Fréttatíminn - 26.11.2010, Síða 22
L jósmyndirnar í nýrri bók Jónatans Grétarssonar ljósmyndara, Íslenskir lista
menn, eru ekki svipmyndir sem
fanga eitt augnablik, heldur út
hugsuð og þaulunnin myndverk.
„Áður en ég byrjaði að mynda
settist ég yfirleitt niður með
hverjum og einum í hálftíma, eða
klukkutíma, drakk með þeim
kaffi og spjallaði. Sumt af þessu
fólki hafði ég aldrei hitt augliti til
augliti áðurs. Ég þurfti að stúdera
andlitin, kynnast þeim betur áður
en ég gat byrjað.“
Jónatan segir að hann hafi notað
allt að fimm ljós til að lýsa við
fangsefni sín. Og lýsingin er hörð
og óvægin, hér er enginn glamúr
á ferðinni. Hver hrukka, skora og
misfella er dregin fram í andlit
um þeirra sem eru fyrir framan
linsuna. Aðspurður hvernig fyrir
sæturnar hafi tekið þessu mis
kunnarlausa ljósi, segir Jónatan
viðbrögðin ekki hafa verið vanda
mál. „Það kvartaði að minnsta
kosti enginn,“ segir hann og
glottir.
Bók Jónatans er þykk og veg
leg enda hefur Jónatan verið að
vinna að henni í nokkur ár. „Elsta
myndin er tekin 2004, en ég fór
markvisst að mynda fyrir bókina
árið 2007. Að sögn Jónatans hefur
hann myndað yfir 100 íslenska
listamenn úr öllum listgreinum og
á ýmsum aldri á þessu tímabili.
Jónatan er fæddur 1979. Hann
lauk sveinsprófi í ljósmyndun frá
Iðnskólanum í Reykjavík 2002
og hefur einnig stundað nám við
International Center of Photo
graphy í New York. Hann hefur
tekið þátt í samsýningum blaða
og ljósmyndarafélagsins og unnið
sem ljósmyndari fyrir tímarit auk
þess að reka eigið stúdíó. Í tilefni
af útgáfu bókarinnar verður opnuð
á morgun, laugardag, sýning með
nokkrum myndum úr henni á 2.
hæð Iðuhússins við Lækjargötu. -jk
Í ljósi og skugga Jónatans
Ný og metnaðarfull ljósmyndabók með andlitum íslenskra listamanna.
22 ljósmyndir Helgin 26.-28. nóvember 2010