Fréttatíminn - 26.11.2010, Qupperneq 54
18 jól Helgin 26.-28. nóvember 2010
Gjafakort – þá fá allir eitthvað fallegt!
Blue Lagoon gjafakort eru fáanleg í verslunum Bláa Lónsins
á baðstað, að Laugavegi 15, Blue Lagoon spa og Hreyfingu í Glæsibæ.
Gisting í Bláa Ló
ninu – Lækningalind Blue Lagoon húðvörur Líkamsrækt Einkaþjálfun
Aðgangur í Bláa Lónið Spa meðferðir Snyrtimeðferðir Nudd Veitingar á LAVA
Gjafakort
D ísa ljósálfur, Gunni og Felix, Sigurður Guðmundsson og Memfismafían og Ari Eld-
járn eru á meðal þeirra sem munu
skemmta í Jólaþorpinu í Hafnarfirði
á aðventunni. Grýla og jólasvein-
arnir verða á sveimi og heilsa upp á
káta krakka, auk þess sem jólavarn-
ingur af ýmsu tagi verður til sölu í
fagurlega skreyttum jólahúsum.
Jólaþorpið í Hafnarfirði verð-
ur opnað með pomp og prakt á
morgun, laugardag, klukkan eitt
og ljósin á jólatrénu verða tendruð
um fimmleytið. Boðið verður upp á
fjölbreytta dagskrá sem miðast við
að skemmta allir fjölskyldunni með
leik- og tónlist en Jólaþorpið verður
opið allar helgar á aðventunni og
fram á kvöld á Þorláksmessu. Það
verður því nóg um að vera og ættu
allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Á stóra sviðinu verða alltaf einhver
skemmtiatriði í gangi sem Grýla
mun kynna af sinni alkunnu snilld.
Auk ofantalinna atriða munu alls
konar kórar hefja upp raust sína,
sýnt verður úr leikritinu Horn
á höfði, krakkar frá félagsmið-
stöðvum verða með skemmtiatriði
og töframenn leika listir sínar. Á
sunnudögum verður útijólaball þar
sem Jólasveinabandið, Gunni og
Felix og Ísgerður Elfa úr Stundinni
okkar skiptast á um að halda uppi
fjörinu.
Í ár hefur Jólaþorpið tekið
höndum saman við Byggðasafn
Hafnarfjarðar sem verður með sér-
staka jólasýningu þar sem Gallerý
Thors var, við hlið þorpsins. Sýndir
verða jólamunir frá fyrri tíð, gömul
leikföng verða til sýnis og munu rit-
höfundar lesa upp úr barnabókum.
Prjónavörur, handverk, jólaskraut,
heitt kakó, kökur og vöfflur og
margt fleira verður til sölu í jóla-
húsunum tuttugu og verður eflaust
hægt að gera góð kaup.
Ráð við jólastRessi
Ragnheiður Ragnarsdóttir
„Fara í sund, synda nokkrar ferðir og skella sér svo í heita pottinn. Þetta er algjört
æði þegar það er frost úti. Mæli líka með því að fara í Bláa lónið að slaka á.“
jólaþoRpið í HafnaRfiRði veRðuR opnað á moRgun
Ekta jólastemning
Útijólaball alla sunnudaga
Farðu inn á www.oddi.is
og búðu til persónulega gjöf.
Vegleg innbundin myndabók með þínum myndum.
Hannaðu þína
eigin myndabók
á oddi.is
VERÐ FRÁ
6.990 kR.
EINTAkIÐ