn
Kópavogshöfn losnaði nýlega við togar-
ann Lóm sem legið hafði þar við frá því
um sumarið 2008. „Skipið lokaðist hér
inni við hrunið haustið 2008,“ segir Júl-
íus Skúlason hafnarvörður. Hann segir
eiganda skipsins hafa verið íslenskan en
það hafi verið skráð í Eistlandi. Á sínum
tíma var skipið gert út til rækjuveiða á
Flæmska hattinum. Eftir að hafa landað
í Grundarfirði var skipinu siglt til Kópa-
vogs þar sem breyta átti vélum þess fyrir
brennslu svartolíu.
Júlíus segir legu togarans í Kópavogs-
höfn í svo langan tíma hafa skapað höfn-
inni mikinn vanda enda aðeins einn
kantur fyrir svo stór skip. Borgað hafi
verið af skipinu fram í febrúar 2009 en
eftir það hafi hafnargjöld hlaðist upp,
300-400 þúsund krónur á mánuði. Bank-
inn sem veð hafi átti í skipinu hafi loks
leyst það til sín á uppboði síðastliðið vor.
Það var svo dregið til Danmerkur á dög-
unum og verður sett í brotajárn.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
hallærisútgerð Uppboð á togara næsta fimmtUdag
Hafnirnar losa sig
við „óreiðuskipin“
Hafnarfjarðarhöfn langþreytt á dalli skúffufyrirtækis í Belize. Kópavogshöfn
losnaði við togarann Lóm í brotajárn á dögunum.
„Óreiðuskipið“ m.v.OBSHS í Hafnarfjarðarhöfn. Ljósmynd/Hari
Ljósmynd/Hari
Farðu inn á www.oddi.is
og búðu til persónulega gjöf.
Spil og jóladagatöl með þínum myndum.
Hannaðu þín
eigin spil eða
jóladagatal
á oddi.is
JÓLAPRÝÐI
PÓSTSINS 2010
Jólaprýði er fallegt jólaskraut fyrir heimilið
og tilvalið í jólapakkann.
Sveinbjörg Hallgrímsdóttir myndlistar-
maður á Akureyri er höfundur jólaóróanna
og jólafrímerkjanna 2010.
Jólaóróarnir eru seldir 4
saman í pakka á kr. 3.100
og stakir í pakka á kr. 850.
10 fréttir Helgin 26.-28. nóvember 2010