Fréttatíminn - 26.11.2010, Qupperneq 34

Fréttatíminn - 26.11.2010, Qupperneq 34
Auglýsing dagblað 5d x 10 cm mikið úrval fyrir allar gerðir bíla góð greiðslukjör Rauðhellu 11, Hfj.  568 2035 Hjallahrauni 4, Hfj.  565 2121 Dugguvogi 10  568 2020 www.pitstop.is VAXT ALAU ST VISA & MAS TE RC A R D VA X TA LA US T Í AL LT AÐ 6 MÁNUÐI ÞRJÁR FULLKOMNAR ÞJÓNUSTUSTÖÐVAR VETRARDEKK VERÐFRÁBÆRT Verðdæmi m.v. 15% staðgreiðs luafslátt 175/65 R 14 – Fr á kr. 9.775 185/65 R 14 – Fr á kr. 10.498 185/65 R 15 – Fr á kr. 11.475 195/65 R 15 – Fr á kr. 11.815 205/55 R 16 – Fr á kr. 14.365 En á endanum tókum við maður- inn minn þá ákvörðun að gera þetta ekki og sleppa lyfjameðferðinni.“ Hún segir að læknirinn hafi þá tekið í höndina á henni og sagt að kæmi í ljós að ákvörðunin væri ekki sú rétta tækju þau sameiginlega á því. Ákvörðunin hefur þó hingað til reynst sú rétta. Íris Björk hefur ver- ið í reglulegu þriggja mánaða eftir- liti síðan hún fór í stóru aðgerðina en um daginn var það lengt í hálfs árs eftirlit. Tæp fjögur ár eru frá að- gerðinni en miðað er við að fimm ár þurfi að líða áður en hægt sé að segja að Íris Björk hafi náð fullum bata. „Eftir þessi fimm ár eiga lík- urnar á að ég fái krabbamein að vera eins og hjá hverjum öðrum.“ Gullfólkið án upplýsinga Ristilkrabbamein er alls ekki al- gengt meðal svo ungs fólks og ívið algengara hjá körlum en konum. Samkvæmt vef Krabbameinsfélags- ins greinast um 57 karlar á ári og 45 konur. Meðalaldur þeirra sem greinast er 71 ár og látast um tutt- ugu af hvoru kyni árlega úr því, 22 karlar og 19 konur. Íris er nú með- limur í félagsskap þeirra á vegum Krabbameinsfélagsins sem hafa lifað af ristilkrabbamein. Henni finnst mikilvægt að fé verði veitt til skimunar á ristilkrabba ekki síður en brjósta- og leghálskrabbameini. Og þegar hún hugsar um starfs- fólk Landspítalans er hún sátt og kallar það gullfólkið. „Það er rosa- lega vel hugsað um mann á spítal- anum.“ Annað mál segir hún hins vegar að skyggi á íslenska heil- brigðiskerfið. Upplýsingar fylgi ekki sjúklingum á milli heilbrigðis- stofnana. „Í hvaða höndum lendir sá sem liggur hér rænulaus úti á götu og er ekki til frásagnar? Það pirrar mig að þurfa alltaf að þylja upp sjúkrasögu mína sárkvalin. Ég óttast að gleyma atriðum sem skipta máli. Þetta er galli við kerfið og erf- itt að skilja af hverju sjúkrasagan er ekki aðgengileg læknum.“ Hún lýsir því þegar hún fór í fyrsta sinn, fer- tug, í brjóstamyndatöku hjá Krabba- meinsfélaginu. Ber hafi fundist í öðru brjósti hennar og hún verið boðuð í frekari skoðun. Ofsaleg hræðsla hafi gripið hana en lækn- arnir hjá Krabbameinsfélaginu hafi ekki haft vitneskju um ristilkrabb- ann og ekki upplýst krabbameins- lækni hennar um berið. „Ég bar því upplýsingarnar á milli. Hvernig fer gamalt fólk að, sem sækja þarf til margra sérfræðinga? Ég velti því fyrir mér af hverju ekki er hægt að leigja vídeómynd án þess að gefa upp kennitölu en um sjúkrasöguna þurfi að ríkja leynd.“ Styrktist í trúnni Íris Björk ber silfurkross um hálsinn og segir að fram að þess- ari reynslu hafi hún búið að sinni barnatrú. En kvöldið fyrir aðgerðina stóru hafi komið til hennar hjúkr- unarfræðingur sem bjó hana undir aðgerðina. „Hún vafði fætur mína og setti í sokka. Blóðþrýstingurinn var mældur og ég sprautuð. Hún spurði mig: Ertu trúuð? Ég var búin að vera dofin, frosin, og var föst en svaraði: Já, bara svona venjulega. Hún tók þá utan um mig og sagði að við skyldum fara saman með bænir, mér liði örugglega betur. Við báðum til Guðs og einhvern veginn hjálp- aði það mér. Ég fór að biðja Guð um hjálp og í kjölfarið að þakka honum fyrir. Það er gott að hafa eitthvað og hver velur sitt fyrir sig.“ Eftir að sjúkravistinni á Landspít- alanum lauk hjálpaði móðir Írisar Bjarkar þeim hjónum við heimilis- störfin sem maður hennar sá um að öðru leyti. „Ég var í mjög góðu formi þegar áfallið dundi yfir og læknarnir segja að það hjálpi til í svona aðgerð og auðveldi manni að ná sér aftur.“ Og sú barátta hafi verið erfið. Fyrsta mánuðinn heima hafi hún vart farið út en smátt og smátt gat hún gengið upp stigann milli hæða, farið í kringum húsið og svo farið lengri leiðir og unnið þrekið til baka. Ákváðu fæðingu án inngrips Hún var í vikulegu mæðraeftirliti og sónar eftir aðgerðina. „Það er svo margt í mörgu og margt í litlu. Skurðurinn þótti svo stór að ekki væri forsvaranlegt að taka líka keisaraskurð, því það myndast svo mikill örvefur. Forstjóri fæðingar- deildarinnar kallaði mig því til sín og sagði að það gengi svo vel hjá mér að hún vildi að ég eignaðist barnið eðlilega.“ Íris Björk segir að þótt læknar hafi ekki allir verið sammála þessu sé hún mjög ánægð með þessa ákvörðun í dag. „Ég veit í dag að örvefir eru eins og kóngulóarvefir inni í manni. Garnirnar og þarmarnir geta flækst í honum – og þá myndast samgrón- ingar. Annar skurður hefði því þýtt ennþá fleiri samgróninga,“ lýsir Íris en var uggandi. „Ég var með stækkandi maga og gróandi sár. Ég verð að viðurkenna að ég var svo hrædd um að saum- urinn myndi einfaldlega gefa sig. Meðgangan var því ekki auðveld en gekk þó með ólíkindum — og ég veit ekki hvort það var tilviljun eða hvort líkaminn stýrði því en það var eins og hún hefði fært sig til í leginu og sparkaði í hægri síðuna á mér en ekki þá vinstri, þar sem skurður- inn lá.“ Hún segir þó að þegar litla stúlkan hafi í örfá skipti sparkað í gróandi sárið hafi það verið ofsalega sárt. Einn læknanna sem vildi að Íris færi í keisara vildi tryggja að hún gengi ekki fram yfir settan dag, þann 17. apríl 2007, með barnið og bókaði hana í tíma deginum áður, þar sem fæðingin yrði sett af stað væri hún ekki þegar búin að eiga. „Þann 16. pakka ég niður í tösku og mæti niður á Landspítala. Ég var sett í mónitor og á meðan ég sit í honum byrja hríðirnar. Ég var því ekki gangsett.“ Fæðingin gekk vel og Gígja fæddist settan dag, alheil- brigð og flott þrettán marka stúlka. Hversdagurinn ekki sá sami Lífið hefur nú sinn vana gang í Grafarvoginum þar sem Íris Björk býr með æskuástinni sinni og fjöl- skyldunni sem þau hafa stofnað. Hún vinnur hjá lögmannsstofunni Logos eins og hún gerði þegar áfallið dundi yfir. Hún þarf að passa mataræðið meira og betur og fær krampa og samgróninga. „En ég hef aldrei lent í neinu alvarlegu eft- ir aðgerðina.“ Spurð um líðan sona þeirra þá daga sem hún var að kljást við krabbann segir hún að þau hjón- in hafi útskýrt málin fyrir þeim eins vel og þau gátu. „Sá yngri vildi nú aðeins fá að vita hvort ég myndi lifa eða deyja. Það var ekkert þar á milli enda vilja börn gjarna hafa hlutina svart á hvítu.“ En breytti reynslan lífi hennar? „Já, hún hefur bæði styrkt mig og veikt. Ég upplifi meiri ótta. Sem betur fer er í mannsins eðli að velta sér ekki upp úr því sem getur gerst. Fólk fer í gegnum lífið áhyggjulaust þar til eitthvað gerist. Nú grípur mig hræðsla þegar ég hugsa um það sem gæti gerst og þegar ég er illa fyrirkölluð á ég það til að hugsa: Hvað ef, hvað ef Þetta eru líka til- finningar sem nýbakaðar mæður upplifa og það hjálpaði ekki til,“ segir Íris Björk kímin. „En þessi reynsla kenndi mér að þakka fyrir mig. Þetta ferli gekk eitthvað svo með ólíkindum vel og fór fram úr öllum björtustu vonum.“ Fólk fer í gegnum lífið áhyggjulaust þar til eitthvað gerist. Nú gríp- ur mig hræðsla þegar ég hugsa um það sem gæti gerst og þegar ég er illa fyrirkölluð á ég það til að hugsa: Hvað ef, hvað ef ? Íris Björk með dóttur sína Gígju Björk í fanginu. Maður hennar, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, og yngri sonurinn Viðar Snær sitja fyrir aftan þær mæðgur. Á myndina vantar eldri soninn, Valdimar Viktor. Ljósmynd/Hari upplifa það enda var ég í afneitun um alvar- leika sjúkdómsins.“ Krabbameinslæknirinn hennar hefði þó, við áhyggjur þeirra hjóna, nýtt sér tengslanet sitt við erlenda lækna og leitað álits þeirra á því hvort Íris Björk gæti sleppt lyfjameðferðinni. „Það voru rosalega skiptar skoðanir um þetta meðal lækna og þetta endaði þannig að um 60% töldu lyfjameðferðina þarfa en 40% ekki. Þetta ferli stóð út febrúarmánuð og þá urðum við að taka ákvörðun um framhaldið. Ég mætti til læknisins með þá von í hjarta að hann tæki ákvörðunina fyrir mig og að hún væri sú að hann segði mér að ég þyrfti ekki að fara í lyfjameðferðina. Það endaði þó þannig að ég varð að ákveða þetta sjálf. Hann sagði mér að hann styddi hvora ákvörðunina sem ég tæki en ákvörðunin væri mín. Svona ófrísk hugsaði ég kannski ekki rökrétt. Mér fannst svo sárt að hugsa til þess að vera í miðri lyfja- meðferð, hundveik, og geta ekki haft barnið á brjósti. Á móti komu svo hugsanir um að ég þyrfti lyfjameðferðina – hún myndi hugs- anlega bjarga lífi mínu. Ég var eins og jó-jó í marga daga og sveiflaðist á milli ákvarðana. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is 34 viðtal Helgin 26.-28. nóvember 2010
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.