Fréttatíminn - 26.11.2010, Síða 25
5. sæti Birgir Andrésson
– Í íslenskum litum
eftir Þröst Helgason
„Þetta er kannski ósann-
gjarnt val en þessi kápa
er bara svo helvíti flott!
Textalýsing á manninum
sem bókin fjallar um sem
kallast fullkomlega á við
viðfangsefnið. Auðvitað!“
– Stefán Snær Grétarsson.
„Kápuhönnunin er eins
og tilbrigði við verk Birgis
Andréssonar. Strigaáferð
falleg. Heitið, káputexti
og strikamerki sett á
lausprentaðan borða, svo
bókin sjálf verður listaverk.
Snilld.“
– Elsa María Ólafsdóttir.
6. sæti Þjóðgildin
eftir Gunnar Hersvein
„Skýrt myndmál sem
gefur góða hugmynd um
innihaldið án þess að fara
í einhverjar flækjur eða
of mikið ljósmyndamix.“ –
Arnór Bogason.
7. sæti Áttablaðarósin
eftir Óttar M. Norðfjörð
„Ákaflega falleg kápa og
forvitnileg, maður getur
starað á hana í óratíma,
eins og fiskabúr. Gleður
augað og passar skrifum
Óttars.“
– Halldór E.
8. sæti Sturlunga
ritstjóri Örnólfur Thorsson
„Flott hönnun á öskju utan
um þrjú bindi Sturlungu.
Gerir bókina einstaklega
eigulega.“
– Dögg Hjaltalín.
9. sæti Ég sé ekkert
svona gleraugnalaus
eftir Óskar Magnússon
„Dásamleg kápa. Þegar ég
lít á hana finnst mér eins
og ég hafi sjálfur fleygt
skónum upp í rafmagns-
línuna og liggi nú í grasinu,
mökk sama um allt og
alla.“
– Halldór E.
10. sæti Kjarni málsins
eftir Hannes H. Gissurarson
„Einstaklega klassísk og
flott kápa. Það gefast
ekki mörg tækifæri til
að eignast málverk eftir
Þránd Þórarinsson.“
– Dögg Hjaltalín.
Aðrar góðar
Mér er skemmt
eftir Einar Kárason
„Hugmynd sem búið er að
nota nokkrum sinnum en
sjaldan eins smekklega og
hér.“ - Halldór E.
Svar við bréfi Helgu
eftir Bergsvein Birgisson
„Kápan sjálf er einföld
og það er kannski það
sem heillar mig mest. Til-
hneigingin hefur verið að
hafa kápurnar „bissí“ til að
þær standi út úr en ég er á
því að einföld letur- og lita-
meðferð skili meiru en lag
ofan á lag af ljósmyndum
af skítugum pappír. Hér
er enginn óþarfi, bara
gömul ljósmynd og
snyrtileg handskrift. Ég hef
alltaf verið hrifinn af svona
gamalli tengiskrift, kannski
af því að ég hef aldrei
þurft að læra hana. Það er
eitthvað svo klassískt við
hana. – Arnór Bogason.
Þóra biskups og raunir
íslenskrar embættis-
mannastéttar
eftir Sigrúnu Pálsdóttur
„Myndin af Þóru er
flott þar sem hún horfir
dreymin á svipinn, og
einmitt ekki nauðsynlegt
að sýna allt andlitið, heldur
láta það ná út yfir kjölinn.
Velútfært litasamspil í
myndum og texta. Kápan
er í senn yfirveguð og sést
af löngu færi.“
– Elsa María Ólafsdóttir.
Versta bókar-
kápa ársins
Biðukollur útum allt
eftir Kleopötru Kristbjörgu
„Þetta er svona þegar
smekkleysan gengur alla
leið. Svo langt að það er
spurning hvort versta
kápan sé ekki líka kandídat
í bestu kápuna. Það er
ekki hægt að ganga fram
hjá þessari kápu alla
vega. Myndmálið kemur
úr teiknimynd eftir Walt
Disney og Salvador Dalí.“
– Guðmundur Oddur Magnússon.
„Sögunni er lýst sem
átakanlegri, og kápan slær
henni algjörlega við í þeim
efnum. Algjört fótósjopp-
fyllirí og húrrandi slæmir
timburmenn. Ein sú allra
smekklausasta kápa sem
ég hef nokkru sinni séð.“
– Bergþóra Jónsdóttir.
„Það er einhvern veginn
allt rangt við þetta, bæði
hugmynd og tæknileg
útfærsla. Samt einhvern
veginn stutt í sturlaða
snilld. Hvers á Cooper
Black að gjalda?“
– Stefán Snær Grétarsson.
„Ég er eiginlega bara
gáttaður. Hvað er þetta
eiginlega? Hverjum dettur
svona skrípaleikur í hug?
Það er eiginlega ekki hægt
að lýsa þessu með orðum.
Eru þetta Adam og Eva
að bíða? Eru þau að koma
eða fara ... og verða þau
hauslaus þegar blæs? Ég á
ekki til orð.“
– Arnór Bogason.
2. sæti Loksins Sex-
bomba á sextugsaldri
eftir Helgu Thorberg
„Lítur út eins og hulstur
á danskri unglingamynd.
Letrið og myndin eiga að
endurspegla blússandi
lífsgleði söguhetju en gera
nákvæmlega ekkert fyrir
kápuna. Sýp hveljur með
söguhetjunni í fjöruborð-
inu.“
– Bergþóra Jónsdóttir.
„Vond mynd af sögu-
hetjunni í flæðarmálinu.
Hún virkar eins og hún sé
að flýja undan hákarli en
ekki að skemmta sér sem
sexbomba á sólarströnd.“
– Elsa María Ólafsdóttir.
3. sæti Allt fínt ... en þú?
eftir Jónínu Leósdóttir
„Alltof erlendis kápa
sem segir ekki neitt um
innihaldið en líklegasta
ágiskun er unglingabók.“
– Dögg Hjaltalín.
„Skelfingarsvipurinn
á konunni sem hangir
þarna á bláþræði finnst
mér eyðileggja kápuna.
Ef andlit konunnar væri
ekki, einungis hendurnar,
þá væri þetta góð kápa.
Óþarfi að sýna andlit aðal-
persónunnar, synd að leyfa
ekki lesandanum að njóta
þess að ímynda sér það
sjálfur.“
– Elsa María Ólafsdóttir.
4. sæti 10.10.10 eftir
Henry Birgi Gunnarsson
„Kápa sem á að selja
ákveðna ímynd sem virkar
ekki.“
– Dögg Hjaltalín.
5. sæti Útlagar
eftir Sigurjón Magnússon
„Myndmálið virðist eiga að
sýna einhverja austur-evr-
ópska stemningu á sjötta
áratugnum en ekkert er
hins vegar pælt í leturvali
eða meðferð mynda eins
og hún var þá, nema rétt á
yfirborðinu. Eitthvað sem
hefði getað orðið mjög gott
en varð það ekki.“
– Arnór Bogason.
Álitsgjafar:
Guðmundur
Oddur Magnús-
son prófessor í
grafískri hönnun
við Listaháskóla
Íslands
Elsa María
Ólafsdóttir
verslunarstjóri
hjá Eymundsson
á Skólavörðustíg
Stefán Snær
Grétarsson
teiknistofustjóri
á Fíton
Bergþóra Jóns-
dóttir nemi á
lokaári í grafískri
hönnun við LHÍ
Halldór E.
smásagna-
höfundur og
högurður
Dögg Hjaltalín
verslunarstjóri
bókabúðar Máls
og menningar
Arnór Bogason
nemi á lokaári í
grafískri hönnun
við LHÍ
FLEYG ORÐ Á ÍSLENSKU
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
2
8
7
7
Farsíminn
hluti af
Símavist
Fyrirtæki
Í Símavist eru farsímar hluti af IP símkerfinu
og er greitt fast mánaðar gjald á
hvern notanda.
Við erum sérfræðingar í rekstri símkerfa
Öll símtö
l
innan fyr
irtækis á
0 kr.
Það er
800 4000 • siminn.is
úttekt 25 Helgin 26.-28. nóvember 2010