Fréttatíminn - 26.11.2010, Page 38
2 jól Helgin 26.-28. nóvember 2010
Á Blómaverkstæði Binna er undirbúningurinn fyrir aðventuna í fullum gangi
og nóg að gera við að búa til fagra
aðventukransa og -skreytingar
sem hver er með sínu lagi. Fritz
Hendrik Berndsen, eða Binni
eins og flestir þekkja hann, hefur
staðið jólavaktina í áratugi og veit
hvaða litir eru vinsælastir hverju
sinni. „Við á Blómaverkstæðinu
erum svo mikil jólabörn að við
erum einna helst með jólarauða
litinn bæði í aðventukrönsum og
jólaskreytingum. Síðan er töluvert
um hvítt og silfur en einnig eru
dumbrauður og djúpfjólublár vin-
sælir,“ segir Binni og býr til slaufu
í aðventukrans.
Spurður hvort litatískan í jóla-
skreytingum taki breytingum á
milli ára segir hann að svo sé. „En
jólarauður er samt alltaf vinsæll
og núna kemur hann mjög sterkur
inn. Sjálfum finnst mér það alltaf
fallegasti jólaliturinn.“
Hvað er það sem stjórnar jóla-
tískulitnum hverju sinni?
„Það getur verið margt. Þeg-
ar við byrjum að kaupa inn efni
í kransa og skreytingar fer það
stundum eftir því hvernig liggur á
manni hvaða liti maður kaupir. En
þegar það fer að dimma á haustin
og jólin nálgast vill maður fá bjarta
liti.“
Á heimili Binna eru jólahefðirn-
ar í föstum skorðum. „Hún Ásta
mín byrjar jólaundirbúninginn
kvöldið fyrir fyrsta í aðventu. Þá
tekur hún fram jólakransinn sem
við höfum átt í tuttugu og tvö ár og
setur svo aðventuljós út í glugga.
Þau höfum við átt í þrjátíu og eitt
ár. Hún kveikir á þeim á miðnætti
þegar fyrsti í aðventu rennur upp.
Nokkrum dögum fyrir jólin byrj-
um við svo að skreyta heimilið.“
Jólarautt, silfrað og hvítt
Jólalitirnir í Ár
Binni hefur gert aðventukransa með sínu lagi í fjörutíu ár. „Fólk á þá í áraraðir og getur komið með þá í viðgerð ef á þarf að halda. Ég man eftir konu sem kom með þrjátíu
ára krans í viðgerð.“ Ljósmynd/Hari
Örn Árnason
leikari
„Ef maður er að leika í jólaleikriti
forðast maður ekki jólastress, heldur
er fjarri öllu jólastressi. Þá hugar
maður bara að sýningunni og allir
aðrar eru í banastressi. Við fjölskyl-
dan höfum þann háttinn á að líta ekki
á jólastressið sem náttúrulögmál
heldur er þetta heimatilbúinn vandi.
Best er að gefa sér bara einn dag í
þetta, ganga í málið og klára það.
Sumir bíða fram á síðasta dag og
finnst þeir eiga eftir að gera allt, en
hvað er þetta allt? Það er svo snúið.
Ég hef ekki fundið það ennþá!
rÁð við Jólastressi
En jólarauður er
samt alltaf vinsæll
og núna kemur hann
mjög sterkur inn.
Sjálfum finnst mér
það alltaf falleg asti
jólaliturinn.