Fréttatíminn - 26.11.2010, Side 48
12 jól Helgin 26.-28. nóvember 2010
B jörk Hólm þjóðfræðinemi hlakkar alltaf til jólanna, enda óvenjuspennandi að
opna pakkana frá fjölskyldunni. Það
er nefnilega til siðs að gefa óhefð
bundnar grínjólagjafir. „Amma byrj
aði á þessu þegar hún fór að gefa
börnunum sínum og tengdabörnum
gríngjafir á afmælum. Móðursyst
ir mín og maðurinn hennar tóku
þetta yfir á næsta stig og þau gefa
fjölskyldunni djókjólagjafir,“ segir
Björk sem bíður spennt eftir grín
gjöfinni í ár. „Ef maður segir eitt
hvað vitlaust eða heimskulegt á
maður á hættu að fá eitthvað tengt
því í jólagjöf. Sumar gjafirnar eru
heimatilbúnar, aðrar keyptar í Tig
er, en þær eiga það sameiginlegt
að vera sniðugar. Minnisstæðasta
gjöfin sem ég hef fengið er sú sem
ég fékk eftir að ég hafði óvart keyrt
öfugan hring á hringtorgi og fattaði
það ekki fyrr en þegar ég var búin
Óvenjulegar jÓlagjafir
Ragnar Bjarna-
son söngvari
„Njóta undirbúningsins og njóta
jólanna. Bara taka þátt í jólagleðinni
og fá jólastemningu í hugann og þá
gengur þetta fínt.“
ráð við jÓlastressi
Djók í jólagjöf
að keyra hálfan hring. Ég sagði
frænku minni frá þessu og þá fengu
þau hjónin hugmyndina að jólagjöf
fyrir mig. Þau skáru út pappaspjald,
límdu fullt af litlum bílum á það og
einn, sem var eins og minn, sneri
öfugt og á móti umferðinni.“
Björk segir gjafirnar líka ein
kennast af einkahúmor. „Mamma
fær t.d. alltaf mismunandi gerðir
af muffinsformi. Hún átti einhvern
tímann nokkur muffinsform og
keypti alltaf ný þótt hún bakaði
aldrei muffins. Núna er búrið hjá
henni fullt af muffinsformum sem
eru aldrei notuð! Mamma fær líka
alltaf mús í jólagjöf því hún er
dauðhrædd við mýs. Hún hefur
fengið músastyttur,músabangsa
og heimagerðar mýs.“
Oft eru grínjólapakkarnir
stílaðir frá frægu fólki eða fólki í
bæjarfélaginu. Þeir eiga það þá
sameiginlegt að vísa í viðkomandi
á einhvern hátt. „Þetta er mjög
fyndið og skemmtilegt og tekur
alvarleikann af pakkastandinu og
gerir jólin enn skemmtilegri,“ segir
Björk.
Amma byrjaði á þessu þegar hún fór að gefa
börnunum sínum og tengdabörnum gríngjafir
á afmælum. Móðursystir mín og maðurinn
hennar tóku þetta yfir á næsta stig og þau gefa
fjölskyldunni djókjólagjafir.
Björk kann að meta óhefð-
bundnar gjafir sem koma
skemmtilega á óvart.
Ljósmynd/Hari